Morgunblaðið - 09.01.2001, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 09.01.2001, Qupperneq 7
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 B 7 Það var töluverður munur á leikliðsins í leiknum á Akureyri og í fyrsta leiknum í Hafnarfirði. Fyrri leikurinn var slakur af okkar hálfu.Við renndum auðvitað svolítið blint í sjóinn í þeim leik enda menn að leika saman í fyrsta sinn í langan tíma. Leikurinn var mun betri fyrir norðan en þó svo að hann hafi unnist voru kaflar í honum sem voru alls ekki nógu góðir og því þurfum við að vinna bug á. Við erum meðvitaðir um að það er margt sem við þurfum að laga. Við höfum ein- sett okkur að taka eitt skref í einu og bæta það sem okkur þykir vera miður,“ sagði Þorbjörn í samtali við Morgunblaðið í gær. Hvað finnst þér vera helst vera að í sóknarleiknum í þessum leikjum? „Menn þurfa að ná betur saman. Það var stirðleiki í sóknarleiknum á köflum og það er kannski eðlilegt þar sem menn hafa ekki spilað sam- an í nokkuð langan tíma. Upprifjum þarf að eiga sér stað því menn spila oft öðruvísi með sínum félagsliðum en landsliðinu. Patrekur, Ólafur og Dagur koma til með að leika stórt hlutverk í sóknarleiknum. Þeir virka allir í góðu formi og þó svo að Patti og Óli hafi ekki alveg fundið sig í fyrri leiknum þá held ég að þeir eigi eftir að standa sig.“ Þú hefur ekki ætlað þér að prófa aðra menn en Dag í leikstjórnanda- stöðunni í þessum leikjum? „Ragnar Óskarsson og Aron Kristjánsson geta báðir leyst þessa stöðu. Ragnar er nýbyrjaður eftir meiðslin svo ég veit ekki alveg hvar hann stendur. Mér finnst Dagur hafa staðið sig vel en það getur vel verið að Ragnar eða Aron fái að spreyta sig í þessari stöðu.“ Þorbjörn valdi 21 leikmann í æf- ingahópinn en í leikjunum gegn Frökkum voru það fjórir leikmenn sem ekkert komu við sögu. Það voru: Erlingur Richardsson, Ragnar Óskarsson, Gunnar Berg Viktors- son og Þórir Ólafsson. Þorbjörn segist eftir að meta það á æfingum fyrir síðasta leikinn gegn Frökkum í kvöld hvort hann notar einhverja af þessum leikmönnum en endanlegur hópur sem fer á HM verður ekki valinn alveg strax. Vill sjá betri markvörslu Hvað um varnarleikinn og mark- vörsluna í þessum leikjum gegn Frökkum? „Varnarleikurinn var miklu betri í síðari leiknum. Það sem aðallega háði okkur í vörninni á laugardaginn var æfingaleysi. Menn náðu ekki saman og Frakkarnir fengu að skora mikið af auðveldum mörkum fyrir utan. Við fórum vel yfir þetta atriði eftir leikinn og menn vissu meira hvernig þeir áttu að vinna saman. Við höfum verið að spila 5:1 vörn í þessum leikjum. Í leiknum á Akureyri gerði ég þá breytingu að láta Guðfinn Kristmannsson spila miðjuna aftur og Aron kom í senter- stöðuna. Þetta var meira gert til að fá fleiri menn til að geta spilað í þessum lykilstöðum í vörninni og mér fannst vörnin koma ágætlega út á köflum og hún vann betur saman en í Hafnarfirði. Ég vil sjá mark- vörsluna betri heldur en ég hef séð í þessum leikjum og samvinnan milli markvarðanna og varnarinnar þarf að vera miklu meiri. Ég er sann- færður að við getum bætt okkur á þessum sviðum. Það sem okkur skortir fyrst og fremst er samæfing og þess vegna þurfum við að halda áfram ótrauðir og koma liðinu í sem best lag áður en við höldum til Frakklands.“ „Ég á von á hörkuskemmtilegum leik gegn Frökkum í Höllinni. Við höfum sett þetta upp sem úrslitaleik og það er mikilvægt að ná góðum leik og sigra til að efla sjálfstraustið í liðinu. Ég vonast eftir góðum stuðningi og ég vil sjá að Reykvík- ingar séu engir eftirbátar norðan- manna sem studdu okkur frábær- lega,“ sagði Þorbjörn. Morgunblaðið/Kristján Dagur Sigurðsson fyrirliði tryggði íslenska liðinu sigur á Frökkum á síðastu sekúndu leiksins á Akureyri á sunnudaginn. Dagur og félagar glíma við Frakka þriðja sinni í Laugardalshöll í kvöld. ÁKVEÐIÐ hefur verið að senda þrjá íslenska kepp- endur á heimsmeistaramótið í alpagreinum skíðaíþrótta sem fram fer í St. Anton í Aust- urríki. Mótið hefst 28. janúar og stendur fram til 10. febr- úar. Þau sem valin hafa verið til keppni fyrir hönd Íslands eru Björgvin Björgvinsson frá Dalvík, Dagný Linda Krist- jánsdóttir frá Akureyri og Jó- hann Friðrik Haraldsson úr KR, en þau eru öll í Evrópu- bikarliði Íslands í alpagrein- um. Björgvin og Jóhann keppa báðir í svigi og stór- svigi á mótinu en Dagný keppir í stórsvigi og risasvigi. Í haust voru gerðir samn- ingar við önnur skíða- sambönd sem gert hefur skíðafólkinu kleift að æfa með þeirra liðum. Undirritaður var samningur við sænska skíðasambandið vegna Björg- vins og hefur Björgvin verið erlendis við æfingar með sví- um síðan í september. Jóhann Friðrik hefur æft með Evr- ópubikarliði breska skíða- sambandsins frá því í sept- ember og Dagný Linda hefur æft með ástralska liðinu, en áður var hún við æfingar í Noregi. Eins og áður hefur komið fram er Kristinn Björnsson frá vegna meiðsla, en hann undirbýr sig nú af fullum krafti fyrir næsta keppn- istímabil. Þrjú á HM á skíðumÞað er mikið verk fyrir höndum ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik, segir að mikið verk sé fyrir höndum að koma íslenska landsliðinu í rétt stand fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í Frakklandi eftir hálfan mánuð. Íslendingar léku um helgina sína fyrstu landsleiki í sjö mán- uði þegar þeir öttu kappi við Frakka og segir landsliðsþjálfarinn að ýmislegt þurfi að slípa á þeim tveimur vikum sem eru fram að HM. Þriðji og síðasti leikur Íslendinga og Frakka verður í Laugardalshöll í kvöld og vonar Þorbjörn að höfuborgarbúar mæti og styðji jafn vel við bakið á strákunum og Akureyringar gerðu á sunnudag. Guðmundur Hilmarsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.