Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 9

Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 9
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 B 9 að var mislétt yfir leikmönnum ís- nska landsliðsins þegar þeir fylgd- st með fyrsta leiknum frá hliðarlín- nni, f.v. Óskar Jón Helgason kraþjálfari, Davíð Björn Sigurðsson ðsstjóri, Boris Abkashev aðstoðar- lfari, Sebastían Alexandersson, bert Gunnarsson, Valgarð Thorodd- en, Heiðar Felixson, Julian Dura- ona, Gústaf Bjarnason, Guðfinnur ristmannsson, Róbert Sighvatsson g Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari. TÉKKAR, mótherjar Íslendinga á heimsmeistaramótinu í Frakklandi, töp- uðu öllum leikjum sínum á alþjóðlegu móti sem lauk í Þýskalandi á sunnudag- inn. Þeir biðu þá lægri hlut fyrir B-liði Þjóðverja, 26:25, en höfðu áður stein- legið fyrir Dönum, 24:15, og gegn A-liði Þjóðverja, 29:23. Jan Filip, félagi Guð- mundar Hrafnkelssonar hjá Nordhorn í Þýskalandi, var atkvæðamesti leik- maður Tékka á mótinu og skoraði t.d. 10 mörk í leiknum við A-lið Þjóðverja. Dav- id Juricek var markahæstur gegn B- liðinu með 6 mörk. Þjóðverjar sigruðu Dani í úrslitaleik mótsins á sunnudaginn, 26:21. Jan-Olaf Immel skoraði mest fyrir Þjóðverja, 7 mörk, en Christian Hjermind skoraði 5 mörk fyrir Dani. Það var þó Chrischa Hannawald, markvörður frá Essen, sem gerði útslagið fyrir Þjóðverja með góðri markvörslu. Tékkar töpuðu öllum leikjunum Ég var mjög ánægður með minnleik og okkar leik fyrstu 40 mín- úturnar. En því miður datt botninn gjörsamlega úr leik okkar í síðari hálfleik. Það gengur ekki gegn jafn- sterku liði og Frökkum,“ sagði Einar Örn Jónsson í samtali við Morgun- blaðið. „Við hittumst fyrst allur hópurinn degi fyrir leikinn og það er svo sem eðlilegt að menn séu eitthvað ryðg- aðir saman. Þessir leikir gegn Frökk- um eru til þess að slípa liðið saman og ég hef fulla trú að þetta komi hægt og bítandi. Það var mjög gaman að spila fyrsta landsleikinn hér á Ásvöllum. Ég hef fundið mig vel í þessu húsi og það var gaman að sjá allt þetta fólk sem mætti. Því miður náðum við ekki betri leik en ég lofa því að þetta fari upp á við,“ sagði Einar Örn. Margt sem þarf að laga Guðmundur Guðmundsson, marg- reyndur landsliðsmaður á árum áður og þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Dormagen, var einn þeirra sem fylgdust með leik Íslands og Frakk- lands á Ásvöllum. Morgunblaðið hitti hann að máli eftir leikinn og spurði hann álits á leik íslenska liðsins. „Það er erfitt að meta liðið eftir þennan leik. Það er að prófa ýmislegt en ég verð að segja að þetta var ekki nógu gott. Seinni hálfleikurinn var slakur af hálfu íslenska liðsins. Mér fannst ánægjulegt að sjá til Einars Arnar Jónssonar. Hann stóð sig vel og Sebastian kom sterkur upp í markinu þegar líða fór á seinni hálf- leikinn. Það er auðvitað margt sem þarf að laga en ég vil gefa þessu svo- lítinn tíma áður en ég segir meira.“ Það hlýtur að vera áhyggjuefni að liðið gerir aðeins eitt mark með lang- skoti? „Já, það er hægt að taka undir það, að minnsta kosti í þessum leik. Það er spurning hversu langt menn eru komnir í undirbúningnum. Ég sá já- kvæða hluti í sókninni en aðrir voru alls ekki nógu góðir og þá sérstak- lega í síðari hálfleik. Patrekur og Ólafur skiluðu ekki því sem þeir verða að gera og mér fannst einkenn- andi hversu mikil deyfð var í liðinu. Þetta sló mig töluvert miðað við að þetta var fyrsti leikurinn í langan tíma og margt fólk mætt til að horfa á,“ sagði Guðmundur Guðmundsson. Mikil deyfð í liðinu Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrver- andi landsliðsþjálfari, var ekki sáttur við leik íslenska liðsins frekar en margir aðrir sem fylgdust með leikn- um. „Mér fannst einkennandi fyrir leik íslenska liðsins hversu mikil deyfð var í strákunum og það var ekki ann- að að sjá en leikmenn virtust halda að þeir væru á æfingu. Ég reiknaði með að strákarnir hefðu gaman af þessu en svo virtist ekki vera. Ég hélt að strákarnir, sem hafa verið að spila svo vel í Þýskalandi eins og Patrekur og Ólafur, kæmu í þennan leik til að sýna fólki hvað í þeim býr og að þeir myndu smita út frá sér,“ sagði Þor- bergur við Morgunblaðið eftir leik- inn. Værir þú áhyggjufullur fyrir heimsmeistaramótið ef þú værir landsliðsþjálfari? „Ég myndi hafa talsverðar áhyggj- ur af varnarleiknum. Hitt veit ég að við getum klárað. Í dag er vörnin að mínu mati mikið spurningarmerki. Liðið nær alls ekki að spila 5-1 vörn- ina. Leikmennirnir ná illa saman og Frakkarnir skoruðu alltof fljótt og auðveldlega. Við gerum ekki nema eitt marki fyrir utan og þegar svo er getum við ekki búist við sigri. Menn töluðu um að óvissa væri með hægra hornið en Einar Örn sýndi að hann getur spilað þessa stöðu og frammi- staða hans var ljósasti punkturinn í leiknum.“ Hvernig nýta menn svona leiki? „Menn verða að rannsaka sjálfan sig og fara í naflaskoðun. Ólafur og Patrekur voru til að mynda ekki að gera neitt í þessum leik. Spurningin er hvað veldur því. Eru þeir búnir að æfa of mikið síðan þeir komu heim eða er þetta partur af áhugaleysi. Það er ekki langur tími til stefnu og menn verða að taka sig taki ef ekki á illa að fara,“ sagði Þorbergur. Mjög ánægður með minn leik EINAR Örn Jónsson átti mjög góðan leik gegn Frökkum í fyrsta landsleik þjóðanna að Ásvöllum á laugardaginn. Einar, sem hefur leikið svo vel með Haukunum í vetur, nýtti tækifærið vel og fór örugglega langt með að tryggja sér sæti í byrjunarliðinu fyrir HM.  EINAR Örn Jónsson skoraði fyrsta mark íslenska landsliðsins að Ásvöllum og það fór því vel að Haukamaður gerði það en þetta var fyrsti leikur Íslendinga í þessu glæsilega húsi Haukanna.  EINAR ÖRN, sem hefur farið mik- inn í liði Hauka á tímabilinu, getur ekki verið annað en sáttur við frammistöðu sína í leikjunum tveim- ur gegn Frökkum en þetta voru hans fyrstu landsleikir. Einar skoraði 5 mörk í leiknum að Ásvöllum og fisk- aði tvö vítaköst og skoraði 4 mörk í KA-húsinu. Sannarlega góð byrjun hjá Einari sem örugglega hefur tryggt sér stöðuna í hægra horninu.  ROBERTAS Pauzuolis, leikmaður Selfyssinga, var markahæstur með 7 mörk þegar Litháen burstaði Sviss, 26:16, í undankeppni EM í hand- knattleik í Kaunas á laugardaginn. Sviss vann fyrri leik liðanna með þremur mörkum og útlit er fyrir harða baráttu þessara liða við Rúm- ena um sigur í riðlinum.  RÚMENAR sigruðu Færeyinga tvisvar í Færeyjum um helgina, 36:23 í Þórshöfn og 27:16 í Vest- manna.  NOREGUR sigraði Alsír, 21:14, í úrslitaleik á alþjóðlegu handknatt- leiksmóti í Drammen á sunnudag- inn. Frode Hagen skoraði 5 mörk fyrir Noreg en Salim Nedjel 6 fyrir Alsír. Mikil slagsmál voru í leiknum og Alsírbúarnir fengu á sig 12 brott- vísanir og þrjú rauð spjöld.  CHRISTER Magnusson, þjálfari Norðmanna, var æfur eftir slakan leik gegn Sádi-Arabíu á mótinu á laugardaginn en hans menn unnu að- eins 21:18. Leikurinn var sýndur beint í norska sjónvarpinu og Magn- usson sagði að sínir menn hefðu farið illa með gott tækifæri til að sýna norsku þjóðinni hvað þeir virkilega gætu.  GUNNAR Fosseng, markvörður og fyrirliði Norðmanna, var hinsveg- ar ánægður með mótið í heild og sagði að þeir væru núna tilbúnir að sigra hvaða lið sem er. Þar með talið heimsmeistaralið Rússa sem er með þeim í riðli á HM.  NORÐMENN unnu alla fjóra leiki sína á mótinu en þeir verða á meðal mótherja Íslendinga á alþjóðlegu móti á Spáni um næstu helgi. Magn- usson þjálfari kallar mótið „Litla- HM,“ enda verða öll þátttökuliðin þar með á HM í Frakklandi.  JOHAN Pettersson, örvhenti hornamaðurinn í sænska landsliðinu í handknattleik, skrifaði um helgina undir þriggja ára samning við Þýskalandsmeistara Kiel. Petters- son er samherji Guðmundar Hrafn- kelssonar hjá Nordhorn og leikur þar út þetta tímabil.  PETTERSSON hefur ekki verið sáttur við lífið og tilveruna hjá Nord- horn en hann hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu þar. Hann hefur átt í erfiðri baráttu um stöðuna við Jan Filip, lykilmann tékkneska lands- liðsins.  DAÐI Hafþórsson og félagar í danska liðinu Skjern, sigruðu lands- lið Grænlands, 28:22, í æfingaleik í fyrrakvöld. Leikurinn var lengst af jafn en Skjern var yfir í hálfleik, 13:11. Grænlendingar búa nú lið sitt undir þátttöku í HM í Frakklandi þar sem þeir verða með í fyrsta skipti.  GRÆNLENDINGAR urðu fyrir miklu áfalli á dögunum þegar lyk- ilmaður þeirra, Hans Knudsen, meiddist á hné og missir af HM. Hann hefur leikið alla 27 landsleiki Grænlands til þessa.  ÞORVALDUR Þorvaldsson, línu- maður, sem skipti úr KA í Þór fyrir tímabilið og gerði tveggja ára samn- ing, er hættur að æfa hjá Þór og far- inn að mæta á æfingar hjá KA. Frá þessu er sagt á heimasíðu KA. Þorvaldur mun þó vart geta leikið með KA á þessari leiktíð. FÓLK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.