Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 10
Busl og barátta Eins og segir í mótskránni er þaðekki endilega sá eða sú, sem kemur fyrst í mark, sem vinnur besta afrekið, heldur sá eða sú sem nær bestum tíma miðað við sinn flokk og sína getu. Það er því í anda mótsins að Sjómannabikarinn, sem Sigmar Ólason, sjómaður frá Reyð- arfirði, afhenti fyrst 1984, skuli veitt- ur þeim er vinnur besta sundafrek mótsins samkvæmt stiga- og forgjaf- arútreikningi. Því má segja að það séu ekki allir mættir til að hampa gulli, heldur til að vera með og spreyta sig í vatninu undir fjörugum og miklum hvatningarópum áhorf- enda og stuðningsfólks, sem fjöl- mennti á bakka Sundhallarinnar á laugardaginn. Sérstaklega þótti skemmtilegt að mikil aukning er í 25 metra sundi með frjálsri aðferð en þar keppa þeir allra yngstu. Þá er ekki lykilatriði að vera fyrstur í mark heldur að komast alla leið og leyfilegt er að nota hvers kyns kúta og sundfit – jafnvel fá þjálfara eða foreldri til að ýta aðeins við sér. Í þetta sinnið kepptu 22 í þessari grein og hvatn- ingarópin á bakkanum voru slík að sumar af hetjunum í vatninu tók sér stundum örlitla hvíld til að fylgjast með hamaganginum á bakkanum og virtust kunna nokkuð vel við þessa umgjörð, sem gaf öðrum stórviðburð- um ekkert eftir. Þar á meðal var hin átta ára Aldís Ósk Björnsdóttir Diego frá íþróttafélaginu Ösp, sem keppti í þriðja riðli, en hún var að byrja að æfa sund og að taka þátt í sínu fyrsta sundmóti. „Það er svolítið erfitt að bíða en mér finnst samt mjög gaman hérna og ég ætla að keppa í sundi lengi,“ sagði Aldís Ósk eftir sitt sund þegar hún fagnaði með vinkon- um sínum. En markmiðið hjá öllum var ekki að komast að lokum yfir á bakkann hinum megin því keppni var mikil í flokki þeirra sem hafa æft af miklum móð í mörg ár. Þeirra á meðal var Gunnar Örn úr Ösp, sem sigraði í Sjó- mannabikarnum í þriðja sinn og hlaut hann því til eignar. Hann lék þar með eftir afrek Birkis R. Gunnarssonar úr ÍFR, sem vann einnig bikarinn til eignar með sigrum 1991 til 1994. Gunnar Örn fékk 771 stig en Harpa Sif Reynisdóttir úr Þjóti frá Akranesi var næst með 395 stig og Alexander Harðarson úr Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík í þriðja með 338. Einmitt á þessu móti steig mikið af íslenska sundfólkinu, sem staðið hef- ur á verðlaunapalli stærstu mótanna um víða veröld, sín fyrstu spor og mikið af þessu unga fólki starfar við mótið á hverju ári. Þeirra á meðal var Kristín Rós Hákonardóttir, sem kom hlaðin góðmálmi frá Ólympíuleikun- um í sumar. „Ég keppti alltaf á þess- um mótum á sínum tíma, alveg frá því að ég var átta ára,“ sagði Kristín Rós. „Það eru fleiri krakkar en þegar ég var að synda hérna svo þetta er allt að koma. Mótið er mjög skemmtilegt þó að ekki séu slegin mörg met en það eru margir hérna sem munu ef- laust gera góða hluti í framtíðinni.“ Hinni tíu ára Sonju Sigurðardóttur í ÍFR fannst mjög gaman á mótinu. „Ég er búin að synda í dag og mér gekk vel,“ sagði Sonja eftir sundið. „Þetta er þriðja mótið sem ég keppi á og það er mjög gaman að vera með á svona stóru móti, skemmtilegast var samt á Íslandsmótinu sem var haldið í Keflavík. Ég veit ekki hvað ég verð lengi í sundinu en ætla að vera lengi.“ Þrátt fyrir að vera aðeins fjórtán ára hefur Skúli Steinar Pétursson mikla reynslu af Nýársmótum því hann var að taka þátt í sínu sjötta móti enda hóf hann að æfa sund um átta ára gamall. „Það er mjög gaman að taka þátt í þessum mótum og ekki síst að vera á staðnum en mér gekk líka vel í dag,“ sagði Skúli Steinar, sem er í íþróttafélaginu Firði og mik- ill keppnismaður. „Ég hef unnið 38 verðlaunapeninga en næst ætla ég að reyna að fá bikar líka,“ bætti Skúli Steinar við en hann æfir sund þrisvar í viku með skólasundinu. Morgunblaðið/Jim Smart Íþróttafélagið Fjörðurinn tefldi fram rúmlega tuttugu kepp- endum. Hér stillir hluti þeirra sér upp fyrir myndtöku. Gunnar Örn Ólafsson úr Ösp vann Sjómannabikarinn í þriðja sinn og fær hann því til eignar. Harpa Sif Reynisdóttir úr Þjóti var í öðru sæti og Alexander Harðarson frá ÍFR í þriðja. GLEÐIN var fölskvalaus þótt stutt hafi verið í keppnisskapið þegar Nýársmót fatlaðra barna og unglinga fór fram í 18. sinn í Sundhöllinni við Barónsstíg á laugardaginn. Að þessu sinni voru keppendur um 50 frá fjór- um félögum og hafa aldrei verið fleiri enda aukning á meðal þeirra yngstu, sem reyndu að komast eina ferð á milli bakk- anna undir miklum og einlægum hvatningarópum allra uppi á laugarbarminum. Gunnar Örn Ólafsson úr Ösp vann besta sun- dafrekið í þriðja sinn og hlaut því Sjómannabikarinn til eignar, sem heiðursgestur mótsins, Ell- ert B. Schram, forseti ÍSÍ, af- henti honum í mótslok. Stefán Stefánsson skrifar BÖRN OG UNGLINGAR 10 B ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ EYÞÓR Þrastarson, 9 ára, blindur sundkappi í ÍFR, lét sig ekki muna um að keppa í þremur greinum en honum fannst þó biðin á milli stund- um nokkuð löng. „Mér finnst mjög gaman en ekki þegar maður þarf að bíða mikið eftir að keppa því það er þá skemmtilegra að vera að synda,“ sagði Eyþór, sem hefur þrátt fyrir ungan aldur æft í nokkur ár og sett sér markmið. „Ég hef keppt í mörg- um mótum, veit samt ekki alveg hvað mörgum en það hefur bara gengið vel. Það er nauðsynlegt að æfa sig vel, ég æfi tvisvar í viku en það getur verið að það fari upp í fimm sinnum á viku. Það er mjög gaman að synda og ég ætla að vera lengi að – ætli ég reyni ekki að koma mér á Ólympíu- mótið einhvern tímann.“ Reyni að komast á Ólympíumótið Sandra Lind Valgeirsdóttir úr Firðinum tók á öllu sínu þegar hún keppti í bringusundi. Gunnar vann Sjómanna- bikarinn GUNNAR Örn Ólafsson sundkappi vann Sjó- mannabikarinn þriðja árið í röð og hlaut hann því til eignar en bikarinn var upphaflega gefinn af Sig- mari Ólasyni sjómanni á Reyðarfirði 1984 og veitt- ur fyrir besta sundafrek mótsins samkvæmt stiga- og forgjafaútreikningi. Reyndar vann Birkir Gunnarsson bikarinn til eignar 1994 en þá gaf Sig- mar nýjan bikar. „Ég er mjög stoltur því ég var að bæta mig í öllum greinum sem ég keppti í. Nú á ég bikarinn en þetta var í síð- asta sinn vegna aldurs sem ég get keppt á þessu móti svo að það voru síðustu forvöð á eignast hann og ég hreinlega varð að vinna aftur núna,“ sagði Gunnar Örn eftir mótið. Slíkur ár- angur kemur ekki af sjálfu sér enda æfir Gunnar Örn á hverjum degi á meðan skólinn stendur yfir en á milli jóla og nýárs æfði hann tvisvar á dag. „Þetta er mikil vinna en alltaf jafngaman og ég er búinn að keppa á mörgum stórum mótum erlendis,“ bætti Gunnar Örn við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.