Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 11

Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 11
KÖRFUKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 B 11 Eiríkur Önundarson tryggðiBreiðhyltinum sigurinn með þriggja stiga körfu 38 sekúndum fyr- ir leikslok en rétt áð- ur hafði Mike Bar- gen komið Hauk- unum yfir með glæsilegri þriggja stiga körfu. Hreggviður Magnússon fékk svo gott tækifæri til að gull- tryggja sigur ÍR-inga þegar hann fékk tvö vítaskot 18 sekúndum fyrir leikslok. Hreggviði brást bogalistin úr báðum skotunum og Haukar áttu því öll tök á að jafna eða tryggja sér sigurinn. Haukarnir náðu þremur skotum að körfu ÍR á þessum loka- sekúndum. Fyrst Bragi Magnússon, þá Ingvar Guðjónsson og lokaskotið átti Guðmundur Bragason en eins og fyrri tvö skotin rataði knötturinn ekki rétta leið. ÍR-ingar fögnuðu því sætum sigri en Haukarnir sátu eftir með sárt ennið. Heimamenn áttu undir högg að sækja nánast allan fyrri hálfleikinn en undir lok hans komust þeir yfir í fyrsta sinn en sú forysta var ekki lengi því Haukarnir áttu síðasta orð- ið og leiddu með einu stigi eftir fyrri hálfleikinn. ÍR-ingar hófu síðari hálf- leikinn líkt og þeir enduðu þann fyrri. Þeir náðu undirtökunum og höfðu átta stiga forskot eftir þriðja leikhluta. Steinar Arason fór fyrir sínum mönnum. Hann skoraði á skömmum tíma þrjár þriggja stiga körfur og í upphafi fjórða leikhluta var forysta ÍR-inga komin í tólf stig, 70:58. Þá hrökk Haukamaðurinn Mike Bargen í gang en hann hafði haft frekar hægt um sig. Hann gaf sínum mönnum vonina að nýju og með baráttu og seiglu tókst Hauk- unum að komast yfir, 75:76, með þriggja stiga körfu Ingvars Guðjóns- sonar. Það sem eftir lifði leiks var spennan í algleymingi en ÍR-ingar héldu haus og enginn betur en Eirík- ur Önundarson, sem var mjög drjúg- ur á lokakaflanum. Cedric Holmes og Eiríkur voru bestu menn ÍR. Sigurður Þorvalds- son átti góða kafla sem og Hregg- viður Magnússon sem lenti snemma í villuvandræðum. Þá má ekki gleyma þætti Steinars Arasonar í síðari hálfleiknum. „Þetta var háspenna lífshætta. Það er óhætt að segja það. Sigurinn hefði getað endað hvorum meginn sem var en mínir menn héldu haus undir lokin. Ég var mjög ánægður með frammistöðu Steinars en liðs- heildin var annars góð og menn börðust vel. Ég á mér enga óskamót- herja í undanúrslitunum og aðalmál- ið er að fá heimaleik,“ sagði Jón Örn Guðmundsson þjálfari ÍR. Haukana skorti sigurviljann og baráttuna og liðsheildin, sem ætti undir öllum kringumstæðum að vera sterk, náði ekki saman. Mike Bargen var lengi í gang en kom sterkur upp á lokakaflanum. Jón Arnar Ingvars- son átti prýðisleik og Guðmundur Bragason er hægt og bítandi að nálgast fyrri styrk. Skotæfing hjá meisturunum Grindvíkingar sóttu 1. deildarliðÍA heim í 8-liða úrslitum bik- arkeppninnar og er skemmst frá því að segja að leikurinn var heima- mönnum erfiður gegn skotvissum bikarmeisturum frá Grindavík sem sigruðu 129:45. Það var aðeins á upphafsmínútum leiksins sem hið unga lið Akurnes- inga náði að láta eitthvað að sér kveða og er líða tók á annan leikhluta komu yfirburðir Grindvíkinga í ljós og á þeim kafla skutu þeir ÍA í kaf með þriggjas stiga skotum. Í leikhléi var munurinn 36 stig, 29:65 og í 3. leikhluta héldu gestirnir uppteknum hætti og skoruðu þá 37 stig gegn 6 stigum heimaliðsins. Bandaríkjamaðurinn Kevin Daley í liði Grindavíkur kann greinilega eitt- hvað fyrir sér í íþróttinni og hálofta- tilþrif hans ásamt gríðarlegri hittni félaga hans fyrir utan þriggja stiga línuna skemmtu áhorfendum ágæt- lega, þrátt fyrir að flestir væru á bandi heimamanna. Grindvíkingar hittu í 22 þriggja stiga skotum af alls 36 skottilraunum, sem er rúmlega 60% nýting en körfu kvöldsins átti Grindvíkingurinn Páll Axel Vil- bergsson sem setti niður þriggja stiga körfu í þá mund er þriðja leik- hluta lauk og var Páll þá staddur langt inni á varnarhelmingi Grinda- víkur. Skagamenn áttu slakan dag. Eiríkur skaut ÍR áfram Guðmundur Hilmarsson skrifar Morgunblaðið/Jim Smart Cedric Holmes gerir tvö af 27 stigum sínum gegn Haukum. Guðmundur Bragason og Eyjólfur Jónsson reyna að stöðva Holmes en Ingvar Guðjónsson fylgist spenntur með. HAUKAR hafa ekki byrjað nýja árið vel í körfuboltanum. Í fyrstu um- ferð úrvalsdeildarinnar eftir áramótin töpuðu Haukarnir fyrir Kefl- víkingum á heimavelli og í fyrrakvöld voru þeir slegnir úr leik í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Baráttuglaðir ÍR-ingar lögðu Haukana að velli í æsispennandi leik, 81:79, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. FALUR Harðarson lék í 11 mín- útur með félögum sínum í Keflavík á móti Þór á sunnudaginn. Hann hefur verið frá vegna meiðsla og spilaði síðast með liðinu í lok október. Falur náði ekki að setja mark sitt mikið á leikinn enda á hann eftir að komast í betri leikæfingu fyrir lokasprettinn.  GUNNAR H. Stefánsson fékk ásamt félaga í Keflavík, Sæmundi Oddssyni, blómvönd fyrir að leika hundrað leiki fyrir félagið.  25 mínútna seinkun var á leik ÍR og Hauka í Seljaskóla á sunnudags- kvöldið. Ástæðan var sú að ekki tókst að koma klukkunni í gang. Ákveðið var engu að síður að hefja leikinn og var fyrri hálfleikurinn spilaður við heldur frumlegar að- stæður.  NOTAST var við hátalarakerfi hússins þar sem boðum var komið til leikmanna hvað eftir væri af skot- klukkunni og áhorfendur voru upp- lýstir reglulega um hver staðan í leiknum væri. Undir lok fyrri hálf- leiksins tókst svo að koma klukkunni í gang og var leikið við eðilegar að- stæður í síðari hálfleik.  LA CLIPPERS vann langþráðan sigur á nágrönnum sínum, LA Lak- ers, í NBA-deildinni í körfuknattleik í fyrrinótt. Lakers hafði unnið 16 leiki liðanna í röð en Clippers tryggði sér stórsigur með frábærum endaspretti, 118:95. Lamar Odom skoraði 29 stig fyrir Clippers en Shaquille O’Neal 33 fyrir Lakers. FÓLK Það er ánægjulegur árangur aðvera kominn í 4-liða úrslit í bik- arnum þar sem okkur var spáð þriðja neðsta sæti fyrir tímabilið. Það kemur kannski á óvart að við séum komnir áfram. Það er ekkert gefið í þessum efnum og greinilega ekki í Hveragerði,“ sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari Hamars. Mikið einbeitingarleysi hjá báðum liðum einkenndi fyrsta leikhlutann og menn greinilega ekki enn búnir að ná sér á strik eftir jólafrí. Leik- menn hjá báðum liðum misnotuðu færin ítrekað en KR hafði þó betur 19:16. Framan af var annar leikhluti nokkuð jafn. Í stöðunni 30:29 urðu kaflaskipti en þá stungu Hamrarnir af og skoruðu 14 stig á móti engu stigi KR-inga sem voru gjörsamlega heillum horfnir. Þar átti ekki síst stærstan þátt Hamarsmaðurinn Chris Dade sem tók leikinn í sínar hendur og skoraði fimm þriggja stiga körfur í leikhlutanum. Sóknir KR runnu hinsvegar síendurtekið út í sandinn á meðan Hamar komst í 12 stiga forystu. Í hálfleik var staðan 48:36 fyrir Hamar. Í upphafi fjórða leikhluta dró strax til tíðinda. Með stífri pressu- vörn minnkuðu gestirnir óðfluga muninn en Hamar komst varla yfir miðlínu. Dæmið snerist þá við og KR skoraði 14 stig á móti engu stigi Hamars á fimm mínútum og komust gestirnir í fyrsta sinn yfir frá upp- hafi leiks, 70:72. En með seiglunni náðu Hamars- menn hins vegar að rétta sinn hlut og náðu aftur átta stiga forystu, 83:75. Hamar lék mjög góða vörn á þessum kafla en KR-ingar virtust vera sprungnir á limminu og gáfu talsvert eftir í vörn og sókn. En leik- urinn var langt frá búinn. Þegar 30 sekúndur voru eftir höfðu KR-ingar aftur náð að minnka muninn í 2 stig og leikurinn opnaðist upp á gátt. Hamar varð þá fyrir blóðtöku sem getur haft slæmar afleiðingar fyrir þá en miðherjinn Ægir Jónsson meiddist illa á hné og varð að bera hann af leikvelli. Óljóst er hverskyns meiðslin eru og hvenær Ægir getur aftur byrjað að spila. Eftir að Ægi hafði verið sinnt héldu KR-ingar í sókn og freistuðu þess að jafna leik- inn. Þeir misstu boltann klaufalega og ruku Hvergerðingar þá í sókn. Brotið var á Chris Dade og innsigl- aði hann góðan sigur heimamanna. Keflavík hristi Þór af sér Minnugir þess hve þeir þurftu aðhafa fyrir sigri á Þór í deild- arkeppninni í byrjun desember gáfu Keflvíkingar allt sitt þegar liðin mættust í 8-liða úrslitum bik- arkeppni karla í Keflavík á sunnu- daginn. Það fór því svo að Þórsarar náðu að halda þeim við efnið fram að lokum fyrri hálfleiks en þá skildi leiðir og Keflvíkingar eru komnir í undarnúrslit eftir 112:90 sigri. Fljótlega tóku Keflvíkingar við sér og náðu góðu forskoti þar sem Magnús Þór Gunnarsson lék á als oddi en Óðinn Ásgeirsson sá um að halda gestunum í leiknum með því að skora fyrstu tólf stig þeirra. Heimamenn gerðust værukærir eft- ir þessa góðu byrjun og það létu Þórsarar með Maurice Spillers í broddi fylkingar ekki bjóða sér tvisvar og linntu ekki látum fyrr en þeim tókst að jafna 44:44 þegar tæp- ar fjórar mínútur voru til leikhlés. Það segir reyndar sína sögu um varnarleikinn að bæði lið fóru yfir fimmtíu stig í fyrri hálfleik. Sama var upp á teningnum eftir hlé nema hvað Keflvíkingar slógu ekki af. Gunnar Einarsson, Albert Óskarsson og Calvin Davis fóru mik- inn en flest sig norðanmanna komu eftir einstaklingsframtak Maurice Spillers. Munurinn varð fljótlega um tuttugu stig og ljóst að gestirnir fengju litlu um það breytt. „Ég var reyndar mjög ósáttur við vörnina í fyrri hálfleik en hún var betri í þeim seinni,“ sagði Sigurður Ingimundarsson, þjálfari Keflvík- inga, eftir leikinn. „Í fyrri hálfleik hrundi vörnin þegar kom eitthvað einbeitingarleysi um tíma en svo hristist þetta saman hjá okkur. Við skiptum ört inn svo að leikurinn var hraður og þá er erfitt að eiga við okkur hérna í Keflavík. Við höfum samt ekki getað notað alla okkar leikmenn í vetur vegna meiðsla en vonandi verður það í lagi því við höf- um ekki verið að spila neitt vel að undanförnu en þetta er vonandi allt á uppleið.“ KR-ingar sprungu á limminu HAMAR í Hveragerði er kominn í 4-liða úrslit í bikarkeppni KKÍ eftir ævintýralegan 87:83 sigur á Íslandsmeisturum KR á sunnudags- kvöldið. Chris Dade fór á kostum í liði Hamars og skoraði 46 stig og munaði um minna fyrir heimamenn. Litlu munaði að KR-ingar næðu að sigra, komust tveim stigum yfir þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Heimamenn náði hins vegar að klóra í bakkann á æsi- spennandi lokamínútum, unnu og eru ósigraðir á heimavelli í vetur. Helgi Valberg skrifar Stefán Stefánsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.