Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 12

Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 12
ÍÞRÓTTIR 12 B ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Duncan Ferguson í slagsmálum við þjófa DUNCAN Ferguson, knattspyrnumaður hjá Everton, meiddist lít- illega aðfaranótt sunnudagsins þegar hann lenti í átökum við inn- brotsþjófa á heimili sínu. Ferguson kom að tveimur mönnum í húsi sínu skömmu eftir miðnætti og viðskiptum þeirra lauk með því að annar innbrotsþjófanna komst undan á flótta en hinn liggur á sjúkra- húsi, enda er Duncan Ferguson með stærri og sterkari mönnum í ensku knattspyrnunni. Sjálfur varð hann fyrir áverkum á andliti en þurfti ekki að leita læknisaðstoðar vegna þeirra. Talsmaður lögregl- unnar í Lancashire-sýslu sagði að húseigandinn hefði sýnt bæði hug- rekki og ábyrgð í samskiptum sínum við hina óvelkomnu gesti. Roma fékk óskabyrjun gegn nýlið-um Atalanta sem hafa komið mjög á óvart í vetur. Marco Delv- ecchio skoraði eftir aðeins 40 sek- úndna leik. Damiano Tomassi kom Roma í 2:0 fyrir hlé en þrátt fyrir að Cristiano Zanetti fengi rauða spjaldið um miðjan síðari hálfleik hélt topp- liðið fengnum hlut í ausandi rigningu á velli sem líktist moldarflagi. „Mínir menn sýndu hvað í þá er spunnið og spiluðu mjög vel gegn sterkum mótherjum. Staða okkar er góð í augnablikinu en það er löng leið framundan,“ sagði Fabio Capello, þjálfari Roma. Lið hans var hið eina í hópi átta efstu liða deildarinnar sem vann um helgina. Leikur Juventus og Fior- entina var sveiflukenndur því Fior- entina komst í 2:0 og Juventus síðan í 3:2 áður en Enrico Chiesa jafnaði fyr- ir Fiorentina með sínu öðru marki þegar enn lifði tæpur hálftími af leiknum. Filippo Inzaghi skoraði tvö marka Juventus. AC Milan og Inter skildu jöfn, 2:2, í miklum nágrannaslag þar sem Inter náði tvívegis forystunni með glæsi- legum mörkum frá Hakan Sukur og Luigi Di Biagio. Það voru Zvonimir Boban og Oliver Bierhoff sem svör- uðu fyrir Milan. Angelo Peruzzi, markvörður Laz- io, var rekinn af velli í lok fyrri hálf- leiks þegar lið hans tapaði mjög óvænt á heimavelli, 1:2, fyrir nýliðum Napoli. Parma varð fyrir svipuðu áfalli gegn Reggina, missti Stefano Torrisi af velli með rautt spjald, og beið lægri hlut, 0:2. Sjöundi sigur Real í röð Valencia og Real Madrid eru kom- in fjórum stigum á undan næsta liði, meisturum Deportivo La Coruna, eftir leiki helgarinnar í spænsku knattspyrnunni. Toppliðin unnu sína leiki en Deportivo beið lægri hlut fyr- ir Valladolid, 3:1. Valencia þurfti að hrista af sér auð- mýkjandi ósigur gegn botnliði 3. deildar, Guadix, í bikarkeppninni í síðustu viku, og tókst með því að leggja Racing Santander að velli, 1:0. Norski sóknarmaðurinn John Carew hélt uppteknum hætti og skoraði sig- urmarkið fyrir Valencia undir lok fyrri hálfleiks. Real Madrid, sem á leik til góða á Valencia, vann góðan útisigur á hinu sterka liði Alaves, 3:1, og hefur nú sigrað í síðustu sjö deildaleikjum sín- um. Raúl og Guti skoruðu tvö mark- anna og eitt var sjálfsmark. Barcelona er í fjórða sætinu, fimm stigum á eftir Real og Valencia, og vann Real Oviedo á útivelli, 3:2. Pat- rick Kluivert skoraði tvö markanna og Rivaldo eitt en tvö mörk heima- liðsins seint í leiknum voru nálægt því að slá Barcelona út af laginu. Þórður enn á bekknum Þórður Guðjónsson fékk ekki tæki- færi hjá Las Palmas sem vann óvæntan útisigur á Celta Vigo, 1:0. Hann sat á varamannabekknum allan tímann og það hefur oft orðið hlut- skipti hans í vetur. Nýliðar Las Palm- as hafa komið mjög á óvart og eru í níunda sæti eftir þennan sigur en flestir spáðu þeim falli fyrir tímabilið. Augljós batamerki voru á botnliði Real Sociedad í fyrsta leiknum undir stjórn Johns Toshacks. Það mátti þó sætta sig við jafntefli, 1:1, við Zarag- oza á heimavelli en hélt lengi eins marks forystu, manni færri. Reuters Clarence Seedorf, framherji Internazionale, og Francesco Coco, varnarmaður AC Milan, kljást í Mílanóslagnum á San Síró á sunnudagskvöldið. FÓLK  HOSSAM Hassan, knattspyrnu- maður frá Egyptalandi jafnaði lands- leikjaheimsmet Lothars Matthäus frá Þýskalandi á laugardaginn. Hann lék sinn 150. landsleik þegar Egyptar sigruðu Sameinuðu arabísku fursta- dæmin, 2:1, í vináttulandsleik í Kaíró. Í kvöld slær Hassan metið þegar Egyptar fá Zambíu í heimsókn og þar sem þeir spila fjóra leiki til viðbótar á næstu vikum er ljóst að hann getur bætt það verulega.  MARTIN Palermo, leikmaður Boca Juniors og argentínska lands- liðsins í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í tveggja stunda samfélags- þjónustu í Uruguay. Hann er stadd- ur þar í fríi og sló ljósmyndara sem tók mynd af honum og unnustu hans á diskóteki.  EDMUNDO, knattspyrnumaður- inn litríki frá Brasilíu, er kominn til Ítalíu en hann hefur verið lánaður frá Vasco da Gama til Napoli út þetta tímabil. Edmundo lék með Fiorent- ina 1997–1999 en hélt heimleiðis eftir alls kyns uppákomur, innan vallar sem utan.  GABRIEL Batistuta, sem hefur skorað 10 mörk í 12 leikjum fyrir Roma í ítölsku knattspyrnunni í vet- ur, gæti þurft að gangast undir upp- skurð á hné. Fari svo, leikur hann ekki meira á þessu tímabili, sem yrði mikið áfall fyrir Roma. Án hans vann Roma þó góðan útisigur á Atalanta á sunnudaginn, 2:0.  DENNIS Bergkamp, leikmaður Arsenal, er með helmingi hærra kaup á viku en allir leikmenn og starfslið Carlisle til samans. En mun- urinn á liðunum var aðeins eitt mark þegar upp var staðið.  NIGEL Spackman var í gær ráð- inn knattspyrnustjóri 1. deildarliðs Barnsley í staðinn fyrir Dave Bassett sem hætti störfum í desember. Spackman stýrði áður Sheffield Uni- ted en hefur að undanförnu þjálfað enska unglingalandsliðið. ROMA náði átta stiga forystu í ítölsku knattspyrnunni á sunnudag- inn þegar liðið sigraði Atalanta, 2:0, á útivelli í toppslag deildar- innar. Sjö stig skildu liðin að fyrir leikinn og eins og staðan er í dag virðist aðeins Juventus eiga möguleika á að fylgja Rómverjum eftir í baráttunni um titilinn. Juventus varð að láta sér nægja jafntefli, 3:3, við Fiorentina á heimavelli en er í öðru sætinu. Roma með átta stiga forystu Eftir Bosman-dóminn svokallaðafyrir fimm árum hefur verið óheimilt að setja takmarkanir á fjölda leikmanna frá löndum innan EB, en ákveðinn kvóti hefur verið á leikmenn utan þess. Það hefur verið undir ákvörðun sérsambands viðkomandi íþróttagreinar komið hversu marga leikmenn frá Austur-Evrópu eða öðr- um heimsálfum sé heimilt að nota. Þeir leikmenn frá löndum utan EB sem þegar eru samningsbundnir þýskum félögum halda fullum rétti og mega leika áfram í landinu, sam- kvæmt þessum nýju reglum, en þýska útlendingaeftirlitið mun vísa frá umsóknum um atvinnuleyfi fyrir nýja leikmenn. Knattspyrnusamband sjálfsstjórn- arhéraðsins Saxlands hefur þegar samþykkt þessar reglur, forystu- mönnum þýska knattspyrnusam- bandsins til lítillar ánægju. Þar á bæ vilja menn fá undanþágu fyrir 2. deild, og jafnvel fyrir 3. deild líka. „Knattspyrnan er ekki sambærileg við aðrar íþróttagreinar,“ segir Hans- Georg Moldenhauer, varaforseti þýska knattspyrnusambandsins. Tilgangurinn með þessum nýju reglum er að gefa ungum leikmönn- um í Þýskalandi betri tækifæri til að komast að. Margir hafa áhyggjur af því að með sífellt vaxandi straumi út- lendinga til þýskra íþróttafélaga sé sí- fellt meira þrengt að heimamönnum. Heiner Brand, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur lýst yfir mikilli ánægju með nýju reglurnar. „Þetta er mjög jákvætt og þýðir að okkar efnilegu leikmenn fá fleiri tækifæri til að þroska sig í 2. deild,“ segir hann. Þess má geta að ítalska knatt- spyrnusambandið setti sams konar reglu fyrir 3. deildarkeppnina þar í landi. Sú ákvörðun var hinsvegar dæmd ólögleg af borgaralegum dóm- stóli skömmu fyrir áramótin. Vilja tak- marka fjölda út- lendinga ÍÞRÓTTAFORYSTAN í Þýskalandi hefur í hyggju að breyta reglum um hlutgengi útlendinga í þýskum félagsliðum. Samkvæmt til- lögum sem þar liggja fyrir verður félögum sem ekki eru í efstu deild í viðkomandi íþrótt óheimilt að ráða til sín leikmenn frá löndum ut- an Evrópubandalagsins. FÓLK  HELGI Sigurðsson lék ekki með Panathinaikos, sem gerði jafntefli, 1:1, við AEK í grísku deildakeppn- inni í knattspyrnu á sunnudaginn.  RONNY B. Petersen, danski knattspyrnumaðurinn, sem lék með Fram síðasta sumar, er kom- inn til sænska úrvalsdeildarliðsins Trelleborg. Hann verður þar til reynslu um skeið.  ENSKA úrvalsdeildarliðið West Ham hefur komist að samkomulagi við 1. deildarliðið Blackburn um leikmanna skipti. Franski væng- maðurinn Marc Keller fer frá Lundúnarliðinu en skoski lands- liðsmaðurinn Christian Dailly fer til West Ham.  ÍTALSKI landsliðsmaðurinn Christian Panucci mun leika með franska meistaraliðinu Mónakó það sem eftir lifir af keppnistíma- bilinu. Panucci var upphaflega lánaður til enska liðsins Chelsea frá ítalska liðinu Inter Milanó en hefur fengið fá tækifæri hjá Chelsea að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.