Morgunblaðið - 11.01.2001, Síða 1
2001 FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KNATTSPYRNA: INDRIÐI OG GYLFI ÞURFA Á AÐSTOÐ AÐ HALDA / C3
RÓBERT Julian Duranona getur að öllum lík-
indum leikið með íslenska landsliðinu á HM í
Frakklandi þrátt fyrir nárameiðslin sem hann
varð fyrir í öðrum leiknum gegn Frökkum á
Akureyri. Hann fer ekki með liðinu á æfinga-
mótið á Spáni í dag heldur verður eftir hér
heima. Meiðsli eiga að jafna sig í tíma áður en
haldið verður á HM. Að sögn Brynjólfs Jóns-
sonar, læknis íslenska liðsins, er útlitið mjög
gott. „Duranona fer ekki til Spánar en æfir vel
hér heima á meðan og heldur sér í formi, og á
að vera í lagi þegar farið verður til Frakk-
lands,“ sagði Brynjólfur við Morgunblaðið.
Hann sagði ennfremur að ástand leikmanna ís-
lenska liðsins væri mjög gott í heildina og engin
teljandi meiðsli hrjáðu aðra leikmenn en
Duranona.
Gott útlit með
Duranona
Gunnleifur
síðastur
inn í byrj-
unarliðið
GUNNLEIFUR Gunnleifsson,
markvörður frá Keflavík, var síðasti
maðurinn sem Atli Eðvaldsson valdi
í byrjunarlið sitt, sem mætir
Úrúgvæ í Cochin á Indlandsmótinu í
dag kl. 12 að íslenskum tíma, 17.30
að staðartíma. Fyrir lokaæfinguna í
gær sagði Atli í stuttu spjalli við
Morgunblaðið, að hann og Ásgeir
Sigurvinsson, aðstoðarmaður hans,
myndu ákveða það á æfingunni hvort
Gunnleifur eða Fjalar Þorgeirsson
stæði í markinu.
Gunnleifur varð fyrir valinu. Í öft-
ustu línunni fyrir framan hann verða
Gunnlaugur Jónsson, Uerdingen,
sem hefur leikið sex landsleiki,
Bjarni Þorsteinsson, KR (1), sem
eru miðverðir, og Sverrir Sverris-
son, Fylki (14), og Kjartan Antons-
son, nýliði, ÍBV. Á miðjunni verða
Þórhallur Hinriksson, KR (2), Ólafur
Örn Bjarnason, Grindavík (4), og
Sigurvin Ólafsson, KR (1). Á vinstri
vængnum verður Tryggvi Guð-
mundsson, Tromsö (20), og á þeim
hægri Sigþór Júlíusson, KR (1).
Guðmundur Benediktsson, KR,
verður í fremstu víglínu, en hann
hefur leikið sjö landsleiki.
Eins og sést á þessu þá er reynsl-
an ekki mikil hjá leikmönnum liðs-
ins.
Varamenn eru Fjalar, Fram (0),
Valur Fannar Gíslason, Fram (1),
Hreiðar Bjarnason, Breiðabliki (1),
Veigar Páll Gunnarsson, Strömgods-
et (0), Sævar Þór Gíslason, Fylki (0),
og Helgi Valur Daníelsson, Peter-
borough (0).
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálf-
ari í handknattleik, tilkynnti í gær
hvaða sextán leikmenn færu á
Spánarmótið sem hefst í Zaragoza
á morgun. Þeir sem hvíla úr 21
manns æfingahópnum eru Róbert
Julian Duranona, sem er meiddur,
og þeir Sebastian Alexandersson,
Þórir Ólafsson, Gunnar Berg Vikt-
orsson og Róbert Gunnarsson. End-
anlegur hópur fyrir HM verður
ekki valinn fyrr en eftir leikina við
Bandaríkin hér heima 18. og 19.
janúar.
Íslenska liðið fór til Spánar í
morgun og leikur fyrst gegn Egypt-
um á morgun, föstudag, síðan gegn
Spánverjum á laugardag og loks
gegn Norðmönnum á sunnudag.
Allar þessar þjóðir taka þátt í loka-
keppni HM í Frakklandi og Egypt-
ar eru þar í riðli með Íslendingum.
■ HM-hópurinn / C8
Sextán valdir
til Spánarfarar
Íslendingar fá ekki tækifæri til aðleika landsleik við Indónesíu á
Indlandi. Ástæðan fyrir því er að í
gær var liði Indó-
nesíu vísað úr
keppni fyrir að
koma hingað með
ólöglegt landslið.
Það er aðeins skipað sjö indónes-
ískum ríkisborgurum, hinir eru
Ástralar og Tælendingar eftir því
sem næst verður komist.
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf-
ari Íslands, sagði að þessi breyting
geti haft áhrif á gang mála. Þar
sem við mætum Indlandi á laug-
ardaginn komum við þreyttir til
leiks gegn óþreyttum Indverjum.
„Það getur síðan komið okkur til
góða, að Indverjar leika gegn
Úrúgvæmönnum á mánudaginn en
þá hafa Úrúgvæmenn fengið fjóra
daga að jafna sig eftir leikinn gegn
okkur.
Við stefnum á að ná viðunandi
úrslitum úr báðum leikjunum,
komast áfram,“ sagði Atli.
Það eru því þrettán lið sem leika
á Indlandsmótinu, þar sem Kamer-
ún og Íran voru hætt þátttöku.
Morgunblaðið/Einar Falur
Á morgunæfingu knattspyrnulandsliðins í gær ræddi Atli Eðvaldsson, þjálfari liðsins, við leik-
menn um mikilvægi þess að ná upp einbeitingu í liðinu enda væri erfið barátta framundan.
Indónesíu var
vísað úr keppni
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
frá Indlandi