Morgunblaðið - 11.01.2001, Qupperneq 7
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 2001 C 7
Haukar
halda
sínu striki
Á Ásvöllum tóku Haukar
á móti Þór/KA. Fyr-
irfram var búist við
öruggum
sigri
Hauka-
stúlkna og
sú varð
raunin, lokatölur þeim í
hag, 26:20. Haukar hófu
leikinn af krafti, skoruðu
þrjú fyrstu mörkin og
fljótlega höfðu þær náð
fimm marka forskoti 6:1.
Með sterkri vörn og vel
útfærðum hraðaupp-
hlaupum héldu þær for-
ystu sinni, allt þar til Ak-
ureyrarstúlkur tóku við
sér og minnkuðu muninn
með góðum endaspretti
þar sem þær skoruðu sex
mörk á móti einu marki
Hauka. Hálfleikstölurnar
12:10 og gestirnir í Þór/
KA enn vel inni í leiknum.
Haukar byrjuðu síðari
hálfleikinn vel um miðjan
hálfleikinn höfðu þeir náð
sjö marka forystu sem var
einfaldlega of mikið fyrir
Akureyrarstúlkur.
Haukastúlkur áttu
margar hverjar ágætan
leik, þ.á m. Harpa Mel-
sted, Bára Halldórsdóttir
og Hanna G. Stefáns-
dóttir. Í liði Þórs/KA voru
Inga Sigurðardóttir og
Ásdís Sigurðardóttir
sterkastar, auk þess sem
markvörðurinn Sigur-
björg Hjartardóttir varði
oft á tíðum vel úr opnum
færum.
Steinn Viðar í KA
KARLALIÐ KA í knattspyrnu hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir
komandi tímabil eftir að Steinn Viðar Gunnarsson, sem leikið hefur
með Leiftri, skrifaði undir eins ár samning við Akureyrarliðið.
Hann er ekki alveg ókunnugur herbúðum KA því hann lék með lið-
inu í tvö ár áður en hann skipti aftur í Leiftur.
Steinn er 24 ára gamall og hefur verið einn traustasti varnar-
maður Leiftursmanna undanfarin ár en hann hefur leikið 52 leiki í
búningi Ólafsfjarðarliðsins í efstu deild og skorað tvö mörk.
ÓLAFUR Haraldsson og Guðjón
L. Sigurðsson dæma landsleiki
Færeyja og Sviss sem fram fara í
Þórshöfn og Skálum á morgun og
laugardag. Leikirnir eru liður í for-
keppni að undankeppni EM í hand-
knattleik.
STEFÁN Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson dæma leik í Meistara-
deild kvenna í handknattleik í
Slóveníu á laugardag. Það er við-
ureign RK Krim Neutro Roberts
frá Slóveníu og ungverska liðsins
Györi Graboplast.
ÞÓR sigraði Nökkva í víta-
spyrnukeppni í úrslitaleik hins ár-
lega Bautamóts í innanhússknatt-
spyrnu í meistaraflokki karla á
Akureyri um síðustu helgi. Leik-
urinn sjálfur endaði 3:3. Níu félög
af Norðurlandi tóku þátt í mótinu
og sendu alls 20 lið til keppni.
KNATTSPYRNUMENNIRNIR
Sámal Joensen og John Petersen
úr Leiftri Ólafsfirði og Uni Arge
úr ÍA hafa verið valdir í færeyska
landsliðið sem mætir Svíþjóð á
Norðurlandamótinu í knattspyrnu
á La Manga í lok janúar. Jens
Martin Knudsen, fyrrum mark-
vörður og þjálfari Leifturs, er
einnig í liðinu, sem og Pól Thor-
steinsson sem lék með Val síðasta
sumar en er farinn aftur til Fær-
eyja.
AXEL Geerken, varamarkvörð-
ur Kiel, þýsku meistaranna í hand-
knattleik, hefur gert tveggja ára
samning við Wetzlar, lið Sigurðar
Bjarnasonar, og fer þangað að
þessu tímabili loknu. Geerken er
28 ára og hefur leikið 9 landsleiki
fyrir Þýskaland. Tækifæri hans
með liði Kiel eru takmörkuð vegna
frammistöðu Steinars Ege, norska
landsliðsmarkvarðarins.
FÓLK
Það tók bæði liðin lungann úrfyrri hálfleik að liðka leik sinn
en sóknarleikur FH-stúlkna var
ágætur til að byrja
með með Hafdísi
Hinriksdóttur í
miklum ham en síð-
an virtist færast
deyfð yfir leikmenn, ef ekki þreyta.
Sóknarleikur Framstúlkna var
markvissari með Hafdísi Guðjóns-
dóttur í broddi fylkingar enda náðu
þær fjögurra marka forskoti um
miðjan fyrri hálfleik, 4:9, þegar
hvorki gekk né rak í sókn FH auk
þess að vörnin var oft illa á verði.
Greinilegt var að Hafnfirðingum
hafði verið gerð grein fyrir að sigur
var ekki fjarlægur möguleiki því eft-
ir hlé börðust þær mikið og náðu að
minnka muninn í eitt mark, 15:16,
þegar rúmar fimm mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik. En þar við
sat því níu af næstu tíu sóknum fóru
í súginn, reyndar þrjú skot í stöng.
Framstúlkur eru of reyndar til að
láta bjóða sér slíkt tvisvar og náðu
fimm marka forskoti á næstu fimm
mínútum þrátt fyrir að Kristín
María Guðjónsdóttir verði vel í
marki FH. Þar með brustu varnir
því síðustu fimmtán mínúturnar
skoruðu liðin samtals 22 mörk en
sigur Fram var ekki í hættu.
„Þetta var ekki nógu gott,“ sagði
FH-ingurinn Hafdís, sem sjálf var
langbest Hafnfirðinga og sýndi góða
baráttu. Sem kunnugt er hætti bar-
áttujaxlinn Gunnur Sveinsdóttir
með liðinu með litlum fyrirvara en
Hafdís vildi ekki kenna því um ófar-
irnar. „Það kemur auðvitað alltaf
maður í manns stað og mestu máli
skipti í þessum leik að við vorum
alltaf skrefi á eftir þeim. Ég held
persónulega að þetta hafi verið
áhugaleysi þó að ég geti ekki fullyrt
neitt um það en þetta geta líka verið
byrjunarerfiðleikar,“ bætti Hafdís
við. Ásamt henni voru markverðirnir
Kristín María og Jolanta Slapikiene
góðar ásamt Björk Ægisdóttur.
„Ég er ágætlega sáttur við hvern-
ig liðið kemur úr jólafríinu en það
gerir samt of mikið af tæknilegum
mistökum,“ sagði Gústaf Björnsson,
þjálfari Fram, eftir leikinn. „Það
skýrist að vísu með því að botninn er
dottinn úr leikæfingunni en kemur
fljótlega upp aftur og mér finnst lið-
ið hafa bætt sig í hléinu,“ bætti
Gústaf við enda æfðu stúlkurnar 6
sinnum í viku allt jólafríið eftir að
hafa fengið fjögurra daga frí fyrir
jól. „Leikurinn bar þess merki að
það er búið að vera langt hlé en samt
var hraðinn í leiknum ágætur og
mikið af mörkum. Það var mikilvægt
fyrir okkur að vinna,, því það munaði
ekki nema tveimur stigum á þessum
liðum fyrir leikinn.“ Hugrún Þor-
steinsdóttir markvörður og systurn-
ar Hafdís og Díana Guðjónsdætur
voru bestar hjá Fram en margar
stúlkur fengu að spreyta sig og voru
ágætar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafdís Guðjónsdóttir smeygir sér milli Sigrúnar Gilsdóttur og Hildar Pálsdóttur og skorar eitt
þriggja marka Fram gegn FH í Kaplakrika í gærkvöldi.
Fram vann
fyrsta slaginn
JÓLIN virðast hafa farið betur í Framstúlkur en stöllur þeirra úr FH
ef marka má leik liðanna, sem mættust í fyrsta leik eftir jólafrí í
Kaplakrika í gærkvöld. Það var léttara yfir leik gestanna og einu
sinni tókst heimasætunum að minnka muninn í eitt mark en þá
hrundi leikur þeirra og Fram vann öruggan 26:30 sigur.
Stefán
Stefánsson
skrifar
KNATTSPYRNA
England
Deildabikar, undanúrslit, fyrri leikur:
Crystal Palace - Liverpool...................... 2:1
Andrejs Rubin 56., Clinton Morrison 77. -
Vladimir Smicer 78.
1. deild:
Blackburn - Preston................................. 3:2
Spánn
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Racing Santander - Athletic Bilbao........ 2:0
Extremadura - Espanyol......................... 1:1
Guadix - Granada ..................................... 0:0
Leganes - Celta Vigo................................ 1:2
Real Murcia - Zaragoza ............................2:3
Torrelavega - Barcelona...........................0:1
Tenerife - Mallorca ...................................0:2
BLAK
Bikarkeppni karla, 8-liða úrslit:
Þróttur R. - ÍS ...........................................0:3
(18:25, 23:25, 22:25).
KA - KA b...................................................3:0
(25:20, 25:22, 25:22).
Stjarnan - Hrunamenn............................ 3:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin:
Charlotte - Chicago.............................102:95
Að loknum þremur framlengingum.
Toronto - Houston...............................91:110
Atlanta - Seattle ....................................86:95
New Jersey - Philadelphia .................87:104
Milwaukee - Washington......................99:95
Orlando - San Antonio ........................95:112
Utah - Indiana .....................................103:99
Vancouver - Denver ..........................105:112
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Epson-deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur - Valur/Fjölnir 20
Hveragerði: Hamar - Haukar ...................20
Seljaskóli: ÍR - Njarðvík............................20
Akureyri: Þór - KFÍ..............................20.30
1.deild karla:
Kennaraháskólinn: ÍS - ÍA ...................20.15
BLAK
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit kvenna:
Fylkishöll: Fylkir - HK Reykjavík ...........21
Í KVÖLD
Freyr
Bjarnason
skrifar