Vísir - 02.12.1978, Side 7
VISIR Laugardagur 2. desember 1978
Bræóraborgarstíg 16 Síml 12923-19156
Pétur Gunnarsson
ÉG UM MlG FRÁMÉRHL MÍN
í skáldsögunni Ég um mig frá mér til mín halda persónur og
leikendur úr Punktinum áfram ferðalagi sínu gegnum lífið, og
nýir farþegar slást í hópinn. í miðju atburðarásarinnar stendur
Andri, barmafullur af komplexum kynþroskaskeiðsins —
búinn að slíta barnsskónum án þess að passa í fulloröins-
skóna — eiginlega veit hann ekki í hvorn fótinn hann á að
stíga.
Þetta er sjálfstætt framhald af hinni frægu metsölubók
Péturs, Punktur punktur komma strik, sem kom út í þremur út-
gáfum á tæpum þremur mánuðum. Eignist nýju bókina áður
en það verður um seinan.
ÉG UM MlG FRÁMÉRTIL MÍN
PÉTUR GUNNARSSON
Ólafur Gunnarsson
AflLLJÓN
PRÓSENT
AfENN
Engilbert Ármannsson er stórkaupmaður,
peningafursti og milljón prósent maður
með dollaramerki í augunum og uppá-
tektasamur ýkjumaður. Kjartan er and-
stæða hans og á milli þeirra stendur
Ernir, sonur Kjartans. Hann langar til að
verða milljón prósent, en hann langar líka
til að verða skáld. Milljón prósent menn er
þroskasaga Ernis, en lýsir jafnframt heimi
þeningamannsins á gráglettinn hátt og af
óbeislaöri gamansemi.
Þórarinn Eldjárn
Vc&KeyJUÆWL
„Disneyrímur eru stórviðburóur, þær eru
spegill gerður úr orðum ...“
Ó.M.J. / Vísir
„Ég man ekki eftir bók sem ég hef haft
eins gaman af að lesa upphátt...“
A.l. / Dagblaðið
„Samtíminn með róttækri félagslegri út-
tekt á fjölmiðlum er viöfangsefni skálds-
ins, hið nýja vín sem hellt er á gamla belgi
rímnakveðskapar... Þórarinn Eldjárn er
gamansamur í besta lagi... Disneyrímur
eru ortar af ærnum hagleik ..
Á.B. / Þjóðviljinn
'ýA**l$t***Ccc
ÞÓRARINN ELDJÁRN
IÐUNN
Sálumessa 77
SKALDSACiA l'Ok’SII l\\'
IDUMN \NTO\SSC )\
Þorsteinn Antonsson
Sálumessa
Þau áttu allt til alls — einbýlishús og
nýjan bíl. Maður hennar rak eigið fyrir-
tæki sem gekk vel og þau áttu tvö mann-
vænleg börn. Hvernig getur konu í þessari
aðstöðu dottið í hug að fyrirfara sér? Er
kannski hægt að krefjast einhvers meira
af lífinu?
Ung kona deyr um nótt í húsi í Reykjavík.
Lögreglan er kvödd á vettvang. Var þetta
slys? ÓhappatilviIjun? Morð? Daginn eftir
er handtekinn maður og hnepptur í gæslu-
varðhald. — En er hann sá seki?
SkáldaÖ / skörðin
Ási í Bæ segir frá aflaklóm og
andans mönnum
Af sinni alkúnnu frásagnargleöi og góð-
látlegu kímni bregöurÁsi upp hverri svip-
myndinni annarri fróðlegri og skemmti-
legri af göldróttum forfeðrum, vinum,
kunningjum, furðufuglum, skáldum og
skipstjórum: Stefán Hörður Grímsson,
Steinn Steinarr, Sigurbjörn Sveinsson,
Baldvin Björnsson, Oddgeir Kristjánsson,
Árni úr Eyjum, Binni í Gröf, o.fl. o.fl. aö
ógleymdum öllum yndislegu konunum
sem koma við sögu í þessari bráð-
skemmtilegu og fróðlegu bók.
Árni Elfar hefur myndskreytt bókina af
sannri viröingu fyrir efni hennar og anda.
Thor Vilhjálmsson
KJARVAL
Þessi bók er ævintýri líkust, saga eins
mesta og einkennilegasta listamanns,
sem uppi hefur verið hér á landi, í með-
ferð höfundar, sem skrifar svipmestan og
hugmyndaríkastan stíl sinnar kynslóöar.
Thor rekur sögu Kjarvals, lýsir háttum
hans og list á afar persónulegan hátt,
gerir hvert smáatriði lifandi og sögulegt,
þó að stíllinn sé yfirleitt hraðari en oft
endranær í verkum hans. Að miklu leyti er
bókin sprottin af nánum kynnum þessara
manna, löngum samtölum þeirra og ferða-
lögum saman.
Bókina prýða margar af hinum listrænu
Ijósmyndum, sem Jón Kaldal tók af
Kjarval.
BroddiJóhannesson
Qfolitur
Fjölbreytt safn persónulegra hugleiðinga
og frásagna. í öguðu, listrænu ritformi
lýkur höfundur upp hug sínum fyrir les-
anda, iðulega með því að hnita saman
veigamikil sjónarmið og dýrmæta reynslu
eða minnileg atvik. Náin tengsl viö
náttúru landsins og líf þjóðarinnar, m.a.
starfshætti hennar, birtast hér með af-
brigðum vel. Öll er bókin mikilsvert fram-
lag til íslenskrar ritmenntar af skyldum
toga.