Vísir - 02.12.1978, Blaðsíða 10
10
r
l't fcj I ;l
Otgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjórí: Daviö Guömundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
úlafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snaeland Jónsson. Fréttastjóri
erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Umsjón meö Helgarblaöi: Arni
Þórarinsson. Blaöamenn: Berglind Asgeirsdóttir,Edda Andrésdóttir, Gisli
Baldur Garðarsson, Jónlna Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrin Páls-
dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Stefán Kristjáns-
son, Saemundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson.
Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Otlit og hönnun: Jón
Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson.
Laugardagur 2. desember 1978VISHI
1 ’ *
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur: Síöumúla 8.
Simar 88411 og 82160.
Atgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611.
Ritstjórn: Siðumúla 14 slmi 86611 7 linur
Askriftargjald er kr. 2400,- á mánuöi innanlands.
Verð i lausasölu kr. 120 kr. eintakið Prentun Blaðaprent h/f.
Að framtíð skal hyggja
Hugmyndir Braga Arnason-
ar, prófessors, um vetnisfram-
leiðslu á (slandi, sem kynntar
voru í Vísi í gær, hafa vakið
verðskuldaða athygli. Augljóst
er að ef þær verða að veruleika
á næstu tveim áratugum, geta
þær gjörbreytt efnahagslegri
stöðu þjóðarinnar, þar sem við
flytjum nú inn eldsneyti, sem
nemur um það bil helmingi
orkuþarfar okkar.
Mikils er um vert, að ráða-
menn orkumála og fjármála
þjóðarinnar taki þessi mál til
gaumgæfilegar athugunar og
feli Braga og öðrum vísinda-
mönnum að gera ítarlega
grundvallarathugun á því,
hvernig innlent eldsneyti geti
leyst olíu og bensín af hólmi á
næstu árum.
I skýrslu sinni bendir Bragi
Árnason á, að það taki þjóðina
talsverðan tíma að hverfa frá
núverandi eldsneytiskerf i og
yfir í vetni eða eitthvert anað
tilbúið eldsneyti. Þróun orku-
mála bendi þó til að þetta sé
f ramkvæmanlegt á næstu tveim
áratugum, en tuttugu ár séu
ekki langur tími í þessum efn-
um.
Ljóst er að endurskoða þarf
allar virkjunaráætlanir með
það fyrir augum, að um næstu
aldamót þurfi ef til vill að vera
lokið við að virkja helminginn
af allri virkjanlegri vatnsorku
landsins.
Núverandi farartækjum
verður ekki breytt í einu vet-
fangi né heldur því dreifikerfi,
sem nú er notað fyrir eldsneyti
hér á landi. Allt þetta þarf að
athuga sem fyrst og leggja drög
að breytingum þeim sem nauð-
synlegar verða.
Jafnframt þessum athugun-
um þarf að hyggja að ábending-
um ýmissa annarra aðila varð-
andi nýja tækni og möguleika á
nýtingu innlendrar orku í stað
innf lutts eldsneytis. Þar á með-
al eru ábendingar Gísla Jóns-
sonar, raf magnsverkf ræðings,
um möguleika til nýtingar á
raforku til f lutninga hér á landi.
Hann hefur fram að þessu
talað f yrir dauf um eyrum ráða-
manna og þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir hafa opinberir rann-
sóknaraðilar enn ekki fengið
leyfi til þess að kaupa rafknúin
farartæki erlendis frá, til þess
að þeir geti gert raunhæfar
rannsóknir á möguleikum raf-
orkunnar í sambandi við rekst-
ur ýmissa farartækja. Það ætti
ekki að vera stór biti að kyngja
fyrir ríkissjóð að kaupa eins og
einn rafmagnsbíl fyrir Háskól-
ann í þágu þessa merka málef n-
is, þegar tugir venjulegra bíla
eru keyptir árlega fyrir ýmsar
stofnanir ríkisins. Neitun þess-
arar beiðni lýsir fyrst og f remst
skilningsskorti stjórnvalda.
Með tilslökunum í innf lutnings-
ákvæðum væri hægt að auð-
velda Háskólanum að eignast
slíkt farartæki, þannig að hægt
væri að gera nauðsynlegar til-
raunir og athuganir á möguleik-
um og rekstursgrundvelli raf-
knúinna farartækja hér á landi.
Raforka er nú notuð víða
erlendistil þess að knýja farar-
tæki með góðum árangri, eink-
um í innanbæjarakstri og á
stuttum vegalengdum. Við
verðum að fylgjast náið með því
sem er að gerast í þessum efn-
um erlendis en jafnframt að
gera okkar eigin tilraunir varð-
andi nýtingu raforku og annarr-
ar framtiðarorku, sem við get-
um framleitt úr innlendum
orkulindum.
Veldur
hvur
heldur
OFT er þrautaráö aö huga aö
rangri hugmynd til aö finna
nýja hugmynd og skoöa ómögu-
leika til aö rata á nýjan mögu-
leika.
Aö ráöast gegn einhverju sem
telst þurfi vikja útúr tilverunni
reynist iöulega best falliö til að
magna þaö um allan helming,
og einungis sú tilfinning að
maöur sé „aö berjast1. viö”
veröur kannski beinasta leiöin
til mistaka.
Mér kemur þetta i hug þegar
ég hlýöi á þennan óskaplega
söng um „veröbólgu” — sem
greinilega er þaö i dag hér á
landi sem djöfullinn var trúuö-
um á fyrri öldum.
Veröbólga er höfuöverkur
stjórnmálamanna, og stjórn-
málamenn eru upp og ofan á-
gætis menn rétt einsog flestir.
Þeir veljast til aö stjórna, en aö
stjórna þýöir i verunni ekki aö
stjórna, heldur aö framkvæma
dulinn eða hálfdulinn vilja al-
mennings, hrinda þvi i fram-
kvæmd sem almenningur „vill”
— eins þótt hann segist vilja
annaö. Sú atvikarás, sem leiöir
til aö svo tekst titskýrist af lýö-
hylli og þessu dularfulla „ein-
hverju” sem ræöur (ásamt
ööru) hversu menn verja at-
kvæöi sinu. Enda kemur i ljós aö
stundum er sá sterkastur eftir
kosningar sem mestu ámæli
sætti fyrir þær.
Hlutverk leiötoga er allt ann-
aö en stjórna á þennan máta.
Leiötogi leggur sig ekki niöur
viö aö framkvæma „vilja” al-
mennings. Til þess fást nógir.
Aftur á móti laöar hann al-
menning til aö „vilja” þaö sem
hann sjálfur vill, ekki einasta
með góöu', þaö er alltof klunna-
leg aöferö, og auövitaö ekki meö
illu — hinir óhæfustu foringjar
einir freista aö koma vilja sin-
um fram meö hörku: aö beita
valdi lýsir vanmætti — heldur
beinlinis á þann veg aö fólki
finnst aö einmitt þetta sé þaö
sem þaö alltaf hefur viljað
sjálft.
Leiötogi er ekki sterkur af þvi
sem hann gerir, heldur af þvi
- sem hann er. A framboösfund-
um snúa kjósendur vanalega
frambjóöendum, en leiötogi
mundi snúa kjósendunum ef
slikur maöur léti sjá sig I þvi
kompanii.
Leiötogar skjóta sjaldan upp
kolli.
Mig grunar aö veröbólga
haldi áfram að magnast meðan
menn stunda þaö baki brotnu
„aö berjast” viö hana, enda
vafamál aö hagfræöi og tölur
séu rétta aöferöin. Spurning
hvort ekki er auövelöara aö
reikna barn i kvenmann einsog
Sövli kvaðst hafa gert, heldur en
reikna sig útúr veröbólgudæm-
inu.
Samfélag er nefnilega ekki
tölur, heldur fólk!
Sá sem er snjall meö tölur
lagar aö likindum aldrei verö-
bólgu, fremur en hinn sem er
snjall meö fólk. Viö eigum nóg
af góöum reikningsmönnum —
af hinum (til aö vera kurteis
segi ég bara) færra.
Kannski viö prófum
einfeldningslega ellegar jafnvel
ranga hugmynd til að skilgreina
veröbólgu?
Veröbólga er lifsmynstur sem
viö höfum kosiö okkur eftir
seinna striö. Þaö felst i þvi aö
fólki líöur afskaplega vel, en
finnst samt þvl þurfi aö liöa
ennþá betur. Lækning: aö gera
sig ánægö meö aö biöja um of-
boölitiö minna!
Og þegar þú svarar og segir:
„Þaö þýöir ekkert þvi þótt ég
biöji um minna hrifsa hinir bara
þeim mun meira” — þá ansa ég
aö bragöi: Vertu bara svo sér-
góöur aö vilja aö veröbólgan sé
einhverjum öörum aö kenna en
þér, þe.: Ef þiö ætliö ykkur skil-
yröislaust noröur og niöur, elsk-
urnar minar, þá skuluö þiö i þá
reisu á eigin ábyrgð en ekki
mina, punktur!
Þannig tala viötaskuld ein-
ungis börn og einfeldningar —
sem er góöur félagsskapur!
Skynsemi á til að vera svo af-
skaplega heimsk.
Ekki reynist ætiö vel aö lemja
selshausinn i gólfiö, hann getur
gengiö upp viö hvert högg, eins-
og lýst er i Fróðárundrum, enda
varöar mestu hvur lemur, ekki
hvort lamiö er.
Sama gildir um skattsvik:
Þeim mun snjallari brögöum
sem beitt er til aö hafa uppá
skattsvikum þeim mun skæöari
veröa skattsvikararnir. Þeim
mun betur sem menn þjófverja
hús sin þeim mun meira er stol-
ið.
Hitt skortir á um skattveseniö
ekki og taki aö brjóta lög á ný.
Þaö hefur heldur ekki ævinlega
gefist vel. Fangar kunna sumir
á lása og gerast þeim mun
slungnari i þeirri list sem fang-
elsin tiökast rammbyggilegri.
Siguröur Heiödal er sagður
hafa brúkaö önnur ráö þegar
hann stjórnaði Litla-Hrauni fyrr
á árum.
Einhverju sinni bar svo til á
fögrum sumardegi aö menn
komu sem vildu lita á fangana.
En fangarnir voru ekki heima,
höföu brugöið sér á ball uppaö
Selfossi, en áttu aö vera komnir
heim fyrir kl. 11.
— Og ef þeir koma ekki? var
spurt.
— Þá loka ég þá úti! svaraöi
Siguröur.
Eitthvaö annaö en slagbrand-
ar var fyrir hurðum hjá Siguröi
aö þaö veröi aö sjálfsögöum hlut
I augum manna aö ef þeir svfkja
undan skatti sviki þeir engan
nema sjálfa sig. Og um þá sem
stela — annaöhvort er eitthvaö
aö i sálinni ellegar þá beinlinis
vanhagar um þaö sem þeir á-
girnast — fyrir utan hitt aö ekki
er mestu stoliö I innbrotum!
1 þessu samhengi flýgur mér I
hug sú regla að hafa fangelsi
lokuö — sem mér sýnist orka
tvimælis þótt meiningin sé auð-
vitaö sú aö bófarnir foröi sér
(ef sagan er sönn, og hún er
jafngóð ósönn). Hann hefur átt
snefil af þessu fööurlega valdi
sem er svo magnaö aö ekki þarf
aö beita þvi....
Fyrirþvi leyfi ég mér aö efast
um aö hótanir uppræti skattsvik
og talnaleikir veröbólgu.
Ekki var sama hvur reyndi aö
lemja selshausinn i gólfiö á
Fróöá.
Veldur hvur heldur.
—23.11, 1978