Vísir - 09.12.1978, Page 16

Vísir - 09.12.1978, Page 16
16 Laugardagur 9. desember 1978 VISIR VISIR Laugardagur 9. desember 1978 17 Gunnar Reynir kemur til dyra i fylgd meö gráum ketti. Þessi grái köttur sniglast i kringum samtal okkar þetta snjóþunga síödegi. Leikur undir sam- ræöurnar meö léttu slagverki: Búmp þegar hann stekkur á stofuhuröina til aö opna fyrir sér, búmp þegar tónskáldið lokar á eftir honum. Er þetta músikalskur köttur? spyr ég. „Ja hann er ættaður frá sjálfri Guörúnu Á Símonar", segir Gunnar Reynir. „Samt er hann ekki á mjög háu plani raddlega". Einu sinni var Gunnar Reynir Sveinsson spuröur aö þvi hvort hann væri fæddur músíkant. „Ég er aö minnsta kosti fæddur kattavinur", svaraði hann. „ Og kötturinn hefur fögur hljóö. Ég átti einu sinni kött sem var einlægt aö hlaupa upp og niður eftir píanóinu mínu. Siöan langaöi mig til aö búa til músik eins og þá sem þessi köttur samdi á píanóið, en þaö tók mörg ár". I eyrum sumra er engu líkara en mikiö af nútímamúsik sé einmitt samiö og framið af kött- um. Gunnar Reynir semur sina kattamúsik gjarnan i kjallaranum hjá sér. Þar hefur hann komiö sér upp úrvinnslustúdíói með alls kyns græjum til þess aðsetja saman hljóöaf ýmsu tagi og mixar úr þeim músik. Hljóöin fær hann úr mörgum áttum úr náttúrunni, — sum býr hann til sjálfur út um hvipp og hvapp hér heima, önnur gerir hann f sónólógíska institútinu i Utrecht, þar sem hann stundaði nám i elektróniskum tónsmíöum i eitt ár eftir þriggja ára nám í akademiskum tónsmiöum viö tónlistar- háskólann í Amsterdam. Hljóðunum raðar hann svo saman á segulband i tólunum sínum i kjallaranum. Eru þetta ekki voðalega dýr tól? spyr ég. „Viö skulum ekki einu sinni minnast á kostn- aöinn. Þetta er ekki dýrara en bíltík sem gæti fariö á hvolf hérna úti á horni. Menn hafa svo misjafnar intressur. Ég á ekki bíl, hef aldrei átt bíl, mun aldrei eiga bil. Ég myndifrekar fá mér kafbát að skreppa á i sundlaugarnar. En ég á sem sagt þessi tæki og leik mér á þau. Finnst það svakalega gaman. Þaö hefur tekið mig tólf ár aö safna þessu drasli og ég held því áfram ævina út". Kattamúsík, elektróník, framúrstefna eöa hvaö menn kalla þaö er ekki sérgrein Gunnars Reynis. Hann semur verk sem spanna breiöari skala en verk flestra starfsbræöra hans. Til dæmis er hann oröinn eitthvert hagvanasta leikhústónskáld okkar. En kannski umfram allt er hann jasstónskáld islands númer eitt. Þvi er vel við hæfi aö fyrsta breiðskífan meö islenskri jassmúsik sem út kemur hérlendis sé helguö honum og verki hans Samstæö- ur. Þessi plata er aö koma út um þessar mundir á vegum Jassvakningar. I borðstofunni standa f lygillog víbrafónn og til aö hita sig upp fyrir samtalið svingar tónskáldiö svolitiö á víbrafóninn eins og hann geröi i gamla daga þegar hann var á fullu i jass-og danshljóm- sveitum heima og heiman. Og mun reyndargeraað nýju á næstunni. „Ég er á leiöinni með aö stofna niu manna band tii aö spila á jasskvöldum. Þaö hef ég ekki gert síðan '62. Vissulega er þaö tilhlökkunar- efni, — ekki sist vegna þess aö ég ætla aö vinna meö ungu strákunum sem eru að koma inn i jassinn núna. Gömlu góöu jassistunum okkar hefur hætt til aö útiloka ungu mennina i tónlistinni, þannig aö þetta hefur í langan tima verið eins konar eldri- mannaklúbbur. Ég held að það sé hvorugum aðilan- um til góðs". Gunnar Reynir er í slopp þegar við komum, segist vera hálf sloj. Reyndar lá hann i þrjár vikur á gjörgæsludeild i fyrravetur þegar „eitthvert instrú- ment sem heitir bris og maður vissi varla aö væri til" tók upp á þvi aö gera vart viö sig. En fyrr en varir víkur sloppurinn fyrir sveiflunni og af þvi aö ég sé aö hann er aö komast f stuð og veit aö hann er gamali boxari og fyrrum Islandsmeistari i bantam- vikt spyr ég hvort skammdegið hafi áhrif á sálarlif og sköpunargáfu tónskáldsins. Jassmeirihluta á Alþingi „Ekki nema til bóta. Mér finnst vont aö semja i sól. Hérlendis þarf ekki aö hafa miklar áhyggj- ur af þvi aö veöur steli frá manni tima. Rigning verkar sérstaklega vel á mig. Ef hún dettur beint niður. A Islandi er of mikiö um aö hún sé beint i fangiö?’ Bjargar músik þér frá sálar- háska? „Já, göfgandi músik, og jassinn sérstaklega. Jass er sálar- og llkamsbætandi. Einu sinn var ég fárveikur. Þaö var á annan I páskum. Fyrir einhverja slysni setti þulurinn I útvarpirujassplötu á fóninn milli liöa. Aöur en ég vissi af lyftist ég upp úr rúminu, var kominn i fötin og út úr húsinu og kenndi mér einskis meins. Um svona kraftaverk jassins hef ég óteljandi dæmu Helduröu aö jass gæti lika bætt til dæmis stjórn landsins? Vantar sveifluna i rlkisstjórnina? „Stjórnin gæti aö minnsta kosti ekki versnaö viö þaö. Til eru aö visu menn sem fást viö stjórnmál og kunna aö meta jass, eins og Magnús Torfi, og Gunnar Thor og Birgir Isleifur, en þeir eru áreiöanlega ekki.nógu margir.Þaö þyrfti aö vera meirihluti fyrir jass á Alþingi”. hvaö er jass og aö skýra oröiö sjálft. En jassinum tekst betur en annarri tónlist Vesturlanda aö lýsa hugarangri, einmanaleika, djúpri hryggö, æsingi, skyndi- gleöi og öörum taugaviöbrögöum sem einkenna svo mjög öld okkar færibandamanna. Hvort sem viö gerum okkur grein fyrir þvi eöa ekki erum viööll á færibandi. Þaö er ekki bara fólkiö i Straums- vlk”. fyrir aö vera jassisti. En þegar ég fór aö stúdera viö tónlistarhá- skólann I Amsterdam hjá frægasta tónskáldi Hollands sagöi hann viö mig: Jassisti og slag- verksmaöur! Þú ert maöurinn sem mig hefur alltaf vantaö! Og ég fór i skóla til hans og hann fór i skóla til min á grundvelli vöru- skiptajafnaöar. Um þetta samhengi I tónlistinni fjallar Samstæöur”. Hlustað á „Hampa kallinn” (Lionel Hampton) I stúdfóinu f kjailaran- um. Sá grái leggur viö hlustirnar. Barn vélaaldarinnar Samstæöurnar I jasskreppunni 1 hverju felst þessi sérstaöa jassins aö þlnu mati? „Sko, hvort sem mönnum Hkar betur eöa verr er þaö staöreynd aö jass er áhrifamesta tónlistar- form tuttugustu aldarinnar. Þetta óvelkomna lausaleiksbarn tónlistarsögunnar, komiö undir i synd og skömm og óþökk allra kúltiveraöra tónlistarmanna, reyndist nefnilega þegar til kom vera barn aldarinnar, — okkar tlma. Jassinn er múslkalskt viöbragö viö geggjaöri vélaöld. 011 tuttugustu aldar tónskáld hafa lært af jassinum á einn eöa annan hátt. Ef þau hafa ekki not- fært sér músíkölsk element frá jassinum þá hafa þau lært ab foröast þau. Þaö er þannig ekki hægt aö ganga framhjá jassinum. Reyndar er jafn erfitt aö útskýra Hvers eðlis er svo jassverkið Samstæöur sem nú kemur út á plötu? „Nafniö á aö tákna, aö svoköll- uö alvarleg tónlist og jass séu ekki andstæöur eöa sinn hvor póllinn, heldur samstæöur. Þegar ég hlusta á músik eldri tónskálda, sérstaklega barokk- og hárenais- sancetónskáldanna, þá finnst mér sem þessir kallar, eins og Scarlatti, Hðndel og Johan Se- bastian Bach, hreinlega Ijómi af jasselementum. I seinni tiö hafa verk þessara manna lika veriö jössuö upp og farið er aö flytja mikiö af miöaldamúsik meö jassbiti. Jói Sebastian var til dæmis alveg rosalegur svingari. Þegar komiö er aö rómantisku tónlistinni falla þessi tengsl aftur- ámóti niöur.l Tónlistarskólanum hér I Reykjavik var manni álasab I hvernig kringumstæöum er Samstæöur samiö? „Þaö er samiö 1970. Hefur sem sagt legið útgefandalaust i átta ár. Ég hef ekki veriö aö neyöa þessu inná menn. Mjálm I Pétri og Páli er ekki minn still. Þessi upptaka, sem Jassvakning gefur núna út á plötu, er gerö fyrir Listahátiö 1970, aöallega fyrir til- stilli Ivars Eskeland, þáverandi forstjóra Norræna hússins, og var flutt I útvarpinu. Þessi timi var mesti krepputimi jasssögunnar. Poppið var komiö langleiöina meö aö drepa jassinn. Bandarisk stjórnvöld höfðu ekki þá fyrir- hyggju aö bjarga sinni eigin tónlistargrein. Ariö 1970 var mesta tónskáld Bandarikjanna, Duke Ellington ekki einu sinni á gestalistanum I Hvlta húsinu I árlegri veislu sem forsetinn heldur menningarfólki til dýröar. Hann var þar sem skemmti- kraftur. Atti aö troöa upp og skemmta hinum. Þetta þótti reginhneyksli og uppúr þessu fóru stjórnvöld aö reyna aö bjarga andlitinu meö þvi til dæmis aö gera helstu jassrisana aö háskólaprófessorum. En um þetta leyti héldu bandariskir menntaskólakrakkar aö Duke Ellington væri fyrrverandi for- sætisráöherra Bretlands! Svona var nú ástandiö þá”. Hugsjónin Slöan hefur jassinn veriö á leiöinni upp? „Já. Uppsveifla jassinn i heim- inum er ekki sist svar unga fólks- ins viö skemmtiiönaðinum en i eldri jössurum hefur llka soðiö reiöin I tlu — fimmtán ár og nú hafa þeir fyllst eldmóöi. Þvl jass er meira en bara nótur. Jass er hugsjón. Gagnstætt poppi sem er ekki hugsjón. Ég er ekki aö segja aö pésarnir geti ekki fyllst eld- móöi þegar þeir eru aö skemmta fyrir fimmhundruö þúsund á kvöldi og plurnar blöa skrækjandi eftir þeim. En poppmúsik er sjaldnast til oröin af innri þörf, sköpunarþörf sem er miklu breiöari en einstaklingurinn. Jassarar allra landa eru vinir. Þeir eru samherjar I baráttunni fyrir þessari hugsjón.Jassinn er lika tengdur mannlegri reisn og réttlæti. Jassarar hafa barist gegn óréttlæti frá upphafi, enda var þessi listgrein hötuö af Hitler og Stalin og öörum einræöisherr- um. Og alla tlö hefur hún veriö utangarös hjá rikisvaldinu. Slgild tónlist hefur afturámóti alltaf veriö rikisrekin eöa kostuö af stór- kapitali og hún skal 1 fólkiö hvort sem þvi likar betur eöa verr. Samanber Islenska rikisútvarpiö. Hvað væru margar sinfóniu- hljómsveitir starfandi i heimin- um I dag ef svokölluö æöri tónlist þyrfti aö keppa á sama grundvelli og jassmenn hafa barist fyrir llfi sinu á, þaö sem af er öldinni, — grundvelli skemmtiiönaöarins þar sem framboð og eftirspurn ráöa? Allra sist er ég á móti sinfóniuhljómsveitum, en þaö er vert aö gefa þessu misrétti i starfsaöstööu gaum”. VPTALt ÁBW ÞÖdARINSSPN AHTNPIRt JENS ALEXANPERSSON f * J • 1 m e m 1 wm * æJ 0 i Cf • ■ i Gegnum tíðina Argangurinn ’61 úr Tónlistarskólanum: ólafur Vignir Albertsson og Gunnar Reynir eftir burtfararprófiö. Sautján ára svingari Big-band trommarinn milliæfinga meö Eyþóri galvaskur viö settiö I i herberginu á Bjarnar- KK ca. 1954. stig. A jassárunum I London Poppiö og póstkorta- bransinn Er mælikvaröinn æöri-óæöri tónlist hæpinn? „t minum eyrum er hann gagn- rýnisveröur og þyrfti að endur- skoðast tónlistarsögulega séö. Merkustu kammerverk tuttugustu aldar voru t.d. spiluö af Benny Goodman og félögum árin fyrir striö. Ef allt væri meö felldu væru sinfóniuhljómsveitir I raun og veru ekki stofnaöar eöa starfræktar núna heldur allt ööru visi hljómsveitir. Tónskáld nútimans hafa hins vegar ekki i önnur hús aö venda meö sin verk ensinfóniuhljómsveitir, sem eru I eðli sinu byggöar upp fyrir verk 18. og 19 .aldar tónskálda. Tónskáld veröa annaö hvort að skrifa fyrir þær eöa sitja heima og naga á sér neglurnar. Vinir minir sem léku meö Vinar- filharmóniunni og hrökkluðust þaöan til Graz vegna músikalsks óyndis þegar þeir voru búnir aö spila sama Mozartverkiö fimmþúsund sinnum fyrir túrista, sögöu aö þessi bransi væri músik- legur póstkortabransi. Verkefni liöinnar tiöar eru hreinlega ekki óþrjótandi, en I hverri höfuðborg heimsins er fjöldi manna á föst- um launum við aö vinna þau endalaust aftur og aftur. Þessi vafasama skipting I æöri og óæöri tónlist gildir ekki bara gagnvart jassinum, heldur yfir alla linuna. Ég hef heyrt stórmerka hluti I poppi til dæmis.Þór yngri bróöir minn berst gegn þvi aö ég hrörni popplega og kemur alltaf til min meö nýjustu plöturnar af þeim vettvangi svo ég fylgist vel meö þar. Þaö þýöir ekki aö segja bara aö allt popp sé rusl, eins og t.d. Rögnvaldur Sigurjónsson gerir. Þaö er byggt á misskilningi. Poppiö þarf bara aö sortera eins og aöra músik. Afturámóti er þaö staðreynd aö undanfarin ár hefur oröiö hugmyndarýrnun I poppinu. Véfréttum og hugsuðum poppsins hefur ekki tekist aö endurnýja sig. Þaö vantar hugsjónina i þennan hugmyndabanka þeirra sem hefur oröiö fallltt. Poppiö er iönaöur, en jassinn er list, þegar á heildina er litiö. Léleg músik af öllu tagi ætti undir eölilegum kringumstæöum aö veröa sjálf- dauö. En svo er bara ekki vegna þess að alltaf eru einhverjir aöilar sem sjá sér hag I aö halda dótinu á lofti”. úr valsagutli i KK-sándið En hafa lslendingar hina réttu tilfinningu til aö spila jass vel? „Alles Anfang ist schwer, sagbi „Jass er hugsjón. Andstætt poppi sem ekki er hugsjón...” Þjóöverjinn þegar heilt band af prófessorum og músikdoktorum svingaöi ekki baun. En Islend- ingar eiga þaö sameiginlegtmeö Skandinövum aö vera liprir uppá sveifluna, þótt merkilegt sé. Margir af okkar bestu jössurum, sem hrökkluöust af landi brott uppúr ’60, starfa á Norðurlöndun- um og eru I fremstu röö. Þeir sem eftir uröu hér heima geröust tónlistarkennarar eöa sinfóniu- spilarar eöa stofnuöu tlskuversl- anir eöa bilasölur vegna þess aö timinn var á bandi Bltlanna. Nú er sá öldudalur fyrir bi sem betur fer, enda poppiö meira og minna vélvædd róbottamúsfk”. Hvernig hefst þinn eigin jassferill? „Upphaflega var ég big-band trommari. Ég var hins vegar svo óheppinn aö fyrstu ár atvinnu- mennskunnar spilaöi ég meb fiölu og planói. Þess vegna fékk ég útrás meö þvi ab leika meö Basie, Ellington og Hampton á grammófóninn. Tangó- og valsagutliö I djobbinu meö fiölar- anum gaf ekki kost á löngum og látlausum trommusólóum svo ég skellti mér yfir á vlbrafón til aö svala músikalskri athafnaþrá. Abur haföi ég lært nótnalestur á harmónikku, aöallega til aö gleöja mömmu. Svo stampaöi ég nikkunni fyrir settiö og gaf mömmu munnhörpu I staöinn. Um þetta leyti, — ég hef veriö 17 ára —, var ég svo heppinn aö kynnast velmenntuöum gitar- „Aö menn reyktu eitthvaö sterk- ara en Agio var til I dæminu...” leikara, Eyþóri Þorlákssyni. Eyþór lét sig hafa þaö aö koma meö gitarinn sinn og magnarann i strætó frá Hafnarfiröi dag eftir dag, bera þetta uppá Bjarnarstig til aö æfa meö mér heima I herberginu minu. Þessa tilsögn i jassi fæ ég seint fullþakkaö. Eitt sunnudagskvöld fékk ég svo fri frá fiölaranum til aö leika meö KK fyrir bandariska herinn. Upp úr þvi var stofnaður nýr KK- sextett meö vlbrafónleikara inn- anborös og hann ráöinn til aö skemmta kananum vikulega. Þetta var óvenjusamstillt liö sem skapaöi sér sinn eigin stil, — KK- sándiö fræga. — og þótti orginal ekki bara hér heima heldur lika á hinum Noröurlöndunum og I Þýskalandi. I þessum löndum lékum viö bæöi á konsertum og á jam-sessjónum meö bestu jössur- unum sem á staðnum voru”. Hin mátulega spilling A þessum árum fór ég I öll- um frium til London og lék á jass- klúbbum. I fyrstu feröinni fór ég á aðalklúbbinn sem þá var. Þar tróö upp Victor Feldman, einn besti vibrafónleikari Evrópu. Ég labbaöi til hans og spuröi hvort ég mætti ekki spila svo sem eitt — tvö númer. Hann varð svo gáttaöur aö hann sagöi bara: Gjöröu svo vel. Náungarnir I grúppunni, sem voru ekkert yfir sig hrifnir aö fá alltieinu einhvern mann utan af götu, skelltu sér i Craziology eftir Charlie Parker I ofsalega hrööu tempói. Ég vissi aö þetta var gert til aö losna viö aðskotadýr þannig aö menn springju á limminu og flýttu sér burt. En ég kunni Parker-linuna og lifbi af númeriö. Þá fóru jassararnir að segja: Jæja vinur, hvaöan ert þú og hvaö getum viö gert fyrir þig? Þar meö var Roett við Gunnar Reyni Sveinsson um gamla eg nýja jasstíma eg fleira maöur kominn inn i jasshringinn i London á einu númeri, bara af þvi aö þá kunni maöur ekki aö vera nervös”. A þessum tima, — á árunum 1954—60 — spilaöiröu á alls kyns böllum og búllum heima og erlendis. Fylgdi þessu ekki voöalegt leben? „Ég hef lent i veislum þar sem „Mln sérgrein var sú aö dást aö hinum frlöa kvenkostl heimsbyggöarinnar...” spilab var stanslaust i þrjá og hálfan sólarhring. Þetta þótti manni bæöi hollt og gott. Maöur lagöi sig i hálftima hér og þar og tók svo til viö djammiö á nýjan leik. Drykkja var ekki svo mikil, einfaldlega vegna þess aö alkóhól er ekki energlgefandi nema til barsmiöa og annarra leiöinda. Aö menn reyktu eitthvað sterkara en Agio var til I dæminu. Enn sterkari efni voru ekki algeng hjá evrópskum jassleikur- um. Afturámóti lagöist sá ósiöur þyngra á músikanta I USA, þar sem umboösmenn þeirra og búllueigendur voru gjarnan eitur- lyfjamiölarar og náöu algjöru tangarhaldi á þeim og notuöu svo sem vinnudýr. Sumum af andleg- um leiötogum kúl-jassins og be- boppsins var þetta dýrkeypt t.d. Charlie Parker og Fats Navarro, sem herófniö át upp til agna. En aörir, eins og Miles Davis, Gerry Mulligan og Stan Getz komust yfir þetta.” Ekki hefuröu nú lifað eins og engill sjálfur? I

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.