Vísir - 23.12.1978, Síða 3
VÍSIR
Laugardagur 23. desember 1978
3
2. áfangi Grundartangaverksmiðju:
„Frestun rekstrar-
lega óhagkvœm"
segir fjármálastjóri Járnblendifélagsins
„Viö höfum þegar pantað ofn
2 sem settur veröur upp i öörum
áfanga verksmiöjunnar. Viö
munum auövitaö vinna þaö sem
Iönaðarráöuneytið fer fram á og
skýrsla veröur væntanlega
tilbúin fyrir 20. janáar”, sagöi
John Fenger fjármálastjóri
járnblendifélagsins,en Iönaöar-
ráöuneytiö hefur i bréfi lagt sér-
staka áherslu á aö dregiö veröi
úr hraöa framkvæmda viö
byggingu 2. áfanga verksmiöj-
unnar áriö 1979.
„Ráöherra hefur veriö kynnt
aö frá rekstrarlegu sjónarmiöi
fyrirtækisins er búiö aö leggja
út 2/3 þess fjármagns sem
byggingarkostnaöi nemur. I
fyrsta áfanga var ofn eitt og all-
ar aðrar hjálparbyggingar
reistar. Framleiöslugetan er
hins vegar ekki nema 25000 tonn
af kisiljárni á ári. Tveir ofnar
geta hins vegar framleitt um
50000 tonn á ári.
Frá rekstrarlegu sjónarmiöi
er þvi frestun á.framkvæmdum
óhagkvæm. Þaö kemur hins
vegar fleira til og þar á meöal
markaösaöstæður. Viö erum
þessa stundina mjög bjartsýnir,
þvi verö á kisiljárni er á
uppleiö. Iönaöarráöuneytiö
framfylgir sömu stefnu og gert
er i öörum ráöuneytum, sem er
aö draga úr framkvæmdum á
árinu 1979. Iönaöarráöherra
óskar eftir þvi aö látiö veröa
reyna á samninga viö hlutaö-
eigandi um þessi atriöi”. —BA
— Búast við atvinnuleysi á nœsta ári
Þá segir i skýrslunni aö lang- samdrætti i starfseminni á næstu
mestur hluti fyrirtækja mánuöum.
byggingariönaöarins búist viö —óT.
our sloppar
3ANCOLÚX
Landssamband iönaöarmanna
dregur þá ályktun af ársfjórö-
ungslegri könnun á byggingar-
starfsemi(aö ársstörfum I grein-
inni muni enn fækka á þessu ári
og aö alvarlega megi óttast at-
vinnuleysi á fyrstu mánuðum
næsta árs, einkum á höfuöborgar-
svæöinu.
Samanburöur á ársstörfum,
milli áranna 1976 og 1977 leiddi í
ljós aö heildarminnkun i hinum
ýmsu greinum byggingariönaöar
var 8,6 prósent.
Minnkun á milli annars og
þriöja ársfjóröungs á þessu ári er
hinsvegar mun meiri, eöa 17,4
prósent. Segir I fréttatilkynningu
frá Landssambandinu aö með
þessu hafi starfsmannafjöldinn I
lok september veriö kominn i
svipaö horf og ársmeðaltaliö
1977.
Hinsvegar hafi oröið geysileg
fækkun frá þvl sem var I júnilok
eöa 1550 starfsmanna fækkun I
heild. Þótt taka veröi tillit til þess
aö skólafólk hafi aö mestu horfiö
af markaöinum á þessum tlma,
sé minnkunin mun meiri en svo
aö baö nægi til skýringar.
Hœkkun
verðjöfnunargjalds:
Bœjarstjórn
Hafnarfjarðar
mótmœlir
A fundi bæjarstjórnar
Hafnarfjaröar sem haldinn
var nýlega voru samþykkt
mótmæli gegn fyrirætlunum
um hækkun á verðjöfnunar-
gjaldi á raforku úr 13 i 19
prósent. 1 samþykktinni segir
aö skattheimta á rafmagns-
sölu sé nú þegar 33 prósent en
myndi veröa 39 prósent viö
breytinguna.
Fyrir notendur Rafveitu
Hafnarfjaröar þýöa þetta
aukin útgjöld sem nema 25 til
30 milljónum miöaö viö
núgildandi verölag. Bæjar-
stjórn telur eölilegra að leita
annarra ráöa til aö leysa
vandamál RARIK en frekari
skattlagningar á þegar
háskattaöa nauðsynjavöru á
borö viö rafmagniö.
—KP.
Iðnaðarmenn sjá
fram á samdrátt
DANSKUR FINNSK
RÚSKINNSJAKKI 3/4 SKINNKAPA —i iSIÐ
PELSINN
KIRKJUHVOLI GEGNT DÓMKIRKJUNNI
Simi 20160
OPIÐ TIL MIÐNÆTTIS
KANINUPELS-JAKKI
KR: 59.000
PELSINN
FULL BÚÐ AF
NÝJUM VÖRUM
ULFAPELS — SIÐUR