Vísir - 12.01.1979, Síða 6

Vísir - 12.01.1979, Síða 6
Andófsmaður fyrír rétti í Prag Hinn 52 ára gamli sál- fræðingur, Jaroslav Sabata, einn af talsmönnum andófs- hópsins ,,Sáttmáli’77” sem haldið hefur uppi kröfum um aukin mannréttindi i Tékkó- slóvakiu var dreginn fyrir rétt I gær. Hann er ákærður fyrir gróflegar móðganir við embættismenn rikisins. Viðurlög viö sliku varöa allt aö eins árs fangelsi. Foreldranámskeið Sænski félagsmála- ráðherrann Gabriel Roma- hus skýröi frá þvi á ráðstefnu á Nyborg Strand nýlega, aö nó ætti að fara aö veita foreldrum f Sviþjóð al- menna uppfræðslu um hlut- verk þeirra. — Verður komið á námskeiöum um barna- uppeldi, barnasálfræði og fleira og fleira. Sjá á dýrum fyrir jarðskjálfta Kinverskir vlsindamenn vonast til þess að með rann- sóknum á atferli-dýra megi smiöa mælitæki sem geti orðiö mönnum til mikils gagns við að spá fyrir um jaröskjálfta. I Jerúsalem nœr gjaldþrota JerUsalem rambar á barmi gjaldþrots. Framlag rikis til borgarsjóðs þykir alltof lágt og auk þess á borgarsjóður.Jerúsalem við sömu'erfiðleika að etja og allir aðrir landsmenn i 50% veröbóigu sem er i Israel. Þjóðverjar á grœnni grein Greiösiujöfnuður V- Þýskalands var i nóvember hagstæður um 3,82 milljarða þýskra marka og hafði verið i október hagstæður um 3,45 milljarða. Drepandi kuldi Mikið fannfergi var f álfunni um áramótin, eins og fram kom f fréttum, og síðan hefúr fylgt brunagaddur. I Frakk- landi hafa fjórtán manns látið lifið vegna kuldans. Eldri hjón létust af gaseitrun þegar snjór stöðvaöi hjá þeim loftræsting- una i gasupphituðu herbergi. Tíu þúsund horfa fram á atvinnu- missi í skipaiðnaði Norðmanna Horfurnar í norskum skipaiðnaði eru skugga- legri en stjórnvöld höfðu áður gert ráð fyrir. Er fyrirsjáanlegt, að erfitt verður að halda úti ný- smiði skipa sem veitt gætu 14 þúsund manns atvinnu, eins og gef ið hafði verið til kynna. Þessar upplýsingar komu fram hjá deildarstjóra norska iðnaðar- ráöuneytisins núna i vikunni. Sagði hann að með þeim pöntun- um á nýjum skipum, sem núna lægju fyrir aö væri ljóst að ekki nema 25-30% þeirra sem vinna við nýsmfði núna, gætu fengið vinnu siðari hluta ársins. Það þýðir meö öörum oröum, að um 10 þúsund manns f norsk- um skipaiönaöi verði atvinnu- í Kanada standa yfir rannsóknir á notkunar- lausir, þegar liöa tekur á árið. Ennfremur kom fram, að dreg- ið hefur meir úr skipa- og báta- pöntunum, en menn höfðu reiknað með. Skipasmiöa- stöðvarnar standa þvi frammi fyrir þvi að þurfa að draga seglin örar saman en góðu hófi gegnir. Forráðamenn norska skipa- smfðaiðnaðarins kviða mjög framtiðinni vegna harörar sam- keppni viö skipasmföi OECD- landa i Evrópu. Þar eru uppi ráöageröir um aö draga 50% úr skipasmiöum á næstu árum. I Noregi er búist við enn meiri samdrætti. Bátaútgerðarmenn í Noregi krefjast þess nú, að stjórnin taki upp að nýju samningavið- ræður við Sovétmenn með það fyrir augum, að breyta nú- gildandi fiskveiðisamningum ríkjanna. Helsta krafan er sú, að veiðikvóti Norömanna á sumarloönu 1,5 milljónir hektólitra veröi færöur yfir á vetrar- veiðikvótann. Svifnökkvi ísbrjótur Bátafálkið Ennþá streymir flóttafólkið frá Víetnam en vandamálj |„bátafólksins" hafa ekki enn verið leyst. A myndinni hér isést einn af þessum bátum, sem nýlega fannst í Suður- Kínahafi eftir tólf daga hrakninga. Um borð var 161 flóttamaður. — Báturinn kom að eyjunni Pulau Bidong viðl iMalaysíu, en þar eru fyrir 24 þúsund víetnamskir flótta-| [menn._ Heimta meiri loðnu möguleikum svifnökkva sem ísbrjótar. Sýna til- raunir, að þeir eru vel brúklegir til slíkra starfa. A nokkrum klukkustund- um lauk einn slíkur verki Kanadlskur svifnökkvalsbrjótur að störfum. sem gamaldags ísbrjótur hefði verið heilan dag að vinna. Það var fyrir hreina tilviljun aö Kanadamenn byrjuöu aö fikta viö þessar tilraunir. Hugmyndin kviknaöi þegar menn voru að reyna borpallinn ACT 100 sem grundvallast á sömu eiginleikum og svifnökkvar. Hann var gerður til þess aö bera þungan borút- búnað til oliuleitar I Ishafinu. Verkfræöingarnir sáu sér til undrunar, aö undan loftpúöanum, sem pallurinn svifur á molnaði niöur allt að 70 cm þykkur lagis. — Þetta var áriö 1972. Svo viröist sem þrýstiloftið frá svifnökkvanum smjúgi ofan I fin- ar sprungur issins og myndi heljarinnar loftbólu undir hon- um. Við þaö brotnar isinn aö nokkru undan eigin þunga og að nokkru vegna þrýstingsins ofan frá. Við tilraunirnar hefur verið notaöur isbrjóturinn „Alexander Henry”, sem er af léttara taginu. Frammi I stafni nefur veriö kom- iö fyrir I honum samskonar út- búnaði og heldur svifnökkvum á lofti. Siglir hann með niu hnúta hraða i gegnum 45 cm þykkan is og er oliubrennslan langtum minni en við venjulegar aöfarir. Telja bátaútvegsmenn samningana i hæsta máta ósanngjarna og ekkert i likingu við þaö, þegar Norömenn veiddu hér áður 90% þeirrar loðnu, sem veidd var i Barentshafi. Samtök útvegsmanna hafa sett stjórnvöldum þá kosti aö annað hvort fái hún samningum breytt I þessa veru eða bátasjómenn taki sér bessaleyfi sjálfir og veiði sinn sanngjarna hlut af loðnunni. — Nefnilega rjúfi samning- inn upp á eigin spýtur. Verðhœkkanir í Ungverjalandi Ungverjaland hefur hækkaö verð á benslni, tóbaki, öli, hrisgrjónum, dag- blöðum, byggingarefni og fleiru um 20 til 25%. — Heimsmarkaðsverö hefur farið hækkandi og rétta þarf viö rlkis- kassa Ungverjalands. Hátíðarspellvirki Yassir Arafat, leiötogi skæruliða- hreyfingar Palestinuaraba, ætlaöi um siðustu helgi að halda hátiðlegt fjórtán ára afmæli skæruliðasamtakanna. En hryðjuverkamennirnir gátu ekki einu sinni verið til friös á sinu eigin af- mæli. Keppinautar hans um Itökin i samtökunum stóðu fyrir sprengingum á veislusvæðinu, svo að ekkert varö af hátlðarhöldunum. Verðbólgan í Brazilíu Fjármálaráöherra Brasiliu, Mario Henrique Simonsen, hefur upplýst, að veröþiúgan þar i landi hafi fariö upp I 40,8% á árinu 1978, en hún var 38,8% á árinu 1977. Flug milli Kína og Taiwan Kina hefur að undanförnu gefið Tai- wan (Formósu) óspart undir fótinn, eftir aö Bandarikjastjórn tók upp stjórnmálasamband við Peking. Það nýjasta er, aö Pekingstjórnin hefur boðiö Taiwan aö hefja aftur flugsam- göngur milli eyjarinnar og megin- landsins. Þannig að rlkisreknu flug- félög landanna fái lendingarrétt I Kina og á Taiwan.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.