Vísir - 12.01.1979, Side 9
VISIR Föstudagur 12. janúar 1979
9
Bréfritari virðist hafa þurft að ganga lengi i snjónum, án þess að sjá ,,laus-
an” leigubíl. Visismynd: ÞG
ERFITT AÐ FA
LEIGUBÍL EF
SNJÓAR
G.E. Reykjavik skrif-
aði:
Það er einn ljóður á leigu-
bilstjórum hér i borg, annars
ágætum mönnum. Það er hvað
þeir virðast vera snjóhræddir.
Ég skrapp á skemmtistað á
laugardagskvöldið. Þar sem ég
hafði fengið mér i glas, skildi ég
bilinneftirheima og treysti á að
komast heim með leigubil þvi
það er of löng leið að ganga i
snjónum.
Af gamalli reynslu vissi ég, að
þegar skemmtistaðirnir loka,
klukkan 2, þá er hvergi leigubil
aðfá,þvimargir eru um hituna,
og oft er klukkutima bið eftir
leiguvagni.
Þess vegna fór ég af
skemmtistaðnum klukkan rúm-
lega eitt, til að vera öruggur um
að fá bfl. En viti menn. Engan
bil var að sjá og leigubilastöðv-
arnar voru hættar aö svara i
sima vegna álags.
Til að gera langa og átakan-
lega sögu stutta, beið ég I hátt á
annan tima eftir leigubil. Fyrir
einstaka heppni, og eftir mikið
kapphlaup við aöra, sem voru á
verri skóm en ég, náði ég bil,
sem var að hleypa út farþegum
og þvl laus.
Ég var orðinn kaldur og
hrakinn og ílla til fara og spurði
bílstjórann, þegar ylurinn inni i
bilnum hafði þitt upp heilafrum-
urnar að svo miklu leyti sem
hægt var, hvernig stæði á þess-
um skorti á leigubílum.
Svarið var, að snjórinn væri
svo mikill, að bllstjórarnir
treystu sér ekki til aö halda uppi
akstri.
Ég þori að fullyröa, aö snjór-
inn var ekki meiri en svo aö
hver meðalskussi hefði ekki get-
að ekið vandræðalaust það
kvöldið (nóttina).
Mér finnst þaö hreinlega vera
skylda leigubllstjóra að halda
uppi akstri, þó nokkur snjókorn
falli. Þaö er einmitt við erfiö
skilyrði, sem þeirra er mest
þörf. Leigubilstjórar hafa tekið
vissa þjónustu að -sér. Þeir
verða þá llka að veita hana,
jafnvel þó föl festi á jörð.
Eyjan heitir Man — ekki Mön
J.G. — Reykjavik-
hringdi
Nokkuð hefur verið ritað um
eyjuna Man við Bretlands-
strendur, vegna þess að I ár
halda eyjaskeggjar upp á 1000
ár afmæli þings slns. Ég haföi
samband við lesendadálkinn,
vegna þeirrar árattu margra,
að kalla eyjuna Mön. Það er al-
rangt, enda er eyjan Mön I Dan-
mörku.
Sesar hinn rómverski kallaði
eyjuna Mona’sisland (snúið upp
á engil-saxnesku). Enginn veit
hvernig nafnið Isle of Man varð
til, en vitaö er til að Snorri
Sturluson kallaöi eyna þvl nafni
og beygði Man-Man-Mön-Man-
ar.
Nú heitir eyjan Mön upp á Is-
lensku, en ekki eyja mannsins,
eins og nafnið ætti aö útleggjast
á Islensku. Vilji menn halda
nafninu Mön fram, hvað heitir
þá á islensku klettur nálægt
eynni, sem á ensku nefnist Calf
of Man?
Af hverju má ekki leiðrétta
þennan misskilning þó að
Snorra Sturlusyni hafi orðið á
þessi mistök? Hvaðan kemur
Mön inn 1 spilið? Hvað eða hver
er Mön? Nafn eyjunnar útleggst
sem fyrr segir eyja mannsins.
A eyjunni er fjöldi norrænna
nafna. Þar má nefna Snæfell og
er orðið stafað á Islenska vlsu,
en Mön hefur eyjan aldrei heit-
ið, og þvi ættum viö þá að breyta
þvi núna?
Köllum eyna eyjuna Man og
beygjum ekki það nafn. Annað
er misskilningur og rangt. Við
eigum ekki að hengja okkur I
vitleysu, jafnvel þói að Snorri
Sturluson hafi gert þær.
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmíði á fasteignum. Smíðum
eldhúsinnréttingar ásamt breytingum og við-
gerðum á eldri innréttingum. Gerum við leka
vegna steypugalla
Verslið við ábyrga aðila.
Trésmíðaverkstæðið
Bergstaðastræti 33
simi 24613 og 41070
J — — UMBOÐSMENN VÍSIS
á Vesturlandi og Vestfjöróum
Akranes ísafjörður
Stella Bergsdóttir Höfðabraut 16 slmi 93-1683 Olfar Agústsson Versl. Hamraborg slmi 94-3166
Bolungarvik Ólafsvik
Björg Kristjándsdóttir Júllus Ingvarsson
Höfðastlg 8 Brautarholti 12
simi 94-7333 slmi 93-6319
Borgarnes Patreksfjörður
Gunnsteinn Sigurjónsson Kjartansgötu 12 Björg Bjarnadóttir Sigtúni 11
simi 93-7395 simi 94-1230
Grundarfjörður Stykkishólmur
örn Forberg Eyrarvegi 25 simi 93-8637 Sigurður Kristjánsson Langholti 21 simi 93-8179
OPIÐ
KL. 9—9
Allar skreytingar unnar af
fagmönnum.
Ntng bllastcBfli a.m.k. ó kvöldln
BlOMtWIXTIR
II\l N \RSI R 1 I I Simi 12717
Nu er frost
á Fróni..
þvi er nauðsynlegt að huga að
vetrarbúnaðinum.
Fall»g og hlý urta-
áklaíl úr þykku
(loðnu) þvottekta,
Mnl aðtlns kr. 5.100.
Ralmagns afturrúöuhitari
auðveld iaatning,
skarpara og skýrara útsýni
Aðelns kr. 4950.-
Skiðagrindur ó fólksbíla
Verð aðeins kr. 9.300.—
SVEINN EGILSSON HF
FORD HUSINU SKEIFUNNM7 SIMI 85100
L.___ a