Vísir - 27.01.1979, Blaðsíða 9

Vísir - 27.01.1979, Blaðsíða 9
SPURT Á • • Hún hefur „rassskelt," alla Evrópu Dag einn í vikunni voru blaBa- maður og Jens ljósmyndari Visis á hlaupum um Grensásveginn i fréttaleit og rákumst viB þar, al- gjörlega á óvart, á konu eina. Þetta var virBuleg kona en mjög svo glaöleg i fasi. Við námum þvi staöar og tókum konuna tali. Hún kvaöst heita Arndis Þor- valdsdóttir og sagöist vera annar eigandi og jafnframt verslunar- stjóri verslunarinnar Borgarljós. Hinn eigandinn er sonur hennar, sem um þessar mundir er staddur i London, — þvi lastabæli eins og þessi annars ágæta borg hefur verið kölluð. Á hverju hefur þú nú mestan áhuga Arndis? — Af búöinni minni auövitaö, sagöi hún. Annars hefur mér alltaf þótt gaman aö ferðast og það má eiginlega heita að ég hafi „rassskellt” alla Evrópu auk þess hef ég komiö til Ameriku og viöar. En innanlands, spyrjum viö konuna sem hefur „rassskellt” alla Evrópu. — Jú auðvitaö hefur maður farið um allt Island, hringinn margsinnis, en þó ekki nógu mikið upp á hálendið, en auövitað er verslunin núna mitt aöal- áhugamál, eins og gefur aö skilja. Hvenær keyptuö þiö verslun- ina? — Við keyptum hana i ágúst og höfum svona veriö að koma henni til, en það er erfitt. Alagningin er svo lág, þannig aö maður þarf aö vinna i versluninni I sjálfboöa- vinnu. Tekjurnar fara allar beint I hana, i lager, leigu og skatta. Hefur þú áður fengist viö verslun? — Ég átti einu sinni búö, svona tuskubúö inni i Búöargeröi og verslaði þar meö töskur og tölur og fl. Mig minnir aö ég hafi hætt meö hana 1962. Finnst þér þetta skemmtilegt starf? — Auövitað finnst mé þaö skemmtilegt, annars væri ég ekki aö þvi svona á gamals aldri, sagöi Arndis og skellihló. Vikjum aftur aö feröalögunum. Hvar finnst þér fallegást á ís- landi, spyrjum við konuna sem hefur „rassskellt” Evrópu. — Þaö er fallegast aö Fróðá á Snæfellsnesi á vorkvöldi þegar sólin er aö setjast. Annars eigum viö fjölskyldan Fróöá ásamt nokkrum öðrum aöilum. Þangaö förum viö oft, stundum á veturna ef fært er, en oft á sumrin. Hvað er fjölskyldan stór? — Ég og maöurinn minn, Hauk- ur Benediktsson, (framkvæmda- stjóri Borgarspitalans) eigum fimm börn. Tvö eru gift og býr annað þeirra i Reykjavik, en hitt á Höfn I Hornafirði. Hin þrjú eru I Reykjavik. Börnin eru á aldrin- um frá 15 til 31 árs og barnabörn- in eru fimm. Við látum nú þessi spjalli lokiö viö konuna sem „rassskellt” hafði alla Evrópu, og drögum þaö stórlega i efa aö hún hafi nokkurn tima rassskelt börnin sin, alla vega ekki að ástæöulausu. —SS- KROSSGATAN í ELDHÚSINU Umsgón: Þórunn I. Jónatansdótfir Glóðaður \ (Uppskriftin er fyrir 2.) 1 Kjúklingur Kryddlögur: 1/8 msk matarolia 1 msk sltrónusafi 1/2-1 msk kfnversk soya salt pipar rósmarin 2 tómatar kjúklingur 200 gr. belgjabaunir. Þvoiöog þerrið kjúkiinginn og hlutiö hann i sundur. Hræriö eöa kristiö kryddlög- inn saman. Ef kjúklingurinn hefur veriö tekinn sundur i tvennt um bringu, erglóöunar- timi u.þ.b. 30 minútur, annars skemur ef bitarnir eru fleiri. Pensliö bitana meö kryddlegin- um, leggiö þá á glóöarrist og glóöiö. Skiptiö tómötunum I tvennt. Stráiö örl. salti og pipar i sárið. Setjiö tómatana á ristina hjá kjúklingabitunum og glóðiö meö þeim siöustu 5 minúturnar. Beriö kjúklinginn fram vel heitan, meö tómötum, grænum belgjabaunum, hrisgrjónum eöa frönskum kartöflum eöa soðnum kartöflum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.