Vísir - 30.01.1979, Síða 4
4
Þriðjudagur 30. janúar 1979 I
Tilkynning
Þinglýsingadeild borgarfógetaembættisins, Skóiavörðu-
stig 11, verður framvegis opin frá kl. 10-15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem augiýst var f 78., 81. og 83 tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1978 á eigninni Sléttahrauni 29, Hafnarfirði þingl. eign
Stefáns Hermannssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt-
unnar f Reykjavik, Innheimtu rikissjóðs og Brunabótafé-
lags islands á eigninni sjálfri föstudaginn 2. febriíar 1979
kl. 3.00 e.h.
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
2. og siðasta á fasteigninni Vogagerði 24 f Vogum, Vatns-
ieysustrandarhreppi.þinglýstri eign Guðlaugs Aðalsteins-
sonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 31.
janúar 1979 kl. 15.30.
Sýsiumaðurinn í Guilbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 78., 81. og 83. tölublaði Lögbirtingabiaðs-
ins 1978 á eigninni Mávahrauni 9, Hafnarfiröi, þingl. eign
Hjördisar Þorsteinsdóttur, fer fram eftir kröfu Innheimtu
Hafnarfjarðar á eigninni sjálfri föstudaginn 2. febrúar
1979 kl. 3.30 e.h.
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var f 78., 81. og 83. tölublaöi Lögbirtingablaðs-
ins 1978 á eigninni Hverfisgata 55, neðri hæð, Hafnarfiröi,
þingl. eign Gunnars Friðþjófssonar, fer fram eftir kröfu
Guðjóns Steingrfmssonar hrl., Innheimtu rikissjóðs og
Innheimtu Hafnarfjarðar á eigninni sjálfri föstudaginn 2.
febrúar 1979 kl. 4.00 e.h.
Bæjarfógetinn I Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
2. og siöasta á fasteigninni Nýibær i Vogum (jarðeign)
þingl.eign Guðlaugs Aöalsteinssonar, fer fram á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 31. janúar 1979 kl. 15.
Sýslumaðurinn I Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem augiýst var i 90., 93. og 96. tbl. Lögbirtingablaðs 1978 á
hluta i Blikahóium 4, þingi. eign Péturs B. Péturssonar,
fer fram eftir kröfu Veödeiidar Landsbankans og Bene-
dikts ólafssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudag 1.
febrúar 1979 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaðog siðasta á Depluhóium 5, þingi. eign Guðmundar
Þengiissonar fer fram á eigninni sjálfri fimmtudag 1.
febrúar 1979 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 161., 63. og 64. tbl. Lögbirtingablaðs 1978 á
Miðtúni 30, þingl. eign Einars D. Einarssonar, fer fram
eftir kröfu Garðars Garðarssonar hdl, á eigninni sjálfri
fimmtudag 1. febrúar 1979 ki. 11.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavik.
margar vistaverur
Menntamá laráðuneytið flutti
1968 úr Stjórnarráðshúsinu að
Hverfisgötu 4-6 og hefur haft
þar aðsetur siðan. Þá leigir þaö
húsnæði i Ingólfsstræti 5 og hef-
ur nú fest kaup á húseigninni
Laugavegi 166, Viðishúsinu.
Deildir þessa umfangsmesta
ráðuneytis landsins eru margar
og til húsa á flestum hæðum i
húsinuvið Hverfisgötu. Þangað
bauð Birgir Thorlacius ráðu-
neytisstjóri blaðamönnum að
skoða riki sitt.
60 manns að störfum.
Menntamálaráðuneytið er vel
mannaðmeðum 60 starfsmenn,
en sumir eru þó ekki þar i fullu
starfi. Engan skyldi undra þótt
mannmargt sé I ráöuneytinu,
þvi þar er 1 mörg horn að lita.
Byggingadeild sér um allar
skólabyggingar og skólamann-
virki. Fjármála- og áætlana-
deild hefur umsjón með áætl-
anagerö og stofnkostnaði skóla
og annarra stofnana, sem undir
ráðuneytið heyra, einnig nem-
endafjöldaáætlanir með meiru.
Greiðslu- og bókhaldsdeild
annast allar greiöslur ráðuneyt-
isins i hvaða formi sem er.
Grunnskóladeild sér um mál-
efhi er varða skyldunámsskóla
og forskóla, einnig skólastjóra
og kennararáöningar fyrir
þessa skóla.
Háskóla- og alþjóðadeild fer
með málefni Háskóla tslands,
Kennaraháskóla Islands og
allra skóla á menntaskólastigi.
Visindastarfsemi, fræðistörf og
rannsóknastarfsemi, einnig
norraait og alþjóðlegt menning-
arstarf.
tþrótta- og æskulýösmála-
deild hefur yfirumsjón með
skólaíþróttum og tþróttakenn-
araskóla tslands, æskulýös- og
tómstundamálum.
Allt frá fuglafriðun til
sinfóníuhljómsveitar
Undir safna- og listadeild
heyra mörg málefni t.a.m.
Þjóðleikhús, leikfélög, Mennta-
málaráð, Rikisútvarp (hljóð-
varp-sjónvarp) og Sinfóniu-
hljómsveit tslands. Náttúru-
verndarmál, mengunarmál
minjar og þjóðgaröar. Fugla-
friðun og dýravernd t.d. friðun
hreindýra.
Oll meiriháttar söfn landsins,
Landsbókasafn, Háskólabóka-
safn. Þjóðskjalasafn, Þjóð-
minjasafn. Listasafn tslands og
ýmis önnur lista-, bóka-,
náttúrugripa- og byggðasöfn.
Skólarannsóknardeild sér um
rannsóknir og tilraunastarfsemi
i kennslu, Rikisútgáfu náms-
bóka, námseftirlit ognámsmat.
Verk- og tæknimenntunar-
deild hefur umsjón með málefh-
um sem varða verk- og tækni-
menntun á grunnskólastigi, iðn-
fræöslu, iðnskóla, vélskóla og
aðra verkmenntunarskóla.
Fyrir utan deildir ráðuneytis-
ins sem eru alls 9 talsins er al-
menn skrifstofa sem sér um
m.a. upplýsingar, skjöl og
skjalagögn ráðupeytins.
Lenging skólaskyldu
Það kom fram i máli Birgis
Thorlacius að varðandi grunn-
skólalögin stæði aðaldeilan um
lengd skólaskyldu i 9 ár. övlst
er hvort Alþingi tekur upp um-
ræöu um 9. skólaskyldu-árið, ef
ekki. þá kemur þaö tii fram-
kvæmda eftir 2 ár.
Landinu er nú skipt I 8
fræðsluumdæmi og i hverju um-
dæmi erfræðsluráð. Unniö er nú
að þvi aö koma verkefnum út i
fræösluráöin. Engar verulegar
breytingar erufyrirhugaðar um
breytingu skólasvæða en heild-
ar tillögur um skiptingu skóla-
Þorsteinn Einarsson.deildarstjóri og Ingimar Jónsson námsstjóri
leggja á ráðin um skipulag Iþróttakennslu
t
Birgir Thoriaslus ráðuneytis-
stjóri hefur séð marga ráðherra
koma og fara; I riki hans eru
margar vistarverur.
Vísir kynnir
ráðuneytin
svæöa voru sendar út frá ráðu-
neytinu og eru nú til umræðu.
Ahersla hefur nú færst frá
heimavist nemenda yfir á
heimaakstur, þar sem þvi verð-
ur komið við.
Sumarnámskeið
Helstu breytingar sem orðið
hafa á menntun kennara á sið-
ustu árum uröu með stofnun
Kennaraháskólans, sem hefur
umsjón með endurmenntunar-
og sumarnámskeiðum kennara.
Um 900-1100 kennarar hafa sótt
þessu sumarnámskeið. t kjara-
samningum eru til ákvæði um
að skylda kennara til þátttöku i
þessum námskeiðum, en yfir-
leitt er þeim þetta frjálst.
Glæsileg skólahús
ónotuð
Eitt af mörgum vandamálum
sem ráðuneytið fæst viö er
minnkandi aðsókn að hús-
mæðraskólunum. Viða standa
nýjar og glæsilegar byggingar
sem ekki nýtast t.d. á Staðar-
felli í Dölum Ætiunin var aö
nýta þar húsin fyrir þroska-
hefta, en engir sérfræðingar
fengust.
Dönskukennsla i sjón-
varpi
I ráði er að hefja dönsku-
kennslu i sjónvarpi og útvarpi
innan skamms og deildarstjóri i
skólarannsóknardeild hefur
undanfarið setið fundi um þessi
mál. Að sögn ráðuneytisstjóra
er af ýmsum ástæðum heppilegt
að Islendingar læri dönsku, þó
að í reglugerð sé aðeins k veöið á
um að skylda sé að kenna eitt-
hvert Norðurlandamál.
Dönskukennarar eru hér flestir
og þá er samstarf við Dani
mikilvægt vegna mikils kostn-
kosta um 2 milljónir danskar, en
tslendingar munu liklega borga
17%. tsland er nú eina landið
utan Danmerkur sem hefur
dönsku að skyldunámi.
Hús i hönnun
Húsnæðismál Iþróttakennara-
skólans komu til umræðu og að
sögn Þorsteins Einarssonar
deildarstjóra er nú verið að
hanna nýtt hús fyrir tþrótta-
kennaraskólann. Þá kom fram
að nú liggur fyrir skýrsla um
samstarf íslands við hin
Norðurlöndin á sviði iþrótta-
mála, enkostnaður við þátttöku
i mótum hefur mjög háð tslend-
ingum i sliku samstarfi, en i
ráði er að koma á skipulagi sem
auðveldar þetta samstarf.
Meginmunur er á fjármögnun
iþróttamála hér og á hinum
Norðurlöndunum. Þar hefur
iþróttahreyfingin fasta tekju-
stofna i' formi ýmiss konar get-
rauna.
1 menntamálaráðuneytinu hitt-
um við fyrir Kristinu G. B.
Jónsdóttur sjónvarpsþul , sem
einnig er ritari Ragnars
Arnalds.
Snorri Sturluson
Menntamálaráðuneytið hefur
um nokkurt skeið gefuð út upp-
lýsingarit með ýmsum fréttum
og upplýsingum er varða ráðu-
neytið. Þar kemur m.a. fram að
ráðuneytið hefur skipað nefnd
til þess aö stinga upp á viðeig-
andi aðgerðum til minningar
um 800 afmæli fæðingarafmæli
Snorra Sturlusonar nú á þessu
ári.
Ragnar Amalds tiundi
Menntamálaráðuneytið var
áöur í samfloti,fyrst með dóms-
og kirkjumálaráöuneyti og sið-
an með forsætirráðuneyti, en
1970 varð Menntamálaráðu-
neytiö sjálfstætt ráðuneyti I
sinni núverandi mynd.
Alls hafa frá stofnun lýðveld-
is 1944 lOmenn veriö mennta-
málaráðherrar og er Ragnar
Arnalds sá tiundi I röðinni.
-Þ.F.