Vísir - 30.01.1979, Blaðsíða 14
Hressir og kátir Þróttarar, enda ekki ástæða til annars fyrir þá þessa dagana en að gleðjast. Þróttur
hefur nú góða forustu i 1. deildinni i blaki.
Þróttarar gefa
ekki þumlung eftir
— Þeir hafa komið sér vel fyrir í efsta sœti 1. deildar
í blakinu og stefna á íslandsmeistaratitilinn
Menn velta þvi nú fyrir sér,
hvort tslandsnieistarar tS i blaki
séu búnir að gefa upp vonina um
að vinna tslandsmeistaratitilinn
nú i ár. ÍS lék gegn Mimi frá
Laugarvatni um helgina, og tókst
aö sigra með 3:2 eftir talsverðan
barning.
Þaö kom á óvart að tS-menn
voru að gera tilraunir meö leik
sinn gegn Mimi, og halda sumir
að þaðsé merki um að þeir hyggi
nú setja stefnuna á Bikarkeppn-
ina frekar en Islandsmeistaratit-
ilinn.
Þróttarar eru hinsvegar ekki á
þeim buxunum að gefa eftir i
baráttunni, og þeir unnu Mimi
auðveldlega i' gær með 3:0. Þrótt-
ur hefur nú tapað fæstum stigum
allra liðanna i deildinni, og hrinu-
hlutfall liðsins er einnig mun
betra en hjá hinum liðunum. En
staðan i 1. deild er annars þessi:
Þróttur 10 9 1 29:9 18
UMFL 10 7 3 22:16 14
ÍS 853 19:14 10
UMSE 8 1 7 9:23 2
Mimir 8 0 8 8:24 0
Þri'r leikir fóru fram i' 2. deild
karla. tBV lék viö Viking og tap-
aði 0:3, við Breiðablik og tapaði
2:3 og þriðji ósigurinn var gegn
Fram sem sigraði Eyjamennina
3:1 i gær. gk-.
Arsenal mœtir
meisturunum!
Stórleikur 5. umferöarinnar I ensku bikarkeppninni verður án efa
viðureign ensku deildarmeistaranna Nottingham Forest og Arsenal,
tvcggja af bestu liðum á Englandi. 1 gær var dregið I keppninni, og
þessi félög leika saman I 5. umferð:
Oldham/Leicester — Tottenh/Wrexham/Stockport
C. Palace/Bristol City — Newcastle/Wolves
Newport/Colchester — Fulham/Manchester United
Ipswich/Orient — Bristol Rovers/Charlton
Nottingham Forest — Arsenal
Liverpool/Blackburn Rovers — Burnley/Sunderland
Aldershot/Swindon — Shrewsbury
Leeds/WBA — Preston/Southampton
Leikirnir i 5. umferð eiga að fara fram laugardaginn 17. febrúar.
_ ....... . .
Þriðjudagur 30. janúar 1979 VISIR
D
Jansen œtlar
ekki að koma
Hún reyndist ekki vera fjarri
lagi ágiskun hollenska fram-
kvæmdastjórans Van Dalen I
viðtali við Visi á föstudaginn, er
hann sagði að þaö yrði örugglega
erfitt fyrir hinn nýja þjálfara
Akraness i knattspyrnu, Jo
Jansen að komast til að þjálfa á
islandi i sumar.
Þannsama dag og viðtalið birt-
ist i Visi fengu Skagamenn skeyti
frá NAC Breda i Hollandi, þar
sem segir aö Jo Jansen muni ekki
koma til Islands og þjálfa liö
Akraness eins og um hafi veriö
samið.
Nánari skýring fékkst ekki á
þessu, en i viðtali Visis við Van
Dalen á föstudaginn sagöi hann,
að Jo Jansen hafi þá fyrr i vikunni
verið ráðinn aöalþjálfari 1.
deildarliösins NAC Breda.
Jansen var aðstoðarþjálfari
Gunnar
í Fram?
Flest bendir nú til þess að
Gunnar Bjarnason, mið-
vörður FH i knattspyrnu
undanfarin ár, muni leika
meö Fram I 1. deildinni i
sumar.
Gunnar hefur að undan-
förnu æft mcð Fram, og ef
hann skipti um félag væri
hann annar FH-ingurinn sem
þaö gerir á stuttum tfma.
Sem kunnugt er leikur
ólafur Danivalsson,
aðal-markaskorari, með Val
á næsta keppnistfmabili. —
Eins og menn muna féll FH i
2. deild s.l. haust. gk--
félagsins, ai þegar aöalþjálfarinn
lét af þvi starfi i' vikunni fékk
Jansen stöðu hans og þar með
getur hann ekki tekið aö sér
Skagamennina.
Hvernig hann ætlar að snúa sér
út úr þessu máli er ekki gott að
vita, en hann var búinn að undir-
rita samning við Akumesinga, og
standa þeir þvi með pálmann i
höndunum hvað þá hlið varðar.
-klp-
Natalia Marasescu. Hún setti
heimsmet i miluhlaupi um helg-
ina.
GOTT MET HJÁ
MARASESCU!
Eitt nýtt heimsmet sá dagsins
ljós á alþjóðlegu frjálsfþrótta-
móti, sem fram fór i Auckland á
N-Sjálandi um helgina.
Metið setti Natalia Marasescu
frá Rúmeniu i miluhlaupi, en hún
skeiöaöi vegalengdina á 4.22.1
min. og bætti eldra metiö, sem
hún átti reyndar sjálf, um 1,7 sek.
John Walker sigraði i 1500
metra hlaupi eftir harða keppni
við Bretann John Robson. Walker
fékk timann 3.45.9 min. en Robson
3.46.2 min.
Greta Waitz frá Noregi hafði
nokkra yfirburöi i 3000 metra
hlaupi kvenna, hún sigraöi og
fékk timann 8.44.1 min.
Ein óvæntustu úrslitin á mótinu
komu i 5000 metra hlaupi karla,
en þar sigraði Markus Ryffell frá
Sviss. Voru keppinautar hans þó
engir aukvisar, þvi hinn frægi
Dick Quax frá N-Sjálandi var t.d.
i 2. sæti. En timi Ryffells var
13.31.7 min. gk—
VERKSMIÐJUSALAN
MIKIÐ ÚRVAL AF BARNABUXUM, ENNFREMUR AÐRAR
BUXUR, PEYSUR, SKYRTUR OG VINSÆLU EFNISBÚTARNIR
ALLT MJÖG ÓDÝRT.
BUXNA-OG BUTAMARKAÐURINN, SKULAGÖTU 26