Vísir - 13.02.1979, Blaðsíða 9

Vísir - 13.02.1979, Blaðsíða 9
VÍSIR Þriðjudagur 13. febrúar 1979 Útvarpshlustandi hringdi: „Fyrst ferið er að ræða um tvær rásir i útvarpssendingum langar mig til þess að koma með tillögu um að önnur rásin verði notuð fyrir beint útvarp frá Al- þingi. Að vfeu er reynt eftir fremsta megni að koma með itarlegar fréttir af umræðum á Alþingi i fjölmiðlum enslikt dugir ekki til og oft er ekki skýrt rétt frá að minu mati. Það er erfitt að koma öllu þvi til skila sem fram fer þar og þvi finnst mér að það eigi að út- varpa beint frá Alþingi. Ég fer nokkrum sinnum á áheyrendapalla Alþingis að hlusta á þingmennina og þar kemur margt fróðlegt fram og fréttir af landsbyggðinni. Ég tala nú ekki um að þetta yrði alveg prýðilegt skemmti- efni lika þannig að þetta yrði i raun lifleg, blönduð dagskrá”. Páll Vilhjálmsson, sjónvarpsstjarna. Útvarpshlustandi Ieggur til að tekið verði upp beint útvarp frá Alþingi. Þar sé ógrynni frétta- og skemmtiefnis. Hvarer Snorri RSG skrifar: í öllum þeim umræðum sem orðið hafa um kaup- og kjara- mál að undanförnu hefur at- hygli vakið að Snorri Jónsson varaforseti ASt kemur þar hvergi naa-ri. Treystir þessi trúnaðarmaður Alþýðubanda- lagsinssérekki til að ræða þessi mál opinberlega? Kunningiminn i fréttamanna- stétt hefur sagt mér aö vikum saman hafi blöðum og fréttastofum ekki tekist að ná sambandi við Snorra Jónsson. Hann sé alltaf sagður á fundi þegar spurter um hann hjá ASt. Séþetta rétt er auðséö að Snorri vill ekki við fjölmiðla tala. Þá hlýtur að vakna sú spurning hvað hann hafi að fela. Er hann kannski hræddur um að fá spurningar um hvort samning- arnir séu komnir i gildi? Við viljum Palla Krakki frá Ólafsfirði skrifar: Ég les alltaf Visi þvi ég ber blaðið út. Ég sá að móðir skrifaði í lesendadálkinn fyrir hönd barna sinna, að Stundin okkar væri orðin leiðinleg eftir að Palli hætti að koma i heim- sókn. Ég er sammála henni. Það er allt of mikið af kennslu i þættin- um en mér finnst alveg nóg að læra iskólanum. Mér finnst, að Palli ætti að koma aftur, þvi þá yrðu krakkarnir ánægðir. An hans verður Stundin okkar ekki góð. Stundin okkar fer versnandi með ári hverju. Þess vegna legg ég til, að umsjónarmennirnir endursýni bara eitthvað af gamla, góða efninu, þvi gottefni er alltaf hægt að horfa á aftur. Nafnlausar bœk- ur eru ekki til Kristjánsson Kristján hringdi: „Svavar Gestsson viðskipta- ráðherra stendur upp á Alþingi og þykist hafa fundið mörg þús- und nafnlausar sparisjóðsbækur i bönkum. Mátti skilja af frétt- um að ráðherra hefði þótt þetta merkileg uppgötvun. Ég vil hins vegar spyrja Svavar hvernig hann fór að þvi að finna nafnlausar bækur i bönkum? Nafnlausar banka- bækur eru nefnilega ekki til ef málið er skoðað nánar. Ef þú ert með bankabók sem þú vilt ekkiað aðrir geti tekið út úr þá er hægt að setja slika bók bara á númer. En að sjálfsögðu þarf alltaf að skrifa fullt nafn san kvittun þegar tekið er út úr slikum bókum. Hvarer þánafn- leysið? Þaö er ekki til og hefúr ekki verið til”. Lœknaritari í Hveragerði Ritari óskast á læknastofuna í Hveragerði. Vinnutimi 3 klukkustundir á dag. Laun sam- kvæmtlO. launaflokki B.S.R.B. Upplýsingará Hreppsskrifstof unni sími 99-4150. Sve ita rst jóri Hvera gerðish repps. húsbyggjendur Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðió frá mánudegi — föstudags. Afhendum vöruna á byggingarstað, viðskiptamönnum að kostnaðar lausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. > Borgarplast hf Boróamesi sfmi«3 7370 k»ö>d 09 hclsanimi 91 7355 HEIMDALLUR OG HVÖT halda sameiginlegan fund miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1. illjj FUNDAREFNI: FRIÐHELGI EINKALÍFS með sérstöku tilliti til foreldra og barna. Framsögumaður: RAGNHILDUR HELGADÓTTIR alþingismaður. Að lokinni framsögu verða frjálsar umræður og síðan pallborðsumræður. ALLIR VELKOMNIR td« !!!!! ■■■■■ ::::: »!:: ■■■■■ ■■■•■ ::::: ::::: illil ■■••■ nm ■•■■• ..... iilj! ik:: ÍiiH !iii!iiiiíiillíiiii!iii!lHi!iiii!iiU!iiíIf!!i!!!iníinjjii!j!i!iHÍB!iiI!iiiOHi!!!!iiijiiriiiliiii

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.