Vísir - 24.02.1979, Síða 10

Vísir - 24.02.1979, Síða 10
10 Útgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davifl Guðmundsson Ritstjórar: úlafur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaflamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurður Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson, Por- valdur Friðriksson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmynd- ir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Utlit og hönnun: Jón Oskar Haf- steinsson, AAagnús ölafsson. Laugardagur 24. febrúar 1979' VÍSIR Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siflumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiösla: Stakkholti 2-4 sfmi 86611. Ritstjórn: Siflumúla 14 slmi 86611 7 linur. Askrift er kr. 2500 á mánufli innanlands. Verfl i lausasölu kr. 125 eintakið. Prentun Blaflaprent h/f Allmiklar umræður hafa farið fram undanfarin ár \ fjölmiðlum um það, hvort leyfa ætti frjálsan útvarps- rekstur hér á landi. Háværar raddir hafa komið f ram um að einokun ríkisins á þvi að senda dagskrárefni út á öldur Ijós- vakans verði aflett, en aftur- haldsmenn hafa maldað í mó- inn og talið sjálfsagt að ríkið eitt hefði með höndum þennan þátt fjölmiðlunar. Tvö frumvörp sem bæði miða í f relsisátt í þessum ef n- um liggja nú fyrir Alþingi, um landshlutaútvarpog leyfi fyrir sveitarfélög, menntastofnanir og einstaklinga til þess að hefja útvarpsrekstur. Bæði eru frumvörpin flutt af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins. Umræður um þau í þinginu sýna að allmikil andstaða er meðal ýmissa aðila, sem þar sitja gegn frelsi í útvarps- rekstri. Þar á meðal hafa ungir og að því er talið var, nútímalega þenkjandi þing- menn Alþýðuflokksins, meðal annarra mælt gegn málinu. Þeir vilja, að þessi þáttur nú- tímaf jölmiðlunar verði háður einokun ríkiskerfisins áfram. Visir hefur undanfarin misseri hvattt til þess að landsmönnum verði veitt frelsi til útvarpsfjölmiðlunar, auðvitað samkvæmt ákveðn- um reglum, á sama hátt og frelsi ríkir hér á landi varð- andi önnur svið f jölmiðlunar. Baráttu fyrir frjálsum út- varpsrekstri ber ekki að skilja svo að menn vilji láta leggja ríkisútvarpið niður. útvarps- stöðvar í eigu sveitarfélaga, menntastofnana og einstakl- inga myndu aftur á móti veita þvi samkeppni, sem eflaust myndi bæta þjónustu þess og efni frá því sem nú er. Stöðnunin og íhaldssemin, sem ríkt hefur um árabil hjá hljóðvarpsdeild ríkisútvarps- ins er f arin að fara í taugarn- ar á mörgum landsmönnum. Að vísu eru Ijósir punktar í !■■■ ■■■■■■■■■ dagskránni svosem léttir bland- aðir þættir og tilraunaútsend- ingaraf landsbyggðinni en slík nýbreytni á erfitt uppdráttar. Stereðútsendingar hafa aldrei veriðathugaðar í alvöru á veg- um stofnunarinnar og virðast litlar líkur á sú nýja tækni verði tekin í notkun í bráð hjá útvarpinu, þótt auðvelt hafi verið fyrir sjónvarpið að skipta yfir í litútsendingar frá svarthvítu, sem er þó margfalt meira mál. Það vekur auk þess furðu, hve erfitt ráðamenn Ríkisút- varpsins eiga með að raða verkefnum í rétta forgangs- röð, eftir þýðingu þeirra. Glöggt dæmi um það er áhugi sumra þeirra á því að byrja út- varp á nóttunni í sumar og setja allt að milljónatug í slíkt fyrirtæki. Endurnýjun dreifikerfis er látin reka á reiðanum, stereó- útvarp telst einhvers konar framtíðarmússík, og viðbótar- útsendingarrás, til þess að koma til móts við kröfur hlustenda, er víðsfjarri út- varpsráði og stjórnendum út- varpsins, Ekkert af þessu kemst á óskalistann ennþá, en aftur á móti eru útvarpsherrarnir vísir til að gleypa hugmyndina um næturútvarp alveg hráa. I stað þess að gera meiri- hluta þjóðarinnar til hæfis til dæmis með aukadagskrá á annarri sendirás á þeim tíma sem meginþorri þjóðarinnar er vakandi eru menn i f ullri al- vöru að hugsa um hvernig þeir geti þóknast því litla prósenti, sem verður vegna starfa sinna að vaka eina og eina nótt í viku. Raunhæfara væri að setja næturútvarpsmilljónirnar í þróun stereóútvarpsins eða byrjun útvarps á nýrri rás og benda nátthröfnunum á að út- vega sér létta mússík á snæld- um sér til afþreyingar á með- an meirihluti landsmanna sef- ur. STEREÓ, NÝ RÁS OGNÆTURÚTVARP V__________________________________J Á förnum vegi eftir Gísla Jónsson Á skiðum í Hlíðarf jalli. þar þvl á fórnum vegi til fyrir- heitna landsins. NU man ég allt i einu eftir þvi aðliklegaer ekki eins langt sið- an ég skreið og ég hélt áðan. Menntaskólinn átti margar skriðferðir i útgarö á árum áöur og kennarar voru þarlöng- um i' ferðum meö nemendum sinum, sjálfum Sér til heilsubót- ar og ánægju, og til ómetanlegr- ar kynningar við nemendur. Ekki voru hinir siðarnefndu alltaf jafnánægöir með tiltektir kennara, enda skyldu þeir ekki aðeins vera félagar nemenda sinna i Útgaröi, heldur einnig „góðra siða verðir”. En þaö vildi koma fyrir i ferðum þess- um að „skriðið” væri upp i ann- an svefnpoka en þann sem til hafði veriö tekinn, þegar að heiman var búist. Höfundur minnist þess aö hann heföi ein- hver-ja tilburði aö halda hverj- um og einum nemanda að sinum poka, eöa svo var að minnsta kosti sagt. Pokaskriðið og það, sem þvi fylgdi, varö þá ennþá meira spennandi og eftirsókn- arvert, og árangur og oröstir siövarðar eftir þvi. Hallldór Blöndal, nemandi I 5. bekk máladeildar, kvaö: Ekki skal I útgarösför ástar slokkna brimi, þótt Gisli sundur sveigi pör og svefnpokana rými. Ég minnist samkennara minna og vina skriöandi um Glerárdal og Hliðarfjall. Bryn- leifur Toblasson, sögu- og latinukennari (quem honoris causa nomino) var þar eitt sinn á skiöum og skreið mikinn ofan brekkur og bratta, en skyggni var miölungi gott. Þar kemur skriöi Brynleifs aö hengja er framundan, en af henni hefur hann ekkert veöur, og er á hon- um þungur skriður. Góðviljaður nemandi hans, sem sér gleggra og þekkir land betur, skynjar hættuna og kallar til hans i varnaðarskyni. Brynleifur Tobíasson var manna kurteis- astur og bar frá hversu háttvis hann var I oröum. Það er jafti- snemma aö hann heyrir varnað- arorð nemandans og hann sér hættuna framundan, þá sem með engu móti verður umflúin. Og um leið og hann hefst til flugs og svifur fram af hengi- fluginu, berst svar hans um loft- ið til lærisveinsins: Of seint, góði, ellers takk”. AF SKRIÐI UM HLÍÐARFJALL OG GLERÁRDAL „Austur skreið Egill að öl- rúnu”, segir i fornu kvæði um mann sem fór á skiöum að leita konu sinnar, er hún hafði hlaup- ist á brott frá honum. Þeir sklð- uöuekki göinlu mennirnir, held- ur skriöu, enda flýttu sklðin svo mjög för þeirra í snjó, að skriö- ur komst á hana. Eins og nærri má geta, báru Finnaraf öðrum i þessari iþrótt og voru fyrir vikið nefndir Skriö-Finnar, en þaö þætti llklega ekki virðuleg nafn- bót nú. Ósköp er langt síöan ég skreiö siðast. Ég held að liöin séu ein tuttugu ár frá því að ég steig á skiði. Ég get þvl ekki sagt eins og Rögnvaldur jarl kali I Orkn- eyjum: „Skrlöa kann ég á skíö- um”, en þá var hann aö stæra sigaf margbreytilegri kunnáttu sinni i iþróttum og nefndi þar til ni'u greinar: tafl, rúnalist, bók- lestur, smiöar, skriðfimi. skot- Fimi, róður hörpuslátt og vlsna- gerð. Fáum er slik fjölhæfni gefin. Þótt ég skriði ekki sjálfur, hefur vegur minn undanfarna daga suma hverja legið upp i Hli'öarfjall, þar sem menn skriða meira en viða annars- staöar. Ég hef sem sagt leitast viö aö láta son minn njóta þess sem ég treysti mér ekki til sjálf- ur. Og hann skriöur sannarlega sér til hreysti og unaöar, og hann er sveimér ekki einn um þaö. Heim kemurhann hæfilega þreyttur og hæfilega svangur. Ótölulegur manngrúi skriður i Hliöarfjalli, þegar vel viörar til þess, og þaö er oft. Margur er

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.