Vísir - 07.05.1979, Side 1

Vísir - 07.05.1979, Side 1
FYRSTII LONIBIN KOMIN - 09 vorverk hafin í sveltum Sauðburður verður ekki almennt kominn í gang fyrr en undir miðjan maí en fyrstu lömbin eru nú samt farin að tínast í heiminn, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Vísir hafði samband við Steinþór Gestsson, hjá Stéttarsambandi bænda, og forvitnaðist um hvernig jörð kæmi undan snjónum og hvort ekki væri að lifna yfir sveitunum. „Það lifnar alltaf yfir þegar fyrstu lömbin koma," sagði Steinþór, ,,og menn verða þá bjartsýnir á framtíðina. Það hjálpar til við skapið núna að ekki hefur orðið vart við neitt sem bendir til kals, hér sunnanlands og fyrir aust- an. Tún eru ekki komin und- an snjó fyrir vestan og norðan svo það er of snemmt að segja hvernig þau eru þar. Bændur eru nú byrjaðir á vorverkum hér fyrir sunn- an,það er til dæmis víða komin mykja á túnin. Ef heldur áfram að hlýna verður ekki langt i að fara megi að bera á tilbúinn á- burð. Það er auðvitað nokkuð áhyggjuefni, að hann er mismunandi mikið kominn til bænda og þeir geta orðið fyrir skakkaföllum ef þeir fá hann of seint vegna verkfalla. Það verður auð- vitað leitað eftir undan- þágum til áburðar- og kjarnfóðurf lutninga eftir því sem þurfa þykir. —ÓT.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.