Vísir - 07.05.1979, Blaðsíða 5
VÍSIR
Mánudagur 7.
mal 1979
KOMINN TÍMI!
TIL TJÁSKIPTA |
-segir Parkinson prðlessor er heldur fyrlrS
lestur hér á
Á fimmtudaginn, þann 10.
maf„ mun höfundur Parkin-
sonsiögmálsins, Cyrfl Northcote
Parkinson prófessor, flytja er-
indi á hádegisveröarfundi
Stjórnunarfélagsins sem hald-
inn veröur aö Hótel Sögu. Á
fundinum mun prófessorinn
flytja erindi sem hann nefnir
,,The Art of Communication”.
Parkinson er fæddur áriö 1909
og lauk doktorsprófi frá
Lundúnaháskóla. Hann hefur
kennt sagnfræöi viö ýmsa há-
skóla í Bretlandi, Bandarikj-
unum og Malasiu auk þess aö
rita mikiöum sagnfræöileg efni.
Bókin „Lögmál Parkinsons”,
sem kom út áriö 1957 geröi hann
heimsfrægan og siöan hefur
hannbætt viö nokkrum bókum
um stjórnunarmál auk skáld-
verka. Áriö 1977 kom Ut bókin
„Communication” sem Parkin-
son skrifaöi i samvinnu viö
blaöamanninn Nigel Rowe og
hefur sú bók bakiö mikla
athygli.
A þessu ári er væntanleg eftir
hann ævisaga Jeeves, skáld-
sagnapersónu úr ritum P.G.
Wodehouse, og einnig mun
„Lögmál Parkinsons” koma út í
nýrri og endurbættri útgáfu, en
höfundurinn telur aö þróun slö-
ustu ára hafi litt haggað gildi
þess.
Parkinson hefur fariö viöa um
heim og haldiö fyrirlestra en
þetta er i fyrsta sinn sem hann
kemur til lslands. Auk fyrirlest-
urins mun hannræöa viö starfs-
bræöur sina 1 Háskóla islands
og kynnast mönnum og málefn-
um hér á landi.
vegum stjórnunarfélagsins
Tjáskipti
„The time has come to
communicate” er kjörorö bók-
arinnar "Tjáskipti”, eftir þá
Parkinsonog Rowe. Bókin mun
koma út á dönsku innan
skamms og hefur nokkuö veriö
fjallaö um efni hennar og boö-
skap i dönskum blöðum aö und-
anförnu. Þaö er kominn timi til
þess aö fyrirtæki, atvinnulSiö
og kerfiö efni til tjáskipta viö
allan almenning.
I inngangi bókarinnar er
meðal euinars bent á að eftir lok
heimstyrjaldarinnar siöari hef-
ur almenii menntun stööugt far-
iö vaxandi. Margir af ungu kyn-
slóöinni halda þvi fram að iön-
aöurinn og tæknidýrkun hafi
valdið vandræöum vegna um-
hverfismengunar og eru þvi á
móti honum, en vilja samt sem
áöur aö iðnaöurinn standi undir
bættum llfskjörum meö þeirri
tækni sem hann ræöur yfir.
Þama hafi myndast sambands-
leysi sem þurfi aö ráöa bót á.
Höfundarnir benda á þörfina
fyrir þaö aö embættismenn, at-
vinnurekendur og aörir ráöa-
menn fari aö tala mál sem allir
geta skiliö I staö þess aö nú tali
menn hver á sinn hátt meö þeirn
afleiðingum aö ýmiskonar
vandræöi og misskilningur hlýst
af.
Pólitiskar og þjóöfélagslegar
breytingar i Evrópu á undan-
fórnum árum hafa orðið miklar
og nánast sett atvinnurekstur-
inn I vörn. Nú getur atvinnu-
reksturinn valiö um að halda
áfram i varnarstöðunni eða haf-
ið sókr til aö kynna sin sjónar-
mið. Gallinn er bara sá að fáir
hafa hugmynd um hvemig þeir
eigi að fára aö þvi, segja höf-
undar bókarinnar. Alltof margir
em blindir á nauðsyn þess að
kynna fyrirtækiogstööuþeirra I
þjóöfélaginu.
Raunar má segja ístuttumáli
að bókin Tjáskipti fjalli um
nauðsyn þess aö koma boðskap
og framleiðslu á framfæri ekki
síður en að hugsa um fram-
leiðsluna sjálfa.
Varanleg álklœðning
á allt húsið
Samkvæmt rannsóknum sem Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins hefur gert á
steypuskemmdum og sprungumyndunum á húsum, hefur komið i Ijós að eina varanlega lausnin,
til að koma i veg fyrir leka og áframhaldandi skemmdir, er að klæða þau alveg til dæmis
með álklæðningu.
A/klæðning er seltuvarin, hrindir frá sér óhreinindum, og þolir vel islenska veðráttu.
A/klæðning er fáanleg í mörgum litum sem eru innbrenndir og þarf aldrei að mála.
Leitið nánari upplýsinga og kynnist möguleikum A/klæðningar.
Sendið teikningar og við munum reikna út efnisþörf og gera verðtilboð
yður að kostnaðarlausu.
FULLKOMIÐ KERFI TIL SÍÐASTA NAGLA
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
Vandið valið
veljið
KLIPPINGUNA
frá
Óðinsgötu 2 Sími 22138
- AUGLÝSIÐ í VÍSI -
CB-50-J
Aætlað verð
SUPER SPORTS
10/4 1979
kr. 490.000.-
SS-50-ZK3
Áætlað verð 10. apríl 1979
kr. 390.000,-
Væntanlegt um miðjan maí.
Mjög góð varahlutaþjónusta
HONDA á íslandi
... Suðurlandsbraut 20
Reykjavík S: 38772.