Vísir - 07.05.1979, Qupperneq 11
Er hugsunartiáttur em-
öætlismanna staönaöur?
HKL skrifar:
„Nú í eóða veðrinu sem verið
hefir undanfarna daga lifna all-
ir við og borgin fær á sig allt
annan blæ.
Eftir langan og kaldan vetur
er það unun að fara út i vorhlý-
indin. Þetta er eins og gjörbylt-
ing á örfáum dögum.
En hvað gerir borgin til aö
koma á móts við fólkið sem leit-
ar út. Hafa menn að einhverju
að hverfa.
Svo mjög sem okkur er nauð-
synlegt að nýta sem best þá fáu
góðviðrisdaga sem eru á ári er
sorglega litið gert fyrir til þess
að fólk hafi eitthvað við að vera.
Það er ekki nauðsynlegt að
borgin sjálf sjái um afþreyingu
fyrir fólkið. Hins vegar þurfa
reglur og viðhorf embættis-
manna að vera frekar hvetjandi
enletjandifyrir þá sem eitthvað
vilja gera til að lifga upp á grá-
an hversdagsleikann.
Án þess að ég vilji nefna nokk-
ur ákveðin dæmi hef ég það á
tilfinningunni, sem og fleiri, að
það sé rikjandi viðhorf forráöa-
manna i félagsmálum á vegum
borgarinnar að aðgerðarleysi
og afskiptaleysi sé best. Rétt
eins og þeir séu hræddir viö
gagnrýni og umræður ef þeir
taka sér eitthvað fyrir hendur
eða styðja einhverjar góðar
hugmyndir.
Þrátt fyrir aö við búum i
margrómuðu lýðfrjálsu landi er
réttur einstaklingsins til að lifa
og starfa og uppgötva umhverfi
sitt og hafa áhrif á það mjög
fyrir borð borinn. Ekki meö
lagaboði heldur með stirðnuð-
um hugsunarhætti embættis-
manna.”
Það vantar meira af uppátækjum til þess að hressa uppá mannllfið f
borginni.
Fermingin — hátiðieg stund fyrir marga, en ganga veisluhöldin og gjafirnar ekki át I öfgar
Athugið hvort við getum aðstoðað
isetningar á staðnum.
BÍLRÚÐAN
SkúJagötu 26
simar 25755 og 25780
Rakarastofan
Klapparstíg
simi 12725
HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG
Klapparstíg 29 - Simi 13010
Smurbrauðstofan
BJQRNINN
Njálsgötu 49 — Simi 15105
„Slðrkostleg
mammonsblðt”
EP hringdi:
„Einn er sá löstur á Islend-
ingum aö allt sem þeir taka sér
fyrir hendur er svo gengdar-
laust og óhóflegt að út yfir allt
tekur.
Nægir hér að minna á utan-
landsferðir, jólahald og klæða-
burð svo eitthvað sé nefnt.
Og nú á vordögum standa
fermingar sem hæst þar sem
unglingarnir staðfesta skirnar-
heit sitt og komast i kristinna
manna tölu.
Fyrir hvern þann sem tekur
slika ákvöröun I einlægni ætti
þetta að vera hljóðlát og friðsæl
stund, sem haldin er hátiðleg
með nánasta skyldfólki.
En það er nú eitthvað annað
uppi á teningnum. Efnt er til
stórkostlegustu ^nammonsblóta
sem um getur I þessu tilefni.
Tugum manna er hóaö saman
til veislu, skyldum sem óskyld-
um. Hef ég það fyrir satt að
sumir foreldrar taki á sig var-
anlegan skuldabagga til þess að
halda þessar fermingaveislur
og til þess að geta gefið börnum
sinum nógu glæsilegar gjafir.
Það dugir ekki minna en dýr-
indis hljómflutningstæki fyrir
hundruð þúsunda eða utan-
landsferð. Auk þess fá ferming-
arbörnin samtals um 300 þúsund
krónur I fermingargjafir frá
hinum og þessum, að ónefndum
öllum öðrum gjöfum.
Ekki minnist ég þess að hafa
heyrt andmæli frá prestastétt-
inni gegn þessu ástandi sem
mér finnst ekki vera sannkristi-
legt. Væri ekki réttara aö
gera meira úr inntaki kristilegs
boðskapar á þessari stund en aö
sóa verðmætum I haldlausan
ytri búnaö sem einungis skapar
rlg og samanburð milli barna og
foreldra þannig að margir
verða óánægðir á þessum degi
fagnaðar”
Frönsk snyrtivörulína í fjölbreyttu úrvali, framleidd
fyrir viókvæma húð og þá sem hættir við ofnæmi.
Gerð úr sérstaklega hreinsuðum hráefnum af bestu
fáanlegri gráðu og inniheldur engin ilmefni þarsem
þau geta verið varhugaverð fyrir viðkvæma húó.
Framleidd við sömu skilyrði og eftir sömu kröfum
og lyf og undir stjórn lyfjafræðinga. Á umbúðum er
getiö innihaldsefna auk framleiósludags. Varan
hefur þegar fengið gott orð hér og þykir afburða
góð.
Hagstætt verð.
Einnig aðrar snyrtivörur, t.d.:
Cliristian Dior Ckorlst ciftiaJtffz. MAXFACTOR
revlon & sans soucis |nintYQUiiKf phyris
■■■■ LÍTIÐ INN OG LiTIÐ A
SIlaugavegs apotek
1 snyrtivömdeiJd