Vísir - 20.04.1979, Blaðsíða 7

Vísir - 20.04.1979, Blaðsíða 7
 VÍSIR Föstudagur 20. april 1979. Umsjón: GuOmundur Pétursson Fjölskylúa Dóru Bloch hugsar Amin hegjandl hörflna Fjölskylda Doru Bloch, bresku konunnar, sem hvarf sporlaust af sjiikrahúsi i Uganda i árásinni á Entebbeflugvöll, hefur nú lagt fé til höfuðs Idi Amin fyrrum forseta Ugnada. Heitir hún verðlaunum hverj- um þeim, sem veitt geti upplýs- ingar, er leiði til handtöku Amins, svo að unnt verði að láta hann svara til saka fyrir misgjöröir. Dora Bloch var roskin kona, gyðingaættar. Hún var meðal far- þega I Air France-þotunni, sem Palestinuskæruliðar rændu i júli 1976. Þotunni var lent á Entebbe- flugvelli, en vikingasveit frá Isra- el bjargaði, eins og frægt er, far- þegunum, sem flestir voru gyð- ingar. Meðan farþegarnir biðu I klóm arabisku skæruliðanna, sem nutu verndar og stuðnings Idi Amins, varð Dora Bloch að leggjast inn á sjúkrahús vegna hálsmeins. Hún var þvi ekki i hópi annarra gisla, þegar Israelsmennirnir frelsuöu þá. Siðan heíur ekkert til Doru spurst, og þegar grennslast var siðar fyrir um hana, vildu Uganda-yfirvöld helst ekkert við hana kannast, og létust ekkert vita um afdrif hennar. En það hafa allir fyrir satt, að Amin marskálkur, sem trylltist af bræði vegna ófara manna hans i áhlaupi ísraelsmanna á Entebbe hafi látið fyrirkoma Doru i hefndarskyni. Benny Block 44 ára gamall sonur hennar, skýrði frá þvi á dögunum, að hann og bræður hans tveir mundu leggja fram fé til þess að hvetja fólk i viðleitni til þess að koma iögum yfir Amin. Það hefur ekki verið ákveðið enn hversu há upphæðin verður. Sjálfur ætlar Benny til Uganda, þegar óhætt þykir, og reyna aö finna jarðneskar leifar móður sinnar, til þess að flytja til Eng- lands I veglegan legstað. Hjónaskiln- aðir tlðlr Rómantisk ást er þaö eina, sem réttlætir kynmök og hjónaband, sagöi i einu sovésku blaðanna á dögunum, en þar kom fram, að þau hjónabönd, sem ástarguðinn efnir til, þurfa ekkert að vera traustari en önnur fyrir það, þvi að skilnaðir eru tiöir þar eystra. Komsomolskaya Pravda, mál- gagn ungkommúnista, segir, að kannanir hafi sýnt, aö ástin hafi verið tilefni 90% hjónabanda, sem stofnað hafi verið til. — „Undir sósilaismanum er róman- tisk ást sá grundvöllur, sem rétt- lætir kynmök og hjónaband,” segir blaðiö, en bætir vð: „Mis- heppnuðum hjónböndum — eitt af hverjum þremur samkvæmt sið- ustu skýrslum — fer stöðugt fjölg- andi, og þá sérstaklega I borgum og bæjum.” Blaðið segir ennfremur, að þró- un I stærö fjölskylda hafi veriö i áttina til færri barnaeigna. Þær séu nú fleiri fjölskyldurnar en áð- ur, sem eiga eitt eða ekkert barn, og hafi þetta á sumum svæ&um dregiö mjög úr ibúafjölgum. I gegnum árin hafa kynferöis- mál verið mikil feimnismál i sov- elskum fjölmiðlum, en þó hefur seinni árin skotið upp einni og einni grein um þörf á kynferöis- fræðslu. Grisk stjórnvöld hafa ákveöið að setja á laggirnar tilraunastofu gagngert til þess að finna tækni- legar leiöir til þess að vernda marmarann i fornminjum Akró- pólishæðar i Aþenu. Demetfios'Nlianias, menntamála- og visindamalaráðherra, skýröi frá þvi I vikunni, að safnaö hefði verið 350 þúsund dollurum i al- þjóðlegum samskotum til þessa verkefnis. En viða um heim eru menn, sem mega ekki til þess hugsa, að hin fornu hof og forn- leifar griskrar menningar forn- aldar eyðileggist, og eins og nú horfir til einkanlega vegna tnengunar andrúmsloftsins af út- blæstri bifreiöa. Hofleifarnar eru 2.500 ára gamlar, og hefur griska stjórnin um nokkurt skeið haft starfandi sérstaka nefnd til þess að huga að viðhaldi og vernd þessa menningararfs. Tilraunastofan verður rekin á vegum þessarar nefndar, sem þegar hefur látið fjarlægja ýmsar höggmyndir af Akrópólishæöinni og setja upp eftirlikingar I stað- inn. Hver annar en BINA TONE getur boðið stereoútvarpstæki með kassettuseguibandi á svipuðu verði og mono. ER TIL BETRIFERMINGA RGJÖF? D |. . I ixaaiooær ÁRMÚLA 38 (Selmúia megin) - 105 REYKJAVÍK SÍMAR: 31133 83177 PÓSTHÓLF1366

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.