Vísir - 02.04.1979, Qupperneq 8
VISIR Mánudagur 2. a'prll 1979
8
Niðursubutæki Norfturstjörnunnar, en hver pottur getur soöiö 5000 dósir leinu
Vísismyndir JA
Brenna elkarspæni
tli aö reykja slld
vtsm
helmsæklr
Norðurstjörnuna
Hafnarlirði
,,Við náðum góðum samningum og ráðamenn
þjóðarinnar telja greinilega svo vera lika, þar sem
sildarkvótinn i haust var hækkaður til að bátarnir
gætu veitt nóg hráefni fyrir okkur svo að við gætum
fullnægt samningnum við Bandarikjamenn”, sagði
Pétur Pétursson, framkvæmdastjóri Norðurstjörn-
unnar hf. i Hafnarfirði.
Visismenn skruppu fyrir stuttu suður i Hafnar-
fjörð og kynntu sér framleiðslu Norðurstjörnunnar,
en verksmiðjan er nýlega tekin til starfa eftir
þriggja ára vinnslustöðvun vegna markaðserfið-
leika erlendis.
Blaöamaöur ræöir viö Valgarö Einarsson um reykofninn sem sést í
baksýn. Einnig eru á myndinni Pétur Pétursson og Guömundur Þór-
oddsson verkstjóri.
Starfsstúlkur Noröurstjörnunnar vinna aö niöuriagningu léttreyktrar sfidar.
Norðurstjarnan er nú að fram-
leiða upp i samning sinn til
Bandarikjanna en þangað er seld
niðursoðin,reykt sild.
Pétur Pétursson frarnkvæmda-
stjóri var spurður að þvi hvort
hann væri bjartsýnn á aukna sölu.
„Verðið er ekki hátt, en það er
viöunandi. Hráefnisöflunin er nú
aðalatriöið og við búumst viö aö
stjórnvöld taki til athugunar, aö
lengja þann tima sem veiðar
standa yfir.
Jú, ég er bjartsýnn á framtið
þessa iönaðar, en ekki alls lag-
metisiðnaðarins. Samkeppnin er
mjög hörð erlendis”.
— Hvað afkastar verksmiðjan
miklu á dag?
„Niðursuðuafköstin eru svona
30-35 þúsund dósir á dag eins og
fyrirtækið er rekið núna og ajlt er
þetta unnið i dagvinnu. Jú, þetta
eru góð afköst miðað við vinnu-
tima og fjölda starfsfólks. Hér
vinna um 50 manns”.
— Hvað um gæði fram-
leiðslunnar. Standast gæðin kröf-
ur útlendinga?
„Við höfum þær upplýsingar
frá rannsóknarstofnunum i
Bandarikjunum og Noregi að
gæðin séu jafn-góð eða betri en
best gerist erlendis”.