Vísir - 02.04.1979, Page 10

Vísir - 02.04.1979, Page 10
10 VISIR Mánudagur 2. april 1979 Það er leikarinn Peter Ustinov sem sést hér i tveimur hlutverk- um á meðfylgjandi myndum. Hann er þarna i tveimur hlut- verkum i myndinni „Einstein’s Universe”, sem fyrir stuttu var frumsýnd i sjónvarpi i Bandarikj- unum. Þar fer hann með hlutverk tviburabræðra, sem lifa ákaflega óliku lifi. Annar þeirra heldur sig við jörðina og eldist eins og aðrir. Hinn gerist geimfari, og ferðast svo mikið um geiminn að timinn stendur kyrr. sandkorn Umsjón: Óli Tynes íbróttaandinn FH aðdáandinn var að reyna að útskýra fyrir dómaranum hvernig stóð á ógurlegum ólát- um eftir einn leikinn við Val. „Sko, það rakst einn Valsar inn á mig svo ég missti FH flaggið mitt, svo ég gaf honum auðvitað einn á’ann. Vinur hans barði mig þá i hausinn með kókflösku, svo að vinur minn gaf honum hnfeð i fjölskyldugimsteinana. Svo fór einhver náungi að sparka i hann þar sem hann lá I gólfinu. Og þá byrjuðu slagsmálin. Háteklurnar Alþýöuflokkurinn hafði á orði i fyrri viku að hann vildi reyna aö komast út úr kjaramála vandræðunum með þvi að bjóða lágtekjufólki skattafvilnanir. Þetta er svo sem gott og biessað, en þó einn galli. Þegar menn voru að skila siðustu skattaskýrslu, iétu fiestir reikna út fyrir sig hvers þeir mættu vænta. Og þá kom í ljós aö sam kvæmt skattafrum varpi og áætlunum rlkisstjórnar var fullt af mönnum i landinu sem höföu ekki hugntynd um að þeir væru hátekjumenn. Rikisstjórnin og almenningur hafa dáiitiö misjafnar skoðanir á þvi hvað eru hátekjur og hvað ekki. Skagamenn \-.terix-skátar i liafnarfirði senda vinum sinum á Skag- anum eftirfarandi kveðjur: \ inur minn. .Skagamaðurinn, er i kkert horaður. \ei. nei. En i burnaskóla, þegar liann var i leiktimi þurfti hann að lilaupa um i sturtunni til að vökna. K.inu sinni sneri hann hliöinni i kennarann og það var skrifaö skróp hjá honunt. — O — Og þegar hann er i smá- röndóttu náttfötunum sinum, sést bara ein röndin. FfknTefni Tveir Islendingar sem sitja i fangelsi I Kaupmannahöfn hafa nú að sögn viðurkennt að eiga þatl i dreifingu kókainsins, i fikniefnamálinu mikla sem kom upp á dögunum. Fíkniefnastreymi hingað til lands er meira en flesta grunar. Ilingað til hefur einkum verið .flutt inn” hass, en sterkari efna er farið að gæta. Og enn fljóta stjórnvöld sof- andi að feigðarósi. Það er aug- ljóst aö gera verður stórátak til að efla fikniefnalögregluna, á Islandi, en eftir þvf sem best er vitað eru engar áætlanir til um það. A hinum Norðurlöndunum er nú svo komið að þar deyr fjöldi ntanns árlega vegna ofnotkunar fikniefna, og enn fleiri eru aum- ingjar og byrði á þjóðfélaginu. Það er barnalegt að halda að þetta geti ekki gerst hérna. Siö- ustu atburðir hafa leitt i Ijós að hér á landi fæðast druilusokkar á heimsmælikvarða, ekki siöur en annars staðar. Þetta fólk hikar ekki við að afla sér fjár með þvf að eyöileggja lif með- bræðra sinna. Það er löngu orðið timabært að reyna að girða s\o fyrir að þessi lýöur eignist ekki stór- markað á tslandi. —ÓT. TVÖ hlutverk í einní mynd

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.