Vísir - 02.04.1979, Side 13
13
VÍSIR
Mánudagur 2. aprll 1979
Betri hönnun flugvéla
- Minni eldsneytiskostnaður
Stærstu flugvélaframleiðendur heimsins hafa
undanfarinár, eða siðan oliukreppan skall á 1973,
veitt stórfé til rannsókna á þvi hvernig gera megi
farþegaflugvélar hagkvæmari í rekstri en þær
eru. Mesti höfuðverkur framleiðenda er elds-
neytiseyðsla þotuhreyfla, en þeir eyða umtals-
verðu magni umfram venjulega skrúfuhreyfla.
Maður skyldi ætla að mestu
fénu yrði varið til þess að hanna
hagkvæmari hreyfla, en sú hef-
ur raunin ekki orðið' fram til
þessa. Mestum tima og mann-
afla hefur verið varið til að
hanna fullkomnari flugvéla-
vængi, sem minnka mótstöðuna
en auka lyftieiginleika vængj-
anna. Einnig hefur verið reynt
að hafa öll loftnet, sem áður
voru utan á vélunum, innbyggð,
svo þau mynduðu ekki mót-
stöðu.
Framleiðendur litilla flugvéla
hafa náð nokkuð langt á þessu
sviði og afleiðingin orðið sú að
erfitt getur orðið að lenda þess-
um flugvélum eftir blindlend-
ingargeisla án þess að ofkæla
hreyfilinn, vegna þess hve svif-
eiginleikar þeirra hafa aukist.
Fyrsta svarið við oliukrepp-
unni var stærri flugvélar, eins
og t.d. DC-10, en með þvi að
fljúga þeim fremur hægt (!), á
920 km hraða á klst. er hægt að
draga úr eldsneytiseyðslunni
ílugmál
Rafn
Jónsson
um 21%, en þetta er um 50 km
hægar en gert er ráð fyrir að
vélarnarfljúgi. Fyrirbragðið er
vélin alltaf dálitijreist á flugi og
ein flugfreyja hefur minnst á
I
Boeing-verksmiðjurnar hafa á teikniborðinu hugmynd að nýrri þotu meðsérkennilegum væng, sem þeir
segja að sé svo vel hannaður að hann nýti orku hreyflanna 60% betur en vængir á venjulegri þotu.
Sovéska skrúfuþotan TU 114 sem flaug á 960 km hraða árið 1958.
Bandarfkjamenn reyna nú að framleiða skrúfuþotu, sem á að geta
náð sama hraða.
það við undirritaðan að það geti
verið nokkuð erfitt að ýta full-
hlöðnum matarvagni á undan
sér upp „brekkuna" i vélinni,
en hins vegar létt verk að láta
hann rúlla niður hana á leið aft-
ur i eldhúsið.
Nokkrir flugvélaframleiðend-
ur. þ.á.m. Lockheedverksmiðj-
urnar, hafa hug á að framleiða
farþegaskrúfuþotu, sem þeir
nefna Recat (reduced energy
commercial air transport) og á
þessi vél að eyða mun minna
eldsneyti en venjuleg þota en
taka um 300 farþega. Aðalvand-
inn sem glimt er við i sambandi
við þessa vél er sá að hvinurinn
frá skrúfunum er svo hávær að
hann fer upp fyrir leyfileg mörk
flugmálayfirvalda i flestum
löndum. Nú er unnið stift aö þvi
að draga úr hávaðanum og
stefnt að þvi að þessari vél verði
reynsluflogið siðara hluta árs
1980. Hugmyndin að þessari vél
er sovésk, en árið 1958 náðu
Sovétmenn þeim árangri að láta
flugvélina TU 114 ná 960 km
hraða á klst., en hún er fyrsta
skrúfuflugvélin sem nær slikum
hraða. Lockheed-verksmiðjurn-
ar stefna að þvi að ná sama
árangri með Recat, en ekki er
enn Ijóst hversu hratt sú vel
mun komast áfram. En um
rússnesku flugvélina er það að
segja að hún náði engum sér-
stökum vinsældum, þvi fram-
leiðendurnir voru i stökustu
vandræðum með hreyfla henn-
ar, þeir vildu illa tolla i festing-
um sinum.
Að iokum má geta þess að
Boeing-verksmiðjurnar hafa
hannað 200 sæta þotu, sem með
sérkennilegri vængbyggingu á
að geta flogið með 60% betri
orkunýtingu en vélar
verksmiðjanna hingað til. Þessi
vél er enn á teikniborðinu.
Eins og fyrr gat hafa flug-
vélafræðingar aðaJlega einbeitt
sér að breyttri hönnun flugvéla
en minna látið sig skipta hreyfl-
ana, sem svolgra i sig allt elds-
neytið. Þó eru þeir að þreifa sig
áfram með þotuhreyfla knúna
fljótandi vetni og jafnvel láta
þeir sig dreyma um kjarnorku-
knúna þotuhreyfla. Þeir sem
eldri eru i hettunni og ihalds-
samari segja þetta draumóra,
þessir þotuhreyflar framtiðar-
innar komist aldrei lengra en á
teikniborðið, eldsneytið sé allt
of hættulegt til þess að til greina
komi að nota það i flugvélar. Ef
svo færi að nauðlenda þyrfti
þotu, sem knúin væri kjarnorku
eða vetni ættu þeir sem innan-
borðs væru enga lifsmöguleika,
þvi alit mundi splundrast i
frumparta sina.
Stórkostlegt úrval af
FERMINGARGJOFUM
M.a.
Braun rakvélar, margar gerðir
Braun hórburstasett, 4 gerðir
Kasettutœki, ferðatœki,
steriotœki, sjónvarps-,
reikningstölvuleikspil.
Rafmagnsútvarpsklukkur.
Mikið úrval af
hljómplötum og kasettum
og 9 teg. af sjónvörpum
Ssjyþ: SEIXIIMHEISER
hess
audio-technica
HEYRNAR-
TÓL
r
I
MIKLU
ÚRVALI
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN SF.
Við erum í Síðumúlo 2. Næg bílostæði. — Simi 09090