Alþýðublaðið - 30.11.1989, Síða 7
Föstudagur 1. des. 1989
7
ÚTLttND
MÚR SKAMMARINNAR
Á þessum tíma sagöi sovéska fréttastofan Tass að þessar
aðgeröir væru ekkert óvanalegar heldur „venjulegar stjórn-
unaraðgerðir við landamæri milli ríkja ..."
Þær fréttir komu ennfremur frá þýðulýðveldisins gegn herskáum
fréttastofunni að tilgangurinn áróðursöflum í Vestur-Þýskalandi
væri sá, að vernda verkamenn al- og Vestur-Berlín.
Mikil viðbrögö urðu um allan
heirn við skiptingu borgarinnar en
mestu viðbrögðin sýndu sig í Vest-
ur-Berlín þegar þáverandi borgar-
stjóri, Willy Brandt, gekk fremstur
í flokki mótmælagöngu og um
300.000 manns söfnuðust við ráð-
húsið og hlýddu þar á ræðu sem
Brandt flutti af miklum eldmóði.
,,Hvað gerum við í svona til-
viki?“ spurði Brandt og svaraði
síðan sjálfur: „Við sýnum að við
Austur-þýska
flokksblaöiö Neu-
es Deutschland
sagöi 14. ágúst
1961 um hina ör-
lagaríku skiptingu
Berlínar: ,,Bráð-
nauðsynleg ráð-
stöfun til að
vernda kerfi okk-
ar gegn spillingu
heimsvaldasinna“
Willy Brandt sagði árið 1961: „Skjótið aldrei á samlanda ykkar".
Austur-bvsk vfirvöld hlustuðu ekki.
Við múrinn. Einn þeirra sem reyndi að komast yfir hann — en var stöðvaður af byssu landa síns.
getum tekist á við þetta og sam-
löndum okkar hinum megin við
gaddavírinn segjum við frá því
hvað býr í hjörtum okkar. Ef þeir
trúa því að við höfum snúið við
þeim baki þá þekkja þeir ekki okk-
ur landa sína vestan megin. Þetta
verður mikil og erfið reynsla fyrir
okkur öll. Til svokallaðrar þjóðar-
lögreglu og þjóðarhers sendum
við þau skilaboð, að heragi og al-
ræðisrikisstjórn skipa ykkur að
gera skyldu ykkar en allir hafa
sína eigin samvisku að glíma við
og framar öllu ððru skjótid aldrei
á samlanda ykkar'.'
Þessa síðustu setningu sagði
Brandt með miklum áherslum við
mikil fagnaðarlæti fólksins. Því
miður fór það svo að þessar óskir
Brandts voru virtar að vettugi og
tugir manna, ef ekki hundruð,
biðu bana við múrinn bæði ungir
og gamlir og margir urðu vitni að
harmleikjum sem áttu sér stað við
múrinn.
Þegar Brandt var við múrinn á
dögunum var hann hamingjusam-
ur og sagði: ,,Nú mun Berlín lifa og
blómstra á ný“.
(Arbeiderbladet, stytt.)
Sjónvarpið kl. 20.35
JAK0BÍNA
Dagskrá um skáldkonuna Jakobínu
Sigurðardóttur i Garði í S.
Þingeyjarsýslu. Umsjón með þessari
dagskrá hefur Errta Indriðadóttir
sem betur er þekkt sem útvarps-
maður en sjónvarps. Jakobína er
með merkari skáldkonum, og skáld-
um í það heila tekið, á íslandi á
næstliðnum áratugum. Hún er
þekktust fyrir skáldsögurnar Dæg-
urvisu, Snöruna, í sama klefa og Lif-
andi vatnið en þær hafa allar þótt á
sinn hátt nýstárlegar á hverjum
tíma. Kannski einkum og sér í lagi
Snaran sem kom út á 7da áratugn-
um. Jakobína hefur að auki gefið út
tvö smásagnasöfn, Punktur á skökk-
um stað og Sjö vindur gráar, ein
Ijóðabók hefur komið frá henni,
Kvæði heitir hún og enn eru þó
ótaldin nokkur rit þessarar skáld-
konu sem manninn hefur alið mest-
an part í sveit en hefur samt senni-
legast skrifað hvað bestar sögur um
íslenskt verkafólk, jafnt til sjávar
sem sveita.
Sjónvarpiö kl. 21.20
NÓTTIN, JÁ NÓTTIN
Islenskl sjónvarpsleikrit, leikstjóri
Sigurdur Pálsson, adalhlutverk
Valdimar Örn Flygenring.
Nýtt verk eftir leikstjórann Sigurð
Pálsson sem þarna þreytir frumraun
sína sem leikstjóri eigin verks í sjón-
varpi. Sigurður er annars best
þekktur sem ljóðskáld en hefur
einnig skrifað leikrit og unnið við
kvimyndagerð. Saga þessi greinir
frá ungum manni sem stendur á
tímamótum í lífi sínu og gerir upp
ævi sina eina örlagaríka nótt. Valdi-
mar Flygenring fer með hlutverk
unga mannsins en önnur stór hlut-
verk leika Tinna Gunnlaugsdóttir,
Ingrid Jónsdóttir, Steinunn Ólafs-
dóttir og Elva Ósk Ólafsdóttir. Mörg
smærri hlutverk eru í verkinu og af
þeim sem í þeim birtast má nefna
Helga Skúlason, Pétur Einarsson,
Steindór Hjörleifsson, Sigurð Karls-
son og Guðbjörgu Þorbjarnardóttur.
Forvitnilegt eins og alltaf þegar ís-
lensk sjónvarpsleikrit eiga í hlut.
Sjonvarpið kl. 23.10
VILDI
ÞÚ VÆRIR HÉR ★★★
(Wish You Were Here)
Bresk bíómynd, gerö 1987, leikstjóri
David Leland, adalhlutverk Emily
Lloyd, Tom Bell, Clare Clifford.
Ein af þeim betri breskum myndum
sem hingað hafa borist á síðustu ár-
um. Segir af ungri stúlku sem geng-
ur þvert gegn viðteknum venjum og
hefðum í smábænum sem hún býr í.
Hún hagar sér illa, er heldur lauslát
og brúkar orðbragð sem ekki þykir
sæma ungri stúlku en myndin gerist
einhvern tíma á fimmta áratugnum
ef rétt er munað. Aðalleikkonan var
aðeins 15 ára þegar hún lék þetta
hlutverk en frammistaða hennar
var slík að hún fékk ógrynni tilboða
frá Hollywood fyrir vikið. Þar hefur
hún þegar leikið í einni mynd sem
enn hefur ekki verið tekin til sýning-
ar. Þetta er bráðskemmtileg mynd
með dálítið döprum undirtóni,
þarna takast á konur og menn, ung-
lingar og fullorðnir og síðast en ekki
síst ný viðhorf og gömul.
Stöð 2 kl. 23.45
RICKY NELS0N 0G
FATS D0MIN0
Tónleikar með þessum tveimur af
stjörnum rokksins. Tónleikarnir
voru haldnir undir því yfirskini að
30 ár voru talin liðin frá því að rokk-
ið kom fram á sjónarsviðið en erfitt
er reyndar að geta sér til um það
hvernig menn hafa fundið út slíka
tímasetningu. Fats Domino ei
óþarft að kynna fyrir íslendingum,
hann hefur í tvígang komið hingað
og haldið tónleika á síðustu árum
við mikinn fögnuð. Ricky Nelson
lést stuttu eftir að þessi sjónvarps-
upptaka var gerð, en hann naut
hvað mestrar hylli á sjötta og sjö-
unda áratugnum. Átti þá um tíu ára
skeið hvert lagið á fætur öðru á vin-
sældarlistum. Þeir félagar munu
spila öll sín frægustu lög, Fats Dom-
ino tekur t.d. Bluberry Hill sem
löngu er orðið ódauðlegt lag.
0 STÖÐ 2
17.50 Gosi Teikni- myndaflokkur um æv- intýri Gosa. 15.05 Barátta naut- gripabændanna 17.00 Santa Barbara 17.45 Jólasveinasaga Teiknimynd um fólkiö og jólasveininn i Tontaskógi.
1800 18.20 Antilópan snýr aftur 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Yngismær (36) 18.10 Sumo-glima 18.35 Heimsmetabók Guinness
1900 19.20 Austurbæingar Breskur framhalds- myndaflokkur 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir og veöur 20.35 Jakobína Dag- skrá um Jakobínu Siguröardóttur rithöf- und i Garöi og verk hennar. 21.20 Nóttin, já nótt- in Frumsýning á nýju sjónvarpsleikriti eftir Sigurö Pálsson. Ungur maöur stendur á vegamótum og gerir upp lif sitt á örlaga- ríkri nóttu. 22.20 Peter Strohm Þýskur sakamála- myndaflokkur 19.19 19.19 20.30 Geimálfurinn Alf 21.05 Sokkabónd i stíl Tónlistarþáttur 21.40 Þau hæfustu lifa Dýralifsþættir 22.10 Bláa eldingin Áströlsk spennumynd sem segir frá banda- rískum ævíntýra- manni, — Sjá umfjöll- un
23.10 Vildi þu værir
oonn hér (Wish ýou were 23.45 Ricky Nelson
£d(JU Here) Bresk bíómynd og Fats Domino
frá árinu 1987. Leik- 01.10 Moröingi geng-
stjóri David Leland. ur aftur Sögunni lýkur
Aöalhlutverk: Emily 1888 þegar lögregl-
Lloyd, Tom Bell og unni tókst aö koma
Clare Clifford. kvennamorðingjanum
Kobba kviöristi fyrir
00.30 Útvarpsfréttir í kattarnef. Eöa hvaö?
dagskrárlok 02.45 Dagskrárlok