Morgunblaðið - 02.03.2001, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 . M A R S 2 0 0 1 B L A Ð D
Amerískir
Vöðvabólga
Liðagigt
Kviðslit
Bakverkur
Höfuðverkur
Heilsudýnur í sérflokki!
ÁSTIR SAMLYNDRA HJÓNA/2 MÁNAÐANÖFNIN MEÐ UPPHAFS-
STAF/4 HAUST- OG VETRARTÍSKAN 2001/2002 – EINFALT, KVENLEGT
OG AÐSKORIÐ/6 LISTRÆNT VEGGJAKROT/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
MATTIR pastellitir, appelsínugult,
hindberjarautt, fjólublátt og glýju-
grænt eru fremstir í flokki lita
sumarsins að mati tískufræðinga.
Einnig ofurhvítt með svörtu, ljós-
brúnt í ætt við sólstrandarsand
og leir, rjómalitur, ljósgult og
húðlitarbleikt. Þá er gott að
vera á varðbergi gegn spám um
sýnilega málm- og perluáferð.
Nokkrir fatahönnuðir þykja
setja meiri svip á vor- og sum-
artískuna en aðrir, svo sem
Julien Macdonald, Donna Kar-
an, Gucci, Ralph Lauren og
Dolce & Gabbana (skyldi ein-
hver vilja slá á þráðinn).
Áhrif níunda áratugarins
eru síst að fjara út en birtast eilítið
fágaðri og stílhreinni árið 2001.
Leðurfötin verða á sínum stað í
sumar, en kannski léttari í krafti
breyttra veðurskilyrða. Denim- eða
gallaefni eru síst á undanhaldi en
verða að þessu sinni með alls kyns
litaslikju, eða þá bara snjóþvegin.
Vert er að taka fram að snjóþvegn-
ar flíkur nýrrar aldar þykja eilítið
smekklegri en forverar þeirra frá
liðnum áratugum. Sem betur fer.
Blúndur, spreklur,
rúður og net
Lykilefni sumarsins eru með
neta- og blúnduáferð, popp-
listarmynstri, ljósmyndabrotum,
rúðum, kössum og stórum, litfögr-
um spreklum svo eitthvað sé nefnt.
Þá má að líkindum finna flíkur úr
styrktum pappírsefnum sem og
náttúrulegri blöndum hér og hvar.
Hvað aukahluti áhrærir má
benda á breið og mjó mjaðmabelti,
mittislinda og fíngerðar keðjur,
grískættaða sandala og sjóngler í
margvíslegum litum.
Litir eru ekki bara tákn um til-
tekna bylgjulengd, heldur líka sagð-
ir til marks um skapgerð sem vert
er að hafa til hliðsjónar. Litur app-
elsínunnar er sem sagt ekki bara
ávísun á c-bætiefni, heldur þögull
vitnisburður um eigindir á borð við
færni, sjálfhverfu og óþolinmæði.
Appelsínugult er jafnframt talinn
litur hagsýni og sköpunargleði.
Froskagrænt er sagt tákna var-
kárni og tortryggni, ljósblátt næmi
og viðkvæmni, dökkblátt gáfur og
sjálfstæði, fjólublátt samúð og
skarpskyggni og hvítt jákvæðni,
bjartsýni og jafnvægi.
Og þeim sem vilja birgja sig upp
með hliðsjón af spám um litaskala
hausts og vetrar er ráðlagt að hafa
hugann við jarð-, rauð-, múrsteins-,
kaffi- og kamelbrúnt, grenitrés- og
mosagrænt, berjablátt, sinnepsgult,
hafra- og fílabeinslitt og hávetrar-
hvítt.
Farið varlega!
hke
Sumargular örbuxur, mjaðma-
belti og gulrauðleit sjóngler eru
eitt dæmi um vor- og sumar-
tísku. Annað dæmi er í appels-
ínugulu með möskva í yfirstærð.
Skuggaskipti
Reuters
sumarsins
Tárablómsbleikt með hvítu.
Morgunblaðið/Golli
Ljósblátt og leirbrúnt.
Hindberjarautt og rjómagult.