Morgunblaðið - 02.03.2001, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.03.2001, Blaðsíða 7
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 D 7 VEGGJAKROT er talið til al-þýðulistar samkvæmt skil-greiningu alfræðiritaenda á fyrirbærið sér langa hefð og hefur meðal annars fundist við fornleifauppgröft í Pompei og Róm. Reyndar segir Ís- lenska alfræðiorðabókin að veggja- krot sé „krot eða teikningar á al- mannafæri, til dæmis á veggjum, almenningssalernum og biðskýlum; oftast með pólitíska eða kynferðis- lega skírskotun“, en jafnframt er áréttað að hér sé um alþýðulist að ræða. Veggjakrot hefur vissulega á sér ýmsar hliðar og sumt af því sem krotað er á veggi er ekki birting- arhæft í sómakæru dagblaði, enda misjafn sauður í mörgu fé þegar um veggjakrotara er að ræða. Suma úr þeim hópi mætti þó fremur kalla „vegglistarmenn“ þar sem hið óvirðulega orð „krot“ á alls ekki við um hæfileika þeirra. Breki Johnsen og Ög- mundur Jóns- son eru án efa í þeim flokki, enda er nú svo komið að virðu- legar stofnanir og fyrirtæki eru farin að panta þá sér- staklega til að skreyta veggi hjá sér og greiða þeim jafnvel þóknun fyrir. Breki starfar hjá auglýsingastof- unni „Góðu fólki“ og hyggur á nám í auglýsingateiknun. „Við Ögmundur erum æskuvinir og byrjuðum að fikta við svona veggjakrot fyrir fimm til sex árum og til að byrja með af hálfgerðum prakkaraskap. Við leituðum uppi auða veggi víðs- vegar um bæinn og tókum okkur það bessaleyfi að „skreyta“ þá. Þetta voru þó yfirleitt veggir sem ekki voru í alfaraleið og öllum var sama um. Mig minnir að fyrsti vegg- urinn sem við máluðum á hafi verið úti í móa, við Reykjavíkurflugvöll. Síðan hefur þetta þróast svona og við höfum reynt að hafa þessar teikningar með „listrænu ívafi“, ef svo má segja. Þetta hefur svo eitt- hvað spurst út því í seinni tíð höfum við verið beðnir um að skreyta veggi hjá ýmsum stofnunum og fyrir- tækjum. Stærsta verkefnið til þessa var hjá Kvikmyndaskóla Íslands, en þeir hringdu og sögðust hafa séð mynd eftir okkur á einhverjum vegg og vildu endilega fá okkur til að mála vegg hjá sér, og buðu okkur greiðslu fyrir. Það er auðvitað frá- bært að fá borgað fyrir það sem maður hefur gaman af og vonandi eiga fleiri eftir að leita til okkar með svona skreytingar,“ sögðu þeir félagar Breki Johnsen og Ögmund- ur Jónsson vegglistarmenn. svg Morgunblaðið/RAX Vegglistarmennirnir Ögmundur Jónsson og Breki Johnsen að störfum. Veggmyndin í Kvikmyndaskóla Íslands er stærsta verkefni þeirra félaga til þessa. Breki við eitt verkanna sem hann málaði á vegginn í undirgöngunum undir Miklubraut og Lönguhlíð. LISTá Veggmyndin á bak við versl- unina „Týndi hlekkurinn“ við Laugaveg var fyrsta myndin sem þeir félagar máluðu saman. Sex metra breitt verk eftir Breka í Hjólabrettagarðinum á Granda. Síðan hefur þetta þróast svona og við höfum reynt að hafa þessar teikningar með listrænu ívafi vegg Peysur, bolir og peysusett frá tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, sími 561 1680. , li S I G T Ú N I Rifjaðu upp ljúfar minningar! við arineld, góðan mat, góða þjónustu og ljúfa tónlist á Borðapantanir í síma 568 9000 Gunnar Páll leikur fimmtud., föstud. og laugardag frá kl. 19.15 til 23.00. Fyrir hópa aðra daga. Cranio-nám Norðurland / Akureyri 28. 04 — 3. 05. 2001 Thomas Attlee, DO, MRO, RCST College of Cranio—Sacral Therapy Félag höfuðbeina og spjaldhryggsjafnara www.simnet.is/cranio 422 7228, 699 8064, 897 7469

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.