Morgunblaðið - 02.03.2001, Blaðsíða 2
Kertaljós og hjörtun rauð
KERTALJÓS lýsa uppstéttina framan við hót-elið. Í fjallinu þýtur ívindinum og lágvær nið-
ur frá fossinum berst í gegnum
kvöldhúmið, sem er að færast yfir
friðsælt bæjarstæðið á Skógum. Í
móttökunni eru tveir rauðir, hjarta-
laga púðar á stólum og kertaljós
vísa veginn í stigaganginum og upp
á herbergi. Þar er líka kveikt á
kerti, í rauðri, hjartalaga umgjörð.
Og meira að segja baðsápan er mót-
uð eins og rautt hjarta.
Rautt er litur ástarinnar og hjart-
að tákn hennar og hvað er betur
fallið til að ná upp rómantískri
stemningu en einmitt rauð hjörtu?
Við erum komin hingað til að „njóta,
elska og hvílast“, eins og segir í yf-
irskrift þessa helgarnámskeiðs á
Skógum, sem Sigríður Anna Ein-
arsdóttir félagsráðgjafi stendur fyr-
ir. „Hjónanámskeið“ er ekki alveg
rétta orðið, heldur miklu fremur
„upplyfting fyrir ástfangin pör“,
eins og Sigríður Anna orðaði það.
Hér eru nefnilega ekki eingöngu
hjón, sem hafa verið gift í áratugi,
heldur einnig ógift fólk, sem verið
hefur í sambúð í mislangan tíma.
Fólkið er líka á mismunandi aldri og
úr ýmsum áttum og samfélagshóp-
um. Þverskurður af íslensku sam-
býlisfólki, giftu og ógiftu.
Sjálfsagt er fólkið á þessu nám-
skeiði hingað komið á mismuandi
forsendum og reynsluheimur þátt-
takenda eins misjafn og þeir eru
margir. Mannsævinni er oft líkt við
ferðalag og hverjum ferðalangi er
hollt að staldra við stöku sinnum og
horfa yfir farinn veg og spá í fram-
haldið. Ef að líkum lætur hafa skipst
á skin og skúrir á leiðinni, vegurinn
verið grýttur á köflum, á milli þess
sem leiðin hefur legið um blómlegar
sveitir og leiðin greið. Hvort heldur
sem er getur verið skynsamlegt að
doka við og hugsa sinn gang.
Ástin er list
Að loknum kvöldverði á föstu-
dagskvöldið er farið upp í gömlu
heimavistina í Skógaskóla. Þar flyt-
ur Sigríður Anna fyrirlestur um ást-
ina. Hún vitnar í þýska sálfræðing-
inn og félagsfræðinginn Erich
Fromm. „Ástin er list“ sagði sá
ágæti fræðimaður og skrifaði meira
að segja um þá kenningu sína heila
bók. Raunar sagði Fromm að sam-
band tveggja einstaklinga gæti ver-
ið tvenns konar: Annars vegar
samband sem einkennist af drottn-
un annars aðilans og undirgefni
hins. Hins vegar samband sem
byggist á því að „gefa og þiggja“ og
mælir leiðbeinandinn eindregið með
því að menn temji sér þau heilræði í
sambúðinni, sem von er. Þetta eru
alkunn sannindi: „Give a little, take
a little, that́’s the glory of love,“
(gefðu dálítið, taktu dálítið, það er
dýrðin við ástina), söng bandaríski
soulsöngvarinn Otis Reading á sín-
um tíma. Það var að vísu á hippatím-
anum, en á þó vel við enn í dag.
Eftir fyrirlesturinn um ástina
fara pörin eitt og eitt inn í litlu her-
bergin, þar sem skólapiltar í heima-
vistinni á Skógum bjuggu á meðan
skólinn var og hét. Við flöktandi
kertaljós ræðir parið hér saman um
„ástina í lífi sínu“ og svarar spurn-
ingum þar að lútandi. Svörin við
þessum spurningum eru bara þeirra
á milli, enda einkamál eins og svo
margt annað sem fram fer á nám-
skeiði sem þessu.
Á eftir safnast þátttakendur sam-
an „á sal“, leggjast á dýnu og fara
saman í „hjónaslökun“ undir stjórn
Sigríðar Önnu. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um mikilvægi þess
fyrir nútímamanninn að „slaka á“,
svo ekki sé talað um þýðingu slök-
unar fyrir eðlileg samskipti maka,
enda er innri spenna sjálfsagt oft or-
sökin fyrir árekstrum í sambandinu.
Á hótelinu bíður kaffi og terta.
Eldur snarkar í arninum og matsal-
urinn er lýstur upp með stórum,
átta arma kertastjaka. Sánan og
heiti potturinn eru heldur ekki langt
undan og sumir fara þangað áður en
þeir taka á sig náðir. Það fer vel um
fólkið á hótelinu á Skógum, sem þær
frænkur Guðbjörg Birna Guð-
mundsdóttir og Fríða Jónsdóttir
reka af myndarskap.
Að setja sér markmið
Laugardagurinn er tekinn
snemma og fyrir hádegi eru þátttak-
endur mættir upp í skólahús í fyr-
irlestur um „streitu“. Vel við hæfi,
eftir „slökunina“ kvöldið áður, að
minna menn á að hraðinn í nútíma-
þjóðfélagi, með tilheyrandi
„streitu“, getur haft alvarlegar af-
leiðingar í samskiptum fólks. Engar
töfralausnir eru þó til á þessu
vandamáli en Sigríður Anna bendir
á nokkur atriði sem gott er að hafa í
huga og gætu hugsanlega dregið úr
streitu í fjölskyldunni. Til dæmis að
fjölskyldan gefi sér reglulega tíma
til að eiga stund saman, þar sem
ekkert truflar og hafi jafnvel slökkt
á síma og sjónvarpi. Annað er að
setja sér markmið sem allir fjöl-
skyldumeðlimir eiga þátt í að
ákveða. Skapa hefðir í fjölskyldulíf-
inu. Gæta þess að allir fái nægan
svefn. Hugsa jákvætt og fylgjast vel
með hvernig brugðist er við streitu-
valdandi aðstæðum. Reyna að draga
úr fullkomnunaráráttu sé hún fyrir
hendi. Þá benti leiðbeinandinn á þá
staðreynd að kímnigáfa dregur úr
streitu og því sjálfsagt að nota
„húmorinn“ til streitulosunar. Lík-
amleg hreyfing dregur úr streitu og
Sigríður Anna hvatti til þess að fólk
temdi sér djúpöndun til að ná ró.
Máli sínu til stuðnings veitti hún
leiðsögn í djúpöndun.
Leiðbeinandinn fór einnig í rann-
sóknir sálfræðingsins J. Gottmans
um það hvernig best sé að leysa
ágreining. Þar eru nokkrir vegvísar
sem gott er að hafa í huga: Forðastu
ásakanir. Segðu hvernig þér líður
tilfinningalega. Ekki gagnrýna per-
sónuleika makans. Ekki móðga eða
gera grín eða lítið úr makanum.
Vertu hnitmiðaður. Haltu þér við
ákveðið efni. Ekki reyna að greina
persónuleika makans. Ekki lesa
hugsanir hans eða gera honum upp
hugsanir.
Ekki eru tök á að fara hér í smá-
Helgardvöl í fallegu og
friðsælu umhverfi er
góð upplyfting fyrir
hjón og fólk í sambúð.
Sveinn Guðjónsson tók
sér frí frá amstri
Daglegs lífs og horfði
ásamt eiginkonu sinni
yfir farinn veg og spáði
í framtíðina.
DAGLEGT LÍF
2 D FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Viktoria Antik Síðumúla 34 Sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18
lau. kl. 11-17
sun. kl. 13-17
Antikhúsgögn og
gjafavörur
Gömul dönsk
postulínsstell
Ýmislegt
áhugavert fyrir
safnara
„MARKMIÐIÐ með þessu nám-
skeiði, „Að njóta, elska og hvílast“,
er að gera ástfangin pör ástfangn-
ari,“ sagði Sigríður Anna Einars-
dóttir, félagsráðgjafi og leiðbein-
andi á námskeiðinu á Skógum.
„Þetta er upplyfting fyrir elskandi
pör á öllum aldri, sem vilja spila á
strengi ástarinnar.“
Sigríður Anna lauk BA-prófi í
uppeldisfræði frá Háskóla Íslands
1985 og félagsráðgjöf til starfsrétt-
inda 1988. Hún hóf þá störf við geð-
deild Landspítalans og stundaði
jafnframt sérnám í fjölskyldu- og
hjónameðferð og ennfremur hag-
nýtt nám í „klínískri dáleiðslu“, hjá
Jakobi Jónassyni geðlækni, sem hún
sagði að hefði síðan oft komið að
góðu gagni við meðferð skjólstæð-
inga sinna. Árið 1993 stofnaði hún
félagsráðgjafarstofuna „Aðgát –
félagsráðgjöf og fræðsla“, ásamt
Sveinbjörgu J. Snorradóttur félags-
ráðgjafa, og hefur síðan staðið fyrir
ýmsum námskeiðum, bæði á stof-
unni og í fyrirtækjum. Má þar nefna
sjálfseflingarnámskeið undir yfir-
skriftinni „Léttu þér lífið“, sam-
skiptanámskeið sem hún kallar „Ég
um þig, frá þér til mín“ og námskeið
um streitu og streitu-
stjórnun sem ber heitið
„Stríðið við streituna“.
Ásæðuna fyrir því að
Sigríður Anna fór í
auknum mæli að beina
kröftum sínum að fjöl-
skyldu- og hjónameðferð
sagði hún vera þá, að
hún hefði fljótlega tekið
eftir því að ekki var allt-
af nóg að vinna með ein-
staklinginn einan og sér
við lausn vandamálanna.
„Einstaklingurinn er
hluti af fjölskyldu og líð-
an hans má oft rekja til
þess hvernig sambandi
hans við skyldmenni eða
maka er háttað. Ég var
oft að vinna með fólk sem komið var
inn í vítahring óhamingjunnar og
fór að velta fyrir mér hvort ekki
væri hægt að stuðla að fyrirbyggj-
andi aðgerðum í þessum efnum. Ég
veit að það er hægt að vinna mikla
fyrirbyggjandi vinnu með því að
leggja áherslu á það sem gengur vel
í sambandinu og það var ástæðan
fyrir því að ég fór út í „upplyft-
inguna“ „Að njóta, elska og hvílast“,
enda langaði mig líka
til að hitta fólk í sinni
hamingju og hjálpa
því til að hlúa enn
frekar að hinum já-
kvæðari þáttum í
sambandinu. Það
besta sem foreldrar
geta gefið börnum
sínum er hamingju-
ríkt hjónaband. Og
hvað mig sjálfa
snertir eru það for-
réttindi að fá að að-
stoða fólk á leið sinni
til betra lífs.
Það hafa komið til
mín hjón eftir svona
helgi og sagt: „Við
vissum að við vorum
ástfangin, en gerðum okkur ekki
grein fyrir því að við værum svona
mikið ástfangin, fyrr en eftir þetta
námskeið.“
Á þessu námskeiði er ekki verið
að kafa ofan í vandamálin, og ég
segi fólki það fyrirfram svo það fari
ekki að gera sér rangar hugmyndir
og búast við einhverjum patent-
lausnum á öllum sínum vandamál-
um. Eitt sinn hringdi í mig kona sem
Upplyfting fyrir elskandi pör
Sigríður Anna Einarsdóttir félagsráðgjafi
Sigríður Anna
Einarsdóttir
félagsráðgjafi.
Ástir Blíðu er hægtað sýna meðýmsum hætti.Til dæmis ernóg að snert-ast með tán-um á meðandagblöðin erulesin uppi írúmi.amlyndrahjóna