Morgunblaðið - 20.03.2001, Side 1

Morgunblaðið - 20.03.2001, Side 1
2001  ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÞRETTÁN ÍSLANDSMET Í SUNDI SETT Í EYJUM / B8 ÞRÍR sundmenn hafa náð tilskildu lágmarki til að keppa á heimsmeist- aramóti sem fram fer í Fukuoka í Japan í júlí nk. Þeir eru: Jakob Jó- hann Sveinsson Ægi í 100 og 200 m bringusundi, Lára Hrund Bjarg- ardóttir SH í 200 m skriðsundi og 200 m fjórsundi, Örn Arnarson SH í 100 og 200 m baksundi, 50, 100 og 200 m skriðsundi og 400 m fjórsundi. Þjálfari hópsins er Brian Marshall. Samkvæmt þeim reglum sem sett- ar voru í fyrrahaust var innanhúss- meistaramótið um helgina síðasta mótið þar sem mögulegt var að ná lágmarkinu. Þrír á HM í Japan Eftirtalið sundfólk var valið í liðið:Anja Ríkey Jakobsdóttir SH, Berglind Ósk Bárðardóttir SH, Bryndís Ólafsdóttir Ægi, Heiðar Ingi Marinósson Vestra, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir Ægi, Hjörtur Már Reynisson Ægi, Íris Edda Heimis- dóttir Keflavík, Jakob Jóhann Sveinsson Ægi, Jón Oddur Sigurðs- son Njarðvík, Kolbrún Ýr Kristjáns- dóttir ÍA, Lára Hrund Bjargardóttir SH, Númi Snær Gunnarsson Ægi, Ómar Snævar Friðriksson SH, Örn Arnarson SH og Tómas Sturlaugs- son Ægi. Þjálfarar liðsins eru þau Bodo Wermelskirchen og Sigurlín Þorbergsdóttir. Sérstaka athygli vekur að Bryndís Ólafsdóttir er komin í landsliðið á nýjan leik en hún keppti síðast fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikum þegar þeir fóru fram á Möltu fyrir átta árum. Unglingalið til Danmerkur Einnig var unglingalandslið Ís- lands valið á lokahófi ÍSÍ sem mun taka þátt í Sjælland Open í Dan- mörku í apríl nk. Eftirtaldir ungling- ar skipa landsliðið: Anja Ríkey Jak- obsdóttir SH, Guðlaugur Már Guðmundsson Keflavík, Gunnar Steinþórsson Ægi, Hafdís Erla Haf- steinsdóttir Ægi, Heiðar Ingi Mar- inósson Vestra, Hjörtur Már Reyn- isson Ægi, Jón Oddur Sigurðsson UMFN og Sigrún Benediktsdóttir Óðni. Þjálfarar liðsins eru þau Stein- dór Gunnarsson og Þuríður Einars- dóttir. Morgunblaðið/Kristinn Á eftir bolta ... Fram lagði Fylki að velli í deildabikarkeppninni í knattspyrnu í Laugardal á sunnu- dagskvöldið. Andri Fannar Óttósson, Fram, og Fylkismaðurinn Hreiðar Bjarnason eru hér á eftir knettinum. Andri Fannar skoraði fyrra mark Fram í leiknum. Sjá umfjöllun á B7 og úrslit á B14. Bryndís Ólafsdótt- ir á ný í landsliðið Í lokahófi innanhússmeist- aramótsins í sundi í Vest- mannaeyjum tilkynnti lands- liðsnefnd SSÍ landslið Íslands sem keppa mun á Smáþjóða- leikunum í San Marínó í byrjun júní nk. HJÖRVAR Hafliðason, mark- vörður úr Val, meiddist illa á hné í leik liðsins við Leiftur í deildabikarkeppninni í knatt- spyrnu í Reykjaneshöll á laug- ardaginn. Hann verður vænt- anlega frá keppni í 6-8 vikur og missir af leikjum 21 árs lands- liðsins á næstunni en hann átti að fara með liðinu til Búlgaríu í dag. Í stað hans var valinn Stefán Logi Magnússon, mark- vörður hjá Farum í Danmörku. „Það bendir allt til þess að liðbönd í hnénu séu slitin en þetta er of bólgið enn þá til þess að hægt sé að taka af því myndir. Þetta er mikið rot- högg og kemur á versta tíma en ég vonast eftir því að vera tilbúinn í tæka tíð áður en Ís- landsmótið hefst í maí,“ sagði Hjörvar við Morgunblaðið í gær. Bjarni Guðjónsson, leik- maður Stoke, er einnig meidd- ur og kemst ekki til Búlgaríu. Hans sæti tekur Ray Anthony Jónsson, leikmaður Grindavík- ur. Ray Anthony hefur aldrei leikið með landsliði en Stefán Logi hefur leikið með yngri landsliðunum. Hjörvar frá í sex til átta vikur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.