Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 10
HANDKNATTLEIKUR 10 B ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Tvö fyrstu mörk kvöldsins komufrá leikmanni Gróttu/KR, Hilmari Þórlindssyni, og gáfu tóninn um hvað var í vænd- um. Varnarmenn Hauka náðu ekki að hemja Hilmar í leiknum og áttu í raun ekkert svar við skyttunum tveimur, Hilmari og Pettersons. Fyrirliði Hauka, Halldór Ingólfsson, var sá eini sem eitthvað lét að sér kveða í sóknarleiknum og línumað- urinn Aliaksandr Shamkuts naut einnig góðs af sendingum frá Hall- dóri. Haukaliðið virtist vera áhuga- laust og skortur á leikgleði og vilja fleytir þeim ekki langt. „Það er ein- hver deyfð yfir okkur og menn eru ekki að gera hlutina saman sem lið. Á meðan svo er þá erum við ekki betri en þetta. Við verðum að gera betur í næstu leikjum og til þess þurfum við að leika betur saman í vörn og sókn,“ sagði Halldór Ing- ólfsson. Varnarleikur beggja liða var brot- hættur og leikmenn beggja liða fengu oft á tíðum að leika lausum hala. Fjögur mörk í röð frá leik- mönnum Gróttu/KR í byrjun seinni hálfleiks og aftur um miðbik seinni hálfleiks lagði grunninn að sigrinum. Ólafur Lárusson þjálfari Gróttu/KR á hrós skilið fyrir klókar innáskipt- ingar þegar Pettersons var tekinn úr umferð og sífelld ógnun frá skytt- um liðsins gerði Haukunum lífið leitt. Hornamenn Gróttu/KR, Davíð Ólafsson og Kristján Þorsteinsson, léku einnig prýðilega og nýttu færin vel í leiknum. „Við náðum góðum stíganda í æf- ingar okkar á undanförnum dögum. Það var allt annar bragur á þessu og við höfum alla burði til að gera ágæt- is hluti í úrslitakeppninni. Í raun var Haukaliðið auðveldara viðureignar en við bjuggumst við og liðið virkaði þreytt og áhugalaust,“ sagði Magn- ús A Magnússon, fyrirliði Gróttu/ KR. Haukar berjast í mótvindi þessa dagana og rýr uppskera í deildarleikjum að undanförnu gerir það að verkum að liðið er í öðru sæti deildarinnar. Margir af leikmönnum liðsins virðast þreyttir og aðeins eitt mark frá landsliðsmanninum Einari Erni Jónssyni segir meira en mörg orð. Lítil ógnun var frá hornamönn- um liðsins og á sama tíma gekk lítið upp hjá þeim Rúnari Sigtryggssyni og Óskari Ármannssyni. Slakur varnarleikur Hauka gerði það að verkum að markverðirnir Bjarni Frostason og Magnús Sigmundsson náðu ekki að stöðva skotin frá and- stæðingunum. Leikmenn Gróttu/KR léku prýðilega á köflum og verði áframhald á stórleikjum frá skytt- unum Hilmari og Pettersons getur allt gerst hjá liðinu í úrslitakeppn- inni. Varnarleikur liðsins var samt sem áður ekkert sérstakur en aðeins skárri en varnarleikur Hauka. Hilmar og Petter- sons sáu um Hauka LEIKMENN Gróttu/KR gerðu góða ferð í Hafnarfjörð á sunnu- dagskvöld er liðið sótti Hauka heim. Eftir góða byrjun missti Grótta/KR aðeins taktinn og Haukar virtust til alls líklegir að fara með sigur af hólmi eftir sjö mörk í röð um miðbik fyrri hálf- leiks þegar þeir breyttu stöð- unni úr 6:10 í 13:10. Staðan var jöfn í hálfleik, 14:14, en yf- irburðir Gróttu/KR í seinni hálf- leik fólust m.a í stórleik þeirra Hilmars Þórlindssonar og Alex- anders Petersons. Lokatölur leiksins urðu 28:31 Gróttu/KR í vil og er liðið til alls líklegt í úr- slitakeppninni. Haukar virðast vera að missa flugið en liðið hefur tapað fjórum af síðustu fimm deildarleikjum og erfitt verkefni bíður liðsins annað kvöld gegn KA á heimavelli. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar Það var allt lagt undir í Kapla-krika á sunnudag þegar FH tók á móti Fram í öðrum leik liðanna í 8 liða úrslitunum. Framarar sem þurftu að hafa veru- lega fyrir sigrinum í fyrsta leik liðanna í Framheimilinu komu mjög ákveðnar til leiks og skoruðu fyrstu tvö mörk- in. En FH-stúlkur með Dagnýju Skúladóttur í fararbroddi voru ekki á því að fara í snemmbúið sumarfrí og nörtuðu stöðugt í hælana á Fröm- urum. Það bar árangur því rétt undir lok fyrri hálfleiks náðu FH-ingar að komast yfir í fyrsta og reyndar eina skiptið í leiknum, 15:14. En Fram- arar hafa mikla reynslu og tveir elstu leikmenn liðsins, Svanhildur Þeng- ilsdóttir og Irena Sveinsson skoruðu tvö síðustu mörk hálfleiksins. Fram- arar leiddu því í leikhléi 15:16. Seinni hálfleikurinn var jafn fram- an af, Framarar höfðu ávallt frum- kvæðið en FH-ingar jöfnuðu alltaf jafnóðum. Um miðjan síðari hálfleik kom mjög góð stemmning í varnar- leik Framara og með Hugrúnu Þor- steinsdóttur markvörð í broddi fylk- ingar lokuðu þær hreinlega á FH-liðið sem skoraði aðeins eitt mark á tæplega 14 mínútna kafla, Framarar gengu á lagið, þær skor- uðu 6 mörk á þessum tíma og tryggðu sér fjögurra marka sigur. „Við vorum ákveðnar í því að koma hingað og komast í undanúr- slitin. Við lögðum mikla áherslu á að spila agaðan leik, einbeita okkur í vörninni og vanda okkur í skotunum, svo var það stór plús að markvarslan var mjög góð. Það er okkar hlut- skipti að fara til Eyja og við munum koma ákveðnar til leiks þar. Ég hef trú á því að okkur takist að komast áfram eftir þær viðureignir,“ sagði Díana Guðjónsdóttir sem átti góðan leik í liði Fram. En það var Hugrún Þorsteinsdóttir markvörður sem var hetja þeirra í þessum leik. Hún varði alls 19 skot, þar af 2 vítaköst, og átti stærstan þátt í því að ekkert gekk upp hjá Hafnfirðingum í seinni hluta síðari hálfleiksins. Þá átti Svanhildur Þengilsdóttir líka mjög góðan leik í liði Fram. Hjá FH hafði Dagný Skúladóttir mikla yfirburði – skoraði 10 mörk. Athyglisvert er að aðeins fjórir leik- menn FH skoruðu í þessum leik en leikmenn sem að jafnaði hafa tekið drjúgan þátt í markaskoruninni hjá FH, eins og Björk Ægisdóttir, Hild- ur Erlingsdóttir og Júdit Rán Est- ergal skoruðu ekki eitt einasta mark. Hugrún hetja Fram FRAMSTÚLKUR tryggðu sér sæti í undanúrslitum 1. deildar kvenna í handknattleik þegar þær sigruðu FH, 26:30, í öðrum leik liðanna í Hafnarfirði á sunnudag. Framarar munu mæta Íslands- og bikarmeist- urum ÍBV í undanúrslitunum en Eyjastúlkur sigruðu Gróttu/KR annað sinni, 24:25, á Seltjarn- arnesi. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar MAGDEBURG mátti þakka fyrir jafntefli, 25:25, gegn Nettelstedt á útivelli í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik á laugardaginn. Joel Abati skoraði jöfnunarmark Magdeburg 3 sekúndum fyrir leiks- lok og Alfreð Gíslason og lærisvein- ar hans eru áfram í þriðja sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Flensburg og einu á eftir Lemgo, en eiga einn leik til góða. Róbert Julian Duranona, fyrrver- andi félagi Alfreðs hjá KA, lék vörn Magdeburg grátt á lokakafla leiks- ins, skoraði þá hvert markið á fæt- ur öðru og var markahæstur hjá Nettelstedt með 8 mörk. En á loka- sekúndum leiksins, eftir að mark- vörður Nettelstedt varði vítakast frá Abati, missti Duranona boltann í hendur leikmanna Magdeburg sem þökkuðu fyrir sig og jöfnuðu metin. Ólafur Stefánsson sat að mestu á varamannabekk Magdeburg, var ekki búinn að jafna sig af veik- indum, en spilaði hluta úr síðari hálfleik og skoraði eitt mark. Dormagen tók heldur betur kipp í fyrsta leiknum eftir að Guð- mundur Guðmundsson hætti sem þjálfari liðsins og vann stórsigur á Eisenach, 31:22. Dormagen á því enn möguleika á að halda sér í deildinni. Róbert Sighvatsson var drjúgur í leiknum og skoraði 6 mörk. Heiðmar Felixson var marka- hæstur hjá Wuppertal með 6 mörk en það var ekki nóg gegn Gumm- ersbach sem vann útisigur, 29:26. Kóreski risinn Kyung-Shin Yoon skoraði 14 mörk fyrir Gummers- bach í leiknum. Guðmundur Hrafnkelsson stóð í marki Nordhorn allan tímann þeg- ar lið hans lagði meistara Kiel í hörkuleik, 28:24. Guðmundur varði tvö vítaköst í leiknum, frá Nikolaj Jacobsen og Jonas Ernelind. Gústaf Bjarnason skoraði 5 mörk fyrir Minden sem vann Wallau- Massenheim, 28:24. Þetta tap gerir líklega vonir Wallau um að berjast um titilinn á lokasprettinum að engu. Magdeburg slapp fyrir horn Eyjamenn byrjuðu leikinn beturog náðu fljótlega forystunni. En gestirnir úr Mosfellsbæ voru ekki langt undan og náðu að jafna leik- inn þegar rúmar 12 mínútur voru liðnar og staðan var 6:6. Eyjamenn, með Mindaugas And- riuska fremstan í flokki, héldu í við leikmenn Aftureldingar en það var síðan eftir um 20 mín. leik að gest- irnir sneru dæminu sér í vil og gengu inn í búningsklefa í hálfleik með tveggja marka forystu, 14:12. Leikmenn Aftureldingar misstu niður forskotið smám saman á upp- hafsmínútum síðari hálfleiks og Eyjamenn náðu að komast yfir í stöðunni 16:15 og þá varð ekki aftur snúið. Um miðbik hálfleiksins misstu Mosfellingar þjálfara sinn og driffjöður í sókninni, Bjarka Sig- urðsson, út af vegna smávægilegra meiðsla. Leikmenn Aftureldingar voru einfaldlega ekki í takt við leik- inn og áttu fá svör við góðri vörn Eyjamanna og Gísla Guðmundsson- ar þar fyrir aftan. Segja má að Gísli hafi farið hamförum í markinu í síð- ari hálfleik og varði hann m.a. 5 vítaköst. Við mótlæti gestanna efld- ust heimamenn og náðu mest 5 marka forystu í stöðunni 27:22. Þrátt fyrir maður-á-mann-vörn ásamt því að taka Mindaugas og Sigurð Ara Stefánsson úr umferð gekk hvorki né rak hjá Aftureld- ingu og Eyjamenn uppskáru sigur og tvö dýrmæt stig. Eyjamenn, sem hafa mátt þola mikið mótlæti eftir áramót, sýndu í þessum leik að þeir gefast ekki upp þótt á móti blási. Þáttur Svavars Vignissonar á línunni og Gísla Guð- mundssonar í markinu var hreint út sagt stórkostlegur í síðari hálfleik. Svavar var sívinnandi á línunni og Gísli varði á mikilvægum augna- blikum. Einnig átti Mindaugas virkilega góðan leik í sókninni. Leikmenn Aftureldingar voru einhvern veginn aldrei í takt við leikinn og gerðu mörg mistök í vörn og sókn. Þeirra besti maður í sókn, Gintas Galkauskas, fékk að líta rauða spjaldið þegar skammt var til leiksloka vegna þriggja brottvís- ana. Þeirra besti maður í leiknum var Reynir Þ. Reynisson í markinu sem kom í veg fyrir stærra tap. Þjálfari Aftureldingar, Bjarki Sigurðsson, var ekki upplitsdjarfur eftir leik. „Þetta var frekar slakt hjá okkur í kvöld og baráttu og grimmd vantaði algjörlega. Menn voru of fljótir að taka ákvarðanir í sóknaraðgerðum og héldu ekki ein- beitingu. Nú er bara að koma sér inn á sporið aftur fyrir næsta leik á miðvikudaginn,“ sagði Bjarki. Fyrirliði Eyjamanna, Erlingur Richardsson, var kampakátur í lok leiks. „Það var ekkert annað en barátta og sigurvilji sem innsiglaði sigur okkar að þessu sinni. Svavar og Gísli í markinu stóðu sig virki- lega vel, áttu stórleik. Við höfum átt í basli með mannskapinn núna eftir áramót og til að mynda voru Jón Andri Finnsson og Daði Pálsson ekki í hópnum í kvöld. En á móti kemur að ungir strákar komu inn í liðið og stóðu sig virkilega vel. Hvað framhaldið varðar þá eru fjögur stig eftir í pottinum og við höfum í raun engu að tapa, svo útlitið er þannig séð bjart hjá okkur,“ sagði Erlingur að lokum. Morgunblaðið/Kristinn Hart barist í leik Stjörnunnar og ÍR í Garðabæ, þar sem Stjörnumenn voru sterkari og fögnuðu sigri, 25:23. Magnús Sigurðsson lék vel með Stjörnunni og skoraði níu mörk. Barátta og sigurvilji EYJAMENN unnu góðan sigur á Aftureldingu í Íþróttamiðstöð- inni í Vestmannaeyjum á sunnu- dag í hörkuleik þar sem mark- vörður Eyjamanna, Gísli Guðmundsson, var í aðal- hlutverki. Leikurinn var kafla- skiptur og skiptust liðin á um að hafa forystu. Það var síðan um miðbik síðari hálfleiks að Eyja- menn bættu í seglin og upp- skáru góðan sigur, 28:25. Skapti Örn Ólafsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.