Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 11
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 B 11
Bæði lið lögðu mesta áherslu ávarnarleikinn svo að sóknar-
leikurinn var ekki upp á marga
fiska, sérstaklega
ekki hjá Valsstúlk-
um en Berglind Írís
Hansdóttir, mark-
vörður þeirra, stóð
samt fyrir sínu. Um miðjan fyrri
hálfleik var lítill kraftur í sókninni
en þá gekk þjálfari Hauka, Ragnar
Hermannsson, inn á völlinn og fékk
réttilega fyrir það rauða spjaldið.
Það virtist hleypa lífi í Valsstúlkur
en að sama skapi draga vígtenn-
urnar úr Haukum því næstu átta af
tíu sóknum þeirra fóru í súginn og
Valur fékk nokkur tækifæri til að
komast yfir en tókst ekki.
Auður Hermannsdóttir og Jenný
Ásmundsdóttir markvörður sáu um
að halda Haukum á floti fyrstu tíu
mínútur síðari hálfleiks því aðra
leikmenn vantaði allt sjálfstraust.
Það kom hins vegar þegar leið á
leikinn og þá lokuðu Haukar vörn-
inni svo að Valur átti aldrei mögu-
leika.
Höfum fengið mikla
reynslu í vetur
„Við erum að spila mjög góða
vörn og á köflum ágæta sókn en
við vorum að eiga við deildarmeist-
ara, sem eiga að vera góðir,“ sagði
Eivor Pála Blöndal, fyrirliði Vals,
eftir leikinn, sátt við veturinn. „Ég
er nokkuð sátt við leikinn því þó að
það sé súrt að detta úr keppninni
tel ég að við höfum gert það með
sæmd. Við lögðum af stað í vetur
með efnilegt lið og það er nú orðið
að góðu liði, sem getur gert stóra
hluti á næsta tímabili. Við höfum
fengið mikla reynslu á þessu tíma-
bili og munum fara enn lengra á
næsta ári. Ég geri ekki ráð fyrir að
neinn leikmaður fari í annað lið –
frekar að það komi einhverjir til
liðs við okkur því það hljóta allir að
vilja vera í liði sem er í mikilli upp-
sveiflu.“
Fór allt úr skorðum þegar
þjálfarinn sá rauða spjaldið
Haukastúlkur unnu stóra sigra á
Val í vetur og því virtist þeim erfitt
að komast á skrið.
„Við vorum ekki alveg með koll-
inn í lagi í fyrri hálfleik og getum
betur en þetta fór aðeins úr skorð-
um hjá okkur þegar þjálfarinn fékk
rauða spjaldið. Við ákváðum því í
hálfleik að gera út um leikinn,“
sagði Hanna G. Stefánsdóttir, sem
sýndi glæsilega takta.
Haukar
lengi í
gang
ÞAÐ var ekki fyrr en eftir hlé að
deildarmeisturum Hauka tókst
að brjóta mótspyrnu Vals-
stúlkna á bak aftur þegar liðin
mættust í síðari leik sínum í 8-
liða úrslitum kvenna á laug-
ardaginn. Þá kom sjálfstraustið
og Valur náði aðeins að skora 2
mörk á 29 mínútum á móti 11
frá Haukum, sem sigruðu 19:11.
Fyrir vikið eru Haukar komnir í
undanúrslit.
Morgunblaðið/Golli
Anita Andreasson lék vel með Eyjaliðinu og skoraði sjö mörk.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Stjörnu-
menn
halda í
vonina
STJÖRNUMENN halda enn
í vonina um að komast í úr-
slitakeppnina. Um helgina
stöðvuðu þeir sigurgöngu
ÍR-inga, sem hafa leikið vel
að undanförnu en misstu
flugið í Garðabænum.
Stjarnan sigraði 25:23.
Stjarnan lék vel að þessu
sinni, sóknin var skipulögð
og vörnin þétt en að sama
skapi var leikur ÍR ráðleys-
islegur á köflum.
Heimamenn náðu góðri
forystu en um miðjan síðari
hálfleik slökuðu þeir á
klónni og gestirnir náðu að
minnka muninn þó svo sig-
urinn væri ekki í hættu.
Konráð
ekki með
Konráð Olavson lék ekki
með Stjörnunni að þessu
sinni en fylgdist með félög-
um sínum af áhorf-
endabekkjunum. „Ég var
með annan flokk á Ak-
ureyri um helgina en átti
að vera kominn tímanlega
fyrir leikinn. Rútan bilaði
hins vegar á leið til Reykja-
víkur og okkur gekk brös-
uglega að komast þannig að
ég kom í hús þegar fyrri
hálfleikur var langt kom-
inn. Ég var til taks fyrir
síðari hálfleikinn en þetta
gekk svo ljómandi vel hjá
strákunum að ég horfði
bara á,“ sagði Konráð.
Frá fyrstu mínútu reyndu leik-menn Gróttu/KR að setja
strangan vörð um Tamöru Mand-
zic og Amelu Hegic
en það tókst ekki
betur en svo að
Tamara skoraði 11
mörk. Það dugði
hins vegar til að setja sóknarleik
Eyjastúlkna úr skorðum en þar
sem markverðir höfðu varið eitt
skot samtals fram að 22. mínútu
var nóg að hitta á markið til að
skora. Gestirnir úr Eyjum náðu
aldrei að stilla strengina í sókn-
arleiknum og með mikilli baráttu
komst Grótta/KR yfir 14:11 tveim-
ur mínútum fyrir leikhlé. Þá loks
tók Vigdís, markvörður ÍBV, við
sér og lið hennar minnkaði muninn
niður í 14:13 áður en flautað var til
leikhlés.
Á fyrstu mínútu síðari hálfleiks
var einum leikmanni Gróttu/KR
vikið af velli í tvær mínútur og það
var nóg fyrir þrautreyndar Eyja-
stúlkur því þær skoruðu þrjú mörk
á meðan svo að taflið snerist við.
Aftur tóku leikmenn Gróttu/KR
við sér og tókst að jafna en síðan
gekk allt á afturfótunum og ÍBV
náði fjögurra marka forskoti,
19:23, þegar rúmar tíu mínútur
voru til leiksloka. Grótta/KR hafði
ekki sagt sitt síðasta orð og með
mikilli einbeitingu tókst þeim að
skora fjögur mörk í röð og enn
rúm ein mínúta til leiksloka. Hófst
þá mikið at og hvort lið náði að
skora eitt mark en ÍBV átti síð-
ustu sóknina. Dæmt var aukakast
þegar sekúnda var til leiksloka og
það dugði Tamöru. „Þetta er svo
sárt,“ sagði Ágústa Edda Björns-
dóttir úr Gróttu/KR eftir leikinn.
„Við byrjum mjög vel í dag enda
ákveðnar að láta ekki endurtaka
sig að byrja eins hrikalega illa og í
síðasta leik úti í Eyjum. Síðan spil-
um við mjög vel en þá kemur bak-
slag en með ótrúlegri baráttu
náum við að jafna forskotið í lokin.
Við bjuggumst því við að komast í
framlengingu en þá koma upp
vandræði sem skildu okkur eftir
gapandi af undrun og það var afar
sárt að tapa,“ bætti Ágústa Edda
við en hún, Edda Kristinsdóttir og
Ragna Karen Sigurðardóttir stóðu
fyrir sínu.
„Þetta var hrikalega erfiður
leikur,“ sagði Vigdís, markvörður
ÍBV, eftir leikinn. „Grótta/KR er
gott lið en í síðasta leik í Eyjum
byrjuðu þær mjög illa og það er
erfitt að rífa sig upp úr því en í
kvöld byrjuðu þær mjög vel,“
bætti Vigdís við en hún náði sér
ekki á strik fyrr en í lok fyrri hálf-
leiks.
Sem fyrr segir var Tamara at-
kvæðamikil þrátt fyrir að hennar
ætti að gæta vandlega. Hins vegar
hlýtur að vera Eyjamönnum
áhyggjuefni hve liðinu gengur illa
að leysa vandann þegar tveir leik-
menn eru teknir úr umferð. „Við
vorum búnar að hugsa nóg um
hvernig á að bregðast við slíku en
það virðist samt ekki ganga upp,“
bætti Vigdís við.
Morgunblaðið/Kristinn
Harpa Melstad, leikmaður Hauka, sækir að marki Vals.
Sigurmark ÍBV á
síðustu sekúndu
HETJULEG barátta Gróttu/KR-stúlkna á lokasprettinum dugði
þeim ekki til sigurs á Íslands- og bikarmeisturum úr Eyjum þegar
liðin léku síðari leikinn í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á Seltjarn-
arnesi á sunnudaginn því Tamara Mandzic skoraði sigurmark ÍBV í
25:24 sigri á síðustu sekúndu. Grótta/KR er því komið snemma í
sumafrí en Eyjastúlkur mæta Fram í undanúrslitum.
Stefán
Stefánsson
skrifar