Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 16
 GUNNAR Andrésson skoraði 12 mörk, þar af 5 úr vítakasti er lið hans, Amitctia frá Zürich, tapaði 28:25 fyrir Endingen í svissneska handknattleiknum á sunnudaginn.  HENRIK Larsson, Svíinn í liði Celtic í Skotlandi, hefur verið í miklu stuði í vetur og helgin var engin undantekning á því. Hann gerði þrennu í síðari hálfleik úrslita- leiks deildabikarsins er Celtic vann Kilmarnock 3:0 og hefur nú gert 47 mörk á leiktíðinni.  GLASGOW Rangers vann Moth- erwell 2:1 og nú munar 13 stigum á Rangers og Celtic. Fabrice Fern- andes, sem var lánaður til Rangers á fimmtudaginn, skoraði á 58. mín- útu með sinni fyrstu snertingu og hið rándýra lið Rangers gat síðan þakkað Robert Malcolm, sem kost- ar liðið ekkert, fyrir sigurinn en hann gerði síðara mark liðsins undir lokin.  SPÁNSKA félagið Las Palmas, sem Þórður Guðjónsson lék með, hefur fengið nýjan styrktaraðila sem ætlar að hjálpa til við að koma fjárhag félagsins á réttan kjöl.  DJAMEL Belmadi, miðvallarleik- maður Marseille í Frakklandi, fær væntanlega einhverja sekt frá félag- inu á næstunni. Áhorfendur voru eitthvað að stríða honum og í lok leiks kastaði hann öðrum skó sínum í áhorfendur um leið og hann gekk af velli.  VICENZO Montella, sóknarmað- ur Roma, var valinn í landsliðshóp Ítalíu um helgina en Ítalir mæta Rúmenum og Litháum í undan- keppni HM síðar í mánuðinum.  GIOVANNI Trapattoni, lands- liðsþjálfari Ítalíu, gerði þrjár breyt- ingar á liðinu frá vináttuleiknum við Argentínu í febrúar. Christian Vieri, sem lagði upp mark Ítala í þeim leik, er ekki í hópnum og tví- burarnir Christian og Damiano Ze- noni detta líka út úr hópnum. De- metrio Albertini og Gennardo Gattuso koma inn í hópinn en þeir voru meiddir þegar leikið var við Argentínu í febrúar.  RAUL, sóknarmaður Real Madr- id, var um helgina útnefndur vin- sælasti íþróttamaður Spánar í kosn- ingu sem sjónvarpsstöð gekkst fyrir. Raul fékk rúmlega 10 millj- ónir atkvæða en í öðru sæti varð handboltamaðurinn Inaki Urdang- arin sem er kvæntur Christinu prinsessu.  DEAN Windass, sem Middles- brough keypti frá Bradford í síð- ustu viku, missti af leik liðsins við Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Windass átti að leika með en tognaði illa í baki þegar hann setti æfingatösku sína í bílinn á laugardagsmorguninn. Svo kann að fara að hann missi líka af næsta leik liðsins fyrir vikið.  CLAUDIO Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, lýsti því yfir eftir ósigurinn gegn Sunderland á laug- ardag að hann myndi gera félagið að enskum meisturum innan þriggja ára. Ranieri segir að það sé sá tími sem þurfi til að móta meistaralið.  DANIEL Prodan, landsliðsmaður frá Rúmeníu, er til reynslu hjá Aston Villa þessa dagana en hann hefur verið leystur undan samningi sínum við Glasgow Rangers. For- ráðamenn Villa munu fylgjast með Prodan í landsleik Rúmeníu og Ítal- íu um næstu helgi og ákveða í kjöl- farið hvort þeir semji við hann.  RONALDO mun leika með Bras- ilíu í Ameríkubikarnum í sumar, að sögn aðstoðarþjálfara brasilíska landsliðsins. Hann segir að Ron- aldo, sem hefur verið frá keppni vegna meiðsla í heilt ár, sé orðinn alheill og tilbúinn til að spila í sum- ar. FÓLK ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem það gerist í úrslitakeppni hér á landi að lið mæti ekki til leiks. Það gerðist þó í blaki kvenna um helgina þegar KA- stúlkur mættu ekki til leiks í Neskaupstað. Heimamenn sigr- uðu því 3:0 og eiga að mæta KA á Akureyri í kvöld. Reykjavíkur-Þróttur lagði Stjörnuna 3:2 í fjörugum leik á laugardaginn. Gestirnir úr Garðabæ sigruðu í fyrstu hrinu 25:20, Þróttur þá næstu 25:22 en Stjarnan hafði betur, 25:21 í þeirri þriðju og stóðu nú vel að vígi. En Þróttarar náðu 25:22 sigri í fjórðu hrinu og því varð að leika oddahrinu og þar hafði Þróttur betur, 15:8. Liðin mæt- ast öðru sinni í Ásgarði annað kvöld. KA-stúlkur mættu ekki til leiks VANDA Sigurgeirsdóttir var um helgina ráðin þjálfari knatt- spyrnuliðs Neista frá Hofsósi og varð með því fyrsta konan til að taka við stjórn meistaraflokks karla í knattspyrnu hér á landi. Neisti leikur í Norðurlandsriðli 3. deildar og hefur síðustu árin vantað herslumun til að komast í úrslitakeppni deildarinnar. „Þetta er mjög spennandi verk- efni, mig hefur lengi langað til að prófa að þjálfa karlalið og ég er mjög ánægð með að forráðamenn Neista skyldu þora að gefa mér þetta tækifæri. Mér líst vel á félagið sem er skynsamlega rekið og ekki skemmir fyrir að ég er ættuð frá Hofsósi. Ég set liðinu ekki stór markmið fyrir sumarið, samningurinn er til tveggja ára og ég horfi frekar til lengri tíma þar sem liðið hefur verið þjálf- aralaust í vetur og er því að byrja seinna en aðrir,“ sagði Vanda við Morgunblaðið í gær. Vanda býr á Sauðárkróki en segir að það sé ekki erfitt að þjálfa lið á Hofsósi. „Æfingarnar eru hér á Króknum sem stendur og í sumar keyri ég á milli, sem tekur ekki langan tíma,“ sagði Vanda sem stjórnaði sinni fyrstu æfingu hjá Neista á sunnudaginn. Hún hefur átt góðu gengi að fagna sem þjálfari kvennaliða og leiddi Breiðablik og KR til fjölda titla, auk þess sem hún þjálfaði kvennalandsliðið um skeið. Vanda lék 37 A-landsleiki og átti lands- leikjametið um nokkurra ára skeið. Vanda þjálfar karla- lið Neista Birgir Leifur lék fyrsta hring-inn á 69 höggum, þann næsta á 71, þriðja hringinn lék hann á einu yfir pari, 74 höggum, og á sunnudaginn endurtók hann leik- inn frá fyrsta degi og lék á þremur undir pari, 69 höggum. Þessi ár- angur skilaði Birgi Leifi í 32. sæt- ið, tveimur höggum og 15 sætum ofar en stórkylfingurinn Severino Ballesteros sem var meðal kepp- enda. „Þetta er í þriðja sinn sem ég keppni í sama móti og Ballesteros og ég hef alltaf verið fyrir ofan hann. Það er ekki slæmt að halda því, að hafa ekki tapað fyrir Ballesteros,“ sagði Birgir Leifur hlæjandi og bætti við að auðvitað væri hann ekkert að keppa sérstaklega við Ballesteros. „Þetta gekk mjög vel og áreynslulaust og ég er mjög sáttur við að byrja svona enda aldrei byrjað eins vel. Þriðji dagurinn var erfiðastur en þá fékk ég skolla og skramba á næstu holu á eftir en annars var þetta vandræðalaust,“ sagði Birgir Leifur. Sigurvegarinn lék á 18 höggum undir pari Keppendur voru 144 og þar af fengu 79 að halda áfram keppni eftir tvo daga. Írinn Des Smyth lék best allra en hann lauk leik á sunnudaginn á 18 höggum undir pari og sigraði með tveimur högg- um. Til gamans má geta þess að Englendingurinn Paul Sherman varð í neðsta sæti á 11 höggum yf- ir pari þannig að sviðið er vítt. Des Smyth varð með þessu elstur allra til að sigra á evrópsku mótaröðinni en á sunnudaginn var hann 48 ára og 34 dögum betur. Birgir Leifur fer til Alicante á þriðjudaginn og heldur áfram æf- ingum þar sem hann er að tileinka sér breytingar á sveiflunni. „Við höfum lagt hart að okkur við að ná fram þeim breytingum á sveiflunni sem Steffan vill og mér sýnist að það sé að skila sér þó svo breyt- ingarnar taki miklu lengri tíma,“ sagði Birgir Leifur. Honum stóð til boða að fara á mót í Argentínu og Brasilíu, sem bæði eru í evrópsku mótaröðinni, en ákvað að gera það ekki, heldur einbeita sér að æfingum og næsta mót hans verður í áskorendamóta- röðinni eftir tvær vikur í Alicante. Birgir Leifur Hafþórsson í 32. sæti á fimm undir pari á Madeira Aldrei byrjað bet- ur og er bjartsýnn Birgir Leifur Hafþórsson stóð sig mjög vel á golfmóti á Madeira. „ÉG er mjög ánægður með spilamennskuna hjá mér. Ég hef aldrei byrjað betur og er því bjartsýnn á framhaldið,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson, kylf- ingur frá Akranesi, sem lauk leik á 283 höggum, fimm högg- um undir pari, á fyrsta móti sínu í evrópsku mótaröðinni. Mótið var á Madeira og endaði Birgir Leifur í 32. sæti ásamt átta öðr- um kylfingum og fékk hver þeirra rúmlega 300 þúsund krónur í verðlaunafé.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.