Morgunblaðið - 08.04.2001, Blaðsíða 20
20 D SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓNUSTA
Bókhaldsþjónusta A.B.
Getum bætt við okkur bókhaldsverkefn-
um fyrir fyrirtæki og einstaklinga með rekstur.
Bókhaldsþjónusta A.B.,
Háholti 1, 220 Hafnarfirði,
s. 694 3715, bokhald@islandia.is .
ÓS verktakar sf.
Ræstingarþjónusta fyrir fyrirtæki.
Bónþjónusta. Gerum tilboð að kostnað-
arlausu. Nýjasta tækni — reynsla.
Símar 899 3772 og 899 0228.
● ●
●
●
●
●
●
● ! "
#
% &'( ))&(* &+, +'''-
Frá Alþingi
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn
skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. regl-
um um hús Jóns Sigurðssonar er laus til afnota
tímabilið 1. september 2001 til 31. ágúst 2002.
Fræðimenn, sem hyggjast stunda rannsóknir
eða vinna að verkefnum í Kaupmannahöfn,
geta sótt um afnot af íbúðinni. Hún er í Skt.
Paulsgade 70 (skammt frá Jónshúsi) en auk
þess hefur fræðimaður vinnuherbergi í Jóns-
húsi. Íbúðin er þriggja herbergja (um 80 ferm.)
og fylgir henni allur nauðsynlegur heimilis-
búnaður. Afnotin eru endurgjaldslaus. Dvalar-
tími í íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir en
til greina kemur skemmri tími eða lengri eftir
umfangi verkefnis og öðrum atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrif-
stofu Alþingis eigi síðar en mánudaginn
30. apríl nk.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi
ráðgerðrar dvalar sinnar í Kaupmannahöfn,
svo og menntun og fyrri störfum. Þá skal taka
fram hvenær á framangreindu tímabili og hve
lengi óskað er eftir afnotum af íbúðinni, svo
og stærð fjölskyldu umsækjanda ef gert
er ráð fyrir að hún fylgi honum. Úthlut-
unarnefnd ætlast til að dvalargestir nýti
úthlutaðan tíma sinn að fullu við störf í Kaup-
mannahöfn.
Eftirfarandi atriði hafa skipt mestu máli við út-
hlutun íbúðarinnar:
1. Að umsókn sé vandlega unnin.
2. Að verkefnið verði ekki unnið annars staðar
en í Kaupmannahöfn eða nágrenni.
3. Að verkefnið hafi fræðilegt eða hagnýtt gildi
og þyki áhugavert.
4. Að sem eðlilegust skipting sé milli kynja og
fræðigreina.
Þeir, sem vilja kynna sér tiltekin málefni í Dan-
mörku, án þess að um sé að ræða frekari fræð-
istörf, eiga að jafnaði litla möguleika á úthlut-
un. Tekið er tillit til fjárhags umsækjenda og
sitja þeir fyrir sem ekki njóta launa eða styrks
meðan á dvöl þeirra stendur.
Sérstök eyðublöð fást á skrifstofu Alþingis í
Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráði
Íslands í Kaupmannahöfn.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur V.b.f. Þróttar verður haldinn í húsi
félagsins laugardaginn 28. apríl nk. kl. 14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Halló halló!
„Vínátufélagið“ kallar
Þá er komið að hinni árlegu átveislu
„Vínátufélagsins“ (fyrrverandi Samvinnubanka-
starfsmenn). Veislan verður haldin í sal FÍH,
Rauðagerði 27, laugardaginn 21. apríl 2001.
Húsið opnað kl. 18.00.
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi 17. apríl til:
Guðfinnu, s. 557 4761, 865 6571,
Ágústu, s. 553 1857, 690 7826,
Einars Boga, s. 898 0148,
Kristbjargar, s. 863 7304,
Hólmfríðar, s. 692 4701.
Nefndin.
ÝMISLEGT
Orlofshúsið Þórðarstaðir,
Húsavík
Vantar þig íbúð á Húsavík í viku eða um helgi?
Hafðu þá samband. Upplýsingar gefa Sigrún
eða Haukur í síma 464 2005 eða 897 7836.
STYRKIR
Starfsstyrkir til
listamanna í Kópavogi
Lista- og menningarráð auglýsir eftir
umsóknum um starfsstyrki til listamanna
úr Kópavogi fyrir árið 2001.
Veittir verða starfsstyrkir einungis til þeirra
listamanna sem búsettir eru í Kópavogi.
Umsóknarfrestur er til 29. apríl nk.
Umsóknum um framangreinda starfsstyrki skal
skila til Lista- og menningarráðs Kópavogs,
Fannborg 2, 2. hæð, 200 Kópavogi.
Lista- og menningarráð Kópavogs
KÓPAVOGSBÆR
HÚSNÆÐI Í BOÐI