Morgunblaðið - 08.04.2001, Page 11

Morgunblaðið - 08.04.2001, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 D 11 Grunnskóli Siglufjarðar www.sigloskoli.is Hjá okkur á Siglufirði eru lausar nokkrar kennara- stöður. Meðal kennslugreina eru: Heimilis- fræði, enska, textilmennt, myndmennt, upplýs- ingamennt, lífsleikni, sérkennsla og almenn kennsla. Við höfum síðan 1997 staðið að markvissri uppbyggingu í skólastarfinu. Unnið er að aukn- um gæðum náms (AGN) eftir breska IQEA vinnuferlinu (Improving the Quality af Eudu- cation for All) . Við höfum notið þess að vaxa, læra og ná árangri saman. Ef þú hefur áhuga á því sem við erum að gera, hafðu þá endilega samband við skólastjórn- endur í síma 460 3737 Upplýsingar um skólann okkar er að finna á www.sigloskoli.is og upplýsingar um bæinn á www.siglo.is Sérstakur bær með sérstakt mannlíf Gamli síldarbærinn Siglufjörður stendur í afar fallegu umhverfi, nyrstur allra kaupstaða á Íslandi. Lifandi sagan speglast í gömlum og nýjum húsum og grónum stígum. Viðureign við hafið og náttúru- öfl hafa mótað sérstakt mannlíf, sem í dag einkennist af miklu félags- lífi og fjölbreyttu íþróttastarfi. Í bænum er nýr leikskóli, góður tón- skóli, öflug heilsugæsla, nýlegt íþróttahús, sundlaug, eitt af betri skíðasvæðum landsins og svo mætti lengi telja. Hjartanlega velkomin til Siglufjarðar. Frá Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti Lausar eru til umsóknar eftirtaldar kennarastöður á haustönn 2001: Danska Enska Forritun Franska Handmenntir Íþróttir Líffræði Rafiðnir Spænska Tréiðnir Viðskiptagreinar Einnig er laus til umsóknar staða námsráð- gjafa. Um er að ræða heilar stöður og ráðning er frá 1. ágúst 2001. Ekki þarf að sækja um á sérstök- um eyðublöðum, en í umsókn þarf að greina frá menntun og fyrri störfum. Laun eru skv. kjarasamningi ríkisins og K.Í. Umsóknarfrestur er til 27. apríl nk. Nánari upplýsingar veita skólameistari og aðstoðarskólameistari í síma 570 5600. Veffang: www.fb.is Netfang: fb@fb.is Skólameistari. Hjúkrunarþjónustan Karitas óskar eftir hjúkrunarfræðingi til sumarafleysinga í fullt starfsleyfi frá 1. júní til 30. september 2001. Möguleiki er á áfram- haldandi afleysingu í 1 ár í viðbót. Reynsla af líknandi meðferð á krabbameinssviði er nauð- synleg. Jafnframt er þekking á sviði sértækra hjúkrunarmeðferða æskileg. Umsóknir berist fyrir 28.04 2001 til Hjúkrun- arþjónustunnar Karitas, Ægisgötu 26, 101 Reykjavík, merktar: „Afleysing“. Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar- innar Siglufirði Laust er til umsóknar embætti framkvæmda- stjóra Heilbrigðisstofnunarinnar Siglufirði. Nefnd samkvæmt 6. mgr. 30. gr. laga um heil- brigðisþjónustu nr. 97/1990 metur hæfni um- sækjenda. Heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra skipar framkvæmdastjóra til fimm ára að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar. Æskilegt er að framkvæmdastjóri geti hafið störf sem allra fyrst. Umsækjendur skulu hafa háskólamenntun eða sambærilega menntun, ásamt reynslu í rekstri og stjórnun. Launakjör eru samkvæmt ákvörðun kjaranefndar. Nánari upplýsingar um starfið veita Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri (s. 560 9700) og Guðrún Ólöf Pálsdóttir, formaður stjórnar Heil- brigðisstofnunarinnar Siglufirði (s. 467 1183 og 460 1900). Umsókn, ásamt staðfestum upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík, fyrir 2. maí 2001. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un um skipun hefur verið tekin. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið Reykjavík. 6. apríl 2001. Ítalía — veitingahús Veitingahúsið Ítalía er að leita að starfsfólki í eftirtalin störf: Aðstoðarmaður í eldhús — secondo di cuc- ina — í fullt starf. Vaktavinna — unnið er í 2 daga og 2 dagar frí. Þjónustufólk í sal. Vaktavinna — unnið er í 2 daga og 2 dagar frí. Einungis er um fullt starf að ræða. Uppvask — unnið er á vöktum. Nánari upplýsingar veittar á staðnum næstu daga milli kl. 13.00 og 17.00. Veitingahúsið Ítalía, Laugavegi 11. Frá Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Kennara í handmennt vantar fyrir næsta skólaár. Við skólann stunda milli 250—260 nemendur nám og um 35 starfsmenn vinna við skólann. Á staðnum er glæsilegt íþróttahús og mikið íþróttalíf. Sveitarfélagið útvegar ódýrt húsnæði. Boðið er upp á heilsdagsvistun í leik- skólanum. Nánari upplýsingar hjá skólastjóra - hsig@ismennt.is - eða aðstoðarskólastjóra thorljs@ismennt.is , í síma 483 3621 / 895 2099. Einnig eru ýmsar upplýsingar um skólann á http://www.skolatorg.is/ MØRE OG ROMSDAL SVEITARFÉLAGIÐ Nánari upplýsingar um sveitarfélagið og fleiri lausar stöður á http://www.mr-fylke.org og www.jobbnord.com SJÚKRAHÚSIÐ Í MØRE OG ROMSDAL, NOREGI Sjúkrahúsið í Møre og Romsdal er í Álasundi, sem er sérstakur og vinalegur strandbær í Jugendstíl, og þar búa um 38.000 manns. Sjúkrahúsið hefur yfir að ráða stóru íbúðasvæði og góðum leikskóla í göngufæri við sjúkrahúsið, og er einn stærsti vinnustaður sveitarfélagsins með um 1680 starfsmenn. Á sjúkrahúsinu eru 335 rúm og þjónar hlutverki svæðisspítala fyrir 240.000 íbúa. Faglegt umhverfi sjúkrahússins er mjög gott og fjölbreytt. Ef þú vilt taka þátt í að byggja upp gæðaþjónustu fyrir sjúklinga okkar, þá er þér hjartanlega velkomið að sækja um starf hjá okkur. Náttúrufegurð er mikil í Møre og Romsdal, ferðamöguleikar margir og margt þangað að sækja fyrir ferðamanninn. Þar má nefna Atlandshafið, fjölmargar eyjar út við ströndina, djúpa firði og há fjöll. Í Álasundi er menningarlíf og atvinnulíf með miklum blóma.   ● Sumarafleysingar: Sérhæfðir hjúkrunarfræðingar í svæfinga/skurð/gjörgæslu- og geðhjúkrun. Hjúkrunarfræðingar með áralanga starfsreynslu geta einnig sótt um ● Sumarafleysingar - Sérhæfðir hjúkrunarfr./hjúkrunarfr. með reynslu af barna- eða gjörgæsluhjúkrun, óskast á barnadeild. Vinnustaðir: Lyflækningadeild: Hjartadeild/Gjörgæsludeild og blóðskilunardeild. Svæfingardeildir: Móttaka/AMK, Skurðlækningadeild/Vöknun. Geðdeild. Vöku- deild. Á vökudeild eru 14 rúm, þar af 4 gjögæslupláss. Deildin tekur á móti fyrirburum og ungbörnum. Barnadeild - lyflækningadeild tekur á móti börnum á aldrinum 0-14 ára, og eru lögð beint inn á deildina Vinnutími er frá og með 26. viku til og með 33. viku eða þar um bil. Við bjóðum: Endurgreiðslu ferðakostnaðar allt að 3.500 NKR, með þeim fyrir- vara að viðkomandi ráði sig til afleysinga í 3 vikur eða meira. Frítt húsnæði. Laun: Sérhæfðir hjúkrunarfræðingar í barnahjúkrun/vökudeild, launafl.11.3, launaþrep 27-35. Sérhæfðir hjúkrunarfræðingar, aðrar deildir: fl.11.2, þrep 26.34. Hjúkrunarfræðingar, lyflækningadeild, staða I og II, fl. 10.3, þrep 25-33. Hjúkrunarfræðingar, aðrar deildir, fl. 10.1, þrep 23-31. Heimsækið heimasíðu okkar: www.smr.no og kynnið ykkur starfsemi sjúkrahúss- ins og deilda þess, eða hafið samband við deildarstjóra á viðkomandi deild, sími á skiptiborði er 0047 70 10 50 00. Notið helst umsóknareyðublöð sjúkrahússins sem fást á vinnumiðlun Álasunds, AETAT, upplýsingar fást hjá sjúkrahúsinu eða á netinu. Skriflegar umsóknir með staðfestum afritum af meðmælum og skírteinum sendist til Sentralsjukehuset i Møre og Romsdal, personalkontoret, N-6026 Álasundi, Noregi. Umsóknir verða afgreiddar strax. Menntamálaráðuneytið Laust embætti skólameistara Embætti rektors Menntaskólans í Reykjavík er laust til umsóknar Samkvæmt 17. gr. laga nr. 86/1998 um lög- verndun á starfsheiti og starfsréttindum grunn- skólakennara, framhaldsskólakennara og skóla- stjóra skal skólameistari hafa kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Menntamálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni tillögu hlutaðeig- andi skólanefndar, sbr. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla nr. 80/1996 og lögum um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/ 1996, með síðari breytingum. Gert er ráð fyrir því að skipað eða sett verði í embættið frá og með 1. ágúst 2001. Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjara- nefndar, sbr. lög nr. 120/1992 um Kjaradóm og kjaranefnd, með síðari breytingum. Umsóknir, með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 23. apríl 2001. Menntamálaráðuneytið, 29. mars 2001. menntamalaraduneyti.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.