Morgunblaðið - 08.04.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.04.2001, Blaðsíða 6
6 D SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Bókasafns- og upplýsingafræðingur Orkustofnun óskar að ráða bókasafns- og upplýsingafræðing í fullt starf. Starfssvið: ● Umsjón með uppbyggingu og notkun bóka-, greina- og tímaritasafns stofnunarinnar. ● Upplýsingaöflun og upplýsingamiðlun innan stofnunar og utan. ● Umsjón með aðgengi og notkun gagna- og þekkingargrunna stofnunarinnar. ● Umsjón og afgreiðsla útgefinna rita stofnun- arinnar. ● Innkaup upplýsingaefnis, skráning þess og dreifing. ● Fræðsla og þjálfun á sviði upplýsinga- og þekkingarstjórnunar. Menntunar- og hæfniskröfur: ● Háskólamenntun í bókasafns- og upplýsinga- fræði. ● Mjög góðrar íslenskukunnáttu er krafist. ● Almenn tölvukunnátta nauðsynleg. ● Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. ● Vandvirkni og skipulögð vinnubrögð. Óskað er eftir metnaðarfullum einstaklingi, sem hefur vilja og hæfileika til að bregðast við síbreytilegum aðstæðum upplýsingasam- félagsins. Auglýsinguna er einnig að finna á heimasíðu stofnunarinnar, http://www.os.is/auglysing.html Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrafnhild- ur Þorgeirsdóttir, yfirmaður upplýsingadeildar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjár- málaráðuneytis og Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Orkustofnun stefnir að því að fjölga konum og yngra fólki í starfsliði sínu. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist starfsmannastjóra Orkustofn- unar eigi síðar en 17. apríl. Öllum umsóknum verður svarað. Orkumálastjóri. Hjúkrunarheimili aldraðra Víðinesi Sumarafleysingar 2001 Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa frá 1. júní vegna sumarafleysinga. Helgar-, kvöld- og næturvaktir eða eftir nánara samkomulagi. Yfirumsjón með tveimur hjúkrunardeildum. Sjúkraliðar Sjúkraliðar óskast á hjúkrunardeildir frá 1. júní vegna sumarafleysinga. Vinnuhlutfall samkomulag. Dag/vaktavinna. Starfsfólk við aðhlynningu Starfsfólk óskast til aðhlynningarstarfa á hjúkr- unardeildir frá 1. júní vegna sumarafleysinga. Vinnuhlutfall samkomulag. Dag/vaktavinna. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunar- forstjóri, Borghildur Ragnarsdóttir, í síma 563 8803. Víðines er 2ja ára hjúkrunarheimili aldraðra. Á heimilinu eru tvær deildir, fyrir 19 og 18 íbúa. Við viljum leggja áherslu á heimilislegt umhverfi fyrir íbúa og starfsfólk. Víðines er staðsett á fallegum og friðsælum stað, ca 10 km fyrir utan Mosfellsbæ. Bifreiðastyrkur er greiddur samkvæmt reglum þar um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.