Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 1
2001  ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A ÖRN SETTI FIMM ÍSLANDSMET Í DANMÖRKU / B8 Fátt virðist geta komið í veg fyrirað Guðmundur Guðmundsson verði ráðinn næsti þjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik í stað Þorbjörns Jenssonar. Morgunblað- ið hefur heimildir fyrir því að samn- ingur Guðmundar við HSÍ liggi á borðinu og er stefnt að því að ganga frá samningi fyrir páska. Guðmund- ur er staddur hér á landi og fylgdist hann með fyrrverandi lærisveinum sínum í Fram tapa fyrir Val á Hlíð- arenda í 8-liða úrslitunum um Ís- landsmeistaratitilinn í fyrrakvöld. Þrír þjálfarar hafa aðallega verið orðaðir við landsliðsþjálfarastöðuna eftir að ljóst varð að Þorbjörn Jens- son ákvað að hætta með liðið. Auk Guðmundar voru það Kristján Ara- son, fyrrverandi þjálfari FH-inga, og Anatoly Fedukin, þjálfari Fram, en samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins stendur nafn Guðmundar eitt eftir. Guðmundur var nýlega leystur frá störfum hjá þýska handknatt- leiksliðinu Dormagen en hann er samningsbundinn liðinu fram til vorsins 2002. Fyrr en þetta mál hef- ur verið leitt til lykta getur Guð- mundur ekki skrifað undir samning við HSÍ. SYSTURNAR Ásdís Rós Clark og Helga Margrét Clark frá Ak- ureyri hömpuðu gulli á Íslands- mótinu á listhlaupi á skautum, sem fram fór í Skautahöllinni á sunnudaginn. Keppt var í þremur flokkum og í elsta flokki varði Sigurlaug Árnadóttir úr Skauta- félagi Reykjavíkur Íslandsmeist- aratitil sinn. Hún hefur keppt á skautum í næstum átta ár og leggur mikið á sig við æfingar, mætir meðal annars á æfingar klukkan sex á morgnana. „Ef mik- ið er um að vera nýti ég allar morgunæfingarnar en annars fer ég nokkrum sinnum á viku. Það er ekki svo freistandi að vakna þegar ekkert mót er framundan en samt er alltaf jafn gaman á skautum,“ sagði Sigurlaug eftir mótið en hún keppti á Norð- urlandamótinu í Danmörku fyrir skömmu. „Það var erfitt en mjög gaman því þetta var í fyrsta sinn, sem ég fer á svona stórt mót.“ Yfirdómarar á mótinu komu frá Englandi og sögðust þeir ánægðir með getu íslensku stúlknanna. Vissulega væri íþróttin ung á Ís- landi en þeir sögðu mikinn áhuga koma í staðinn, hér nytu stúlk- urnar þess að skauta en víða um heim væri það ekki svo. Morgunblaðið/Þorkell Íslandsmeistarar í listhlaupi á skautum, Ásdís Rós Clark, Sigurlaug Árnadóttir og Helga Margrét Clark. Systurnar og Sigurlaug fengu gullið Guðmundur næsti þjálfari landsliðsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.