Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 B 7 HANDKNATTLEIKUR Flensburg skaust að nýju í topp-sæti þýsku Bundesligunnar í handknattleik. Flensburg lagði Wallau Massenheim, 30:26, og náði eins stigs forskoti á Magdeburg sem á leik til góða. Lemgo tapaði hins vegar dýrmætum stigum þegar liðið lá fyrir Essen á útivelli, 25:20. Patrekur Jóhannesson átti frá- bæran leik fyrir Essen og skoraði 6 mörk en Essen er jafnt Kiel að stig- um í 5.-6. sætinu með 38 stig. Minden sigraði Willstätt á útivelli, 27:22, þar sem Talant Dujshebajew var í ham og skoraði átta mörk en Gústaf Bjarnson komst ekki á blað. Minden hefur verið að fikra sig upp töfluna og er komið upp í 9. sæti. Wuppertal vann óvæntan sigur á móti Nettelstedt á útivelli, 22:20, en er sem fyrr í næst neðsta sæti deild- arinnar með aðeins átta stig, níu stigum á eftir Dormagen. Heiðmar Felixson skoraði tvö af mörkum Wuppertal en Dmitri Filippow var að vanda markahæstur en hann skoraði átta mörk. Róbert Duranona hafði frekar hægt um sig í liði Nett- elstedt og skoraði aðeins tvö mörk. Sigurður Bjarnason og félagar hans í Wetzlar töpuðu á útivelli fyrir Solingen, 25:24, en í hálfleik var staðan jöfn, 13:13. Sigurður skoraði eitt mark í leiknum. Meistarar Kiel virðast komnir á gott skrið. Í síðustu viku vann Kiel öruggan sigur á Flensburg og um helgina burstaði Kiel lið Bad Schwartau á útivelli með tíu marka mun, 28:18. Patrekur sterkur Auður Hermannsdóttir og Harpa Melsted, fyrirliði Hauka, á ferðinni með Íslandsbikarinn á Ásvöllum. Ég get ekki sagt annað en að éghætti á toppnum og ég skil rosalega sátt við handboltann eftir að hafa unnið tit- ilinn. Raggi þjálfari á rosalega mikið í þessum titli. Hann tók okkur alveg í gegn og kom okkur í svakaform og við erum að uppskera laun erfiðis- ins. Það kom ekki til greina annað en að vinna ÍBV örugglega enda vildum við sýna og sanna að tapið á móti ÍBV í bikarkeppninni var hálfgert slys af okkar hálfu,“ sagði Auður. Brynja Steinsen fagnaði vel sín- um fyrsta Íslandsmeistaratitli en hún gekk í raðir Haukanna fyrir tímabilið frá Val. Í betra formi en önnur lið „Markmiðið með því að fara til Hauka var að vinna titilinn og ég get því ekki verið annað en glöð þegar hann er kominn í höfn. Eftir fyrsta leikinn vissi ég að við mund- um gera út um þetta í þremur leikjum. Við erum með miklu betra lið og auðvitað blundaði í okkur hefnd eftir að hafa kastað frá okk- ur bikartitlinum á móti ÍBV fyrr í vetur. Ég mundi telja lykilinn að velgengni okkar vera að við höfum æft gríðarlega vel og það sýndi sig að við vorum í miklu betra formi en önnur lið. Vörnin gerði líka út- slagið í mörgum leikjum,“ sagði Brynja og bætti við að Íslands- meistaratitillinn væri upphafið að stórveldi. Toppuðum á réttum tíma „Það sást strax í fyrsta úrslita- leiknum að við ætluðum ekki að láta ÍBV taka þennan titil líka. Við vorum að toppa á hárréttum tíma og úrslitakeppnin var hreint frá- bær hjá okkur. Liðsandinn í vetur hefur verið frábær og allir hafa verið tilbúnir að leggja mikla vinnu á sig. Við höfðum mjög góða breidd en það sem ég held að hafi skipt sköpum var að við erum í mjög góðri æfingu og það kom berlega í ljós að við gátum alltaf bætt í á meðan ÍBV sprakk á limminu,“ sagði Harpa Melsted, fyrirliði Hauka. Auður hætt- ir á toppnum AUÐUR Hermannsdóttir lék gríðarlega vel fyrir Hauka á tímabilinu og líklega hefur þessi sterka handboltakona aldrei leikið betur á ferli sínum. Auður var að leika sinn síðasta leik fyrir Hauka, að minnsta kosti í bili, en hún flytur til Lúxemborgar í sumar og ætlar að stunda þar nám. Guðmundur Hilmarsson skrifar u vel a lið- ndast sem r hafi lítilli sýndi nga á góð- vona komu ndi,“ m við nnum tinu sæt- fyrir hefði bæta a hjá minn kveð- Þessi mmti- tarfa bær- hann l Fyrir mig er þetta fyrst og fremststaðfesting á því að markviss vinna skilar árangri. Eftir tímabilið í fyrra þurfti ég að taka mjög mikið til. Þegar ég tók við lið- inu var það í fyrsta lagi ekki í formi til að spila nema í 40 mínútur og það gerði útslagið í leikjunum á móti Víkingunum í 8-liða úrslitunum í fyrra. Það voru ekki hraðaupp- hlaupsfærslur í liðinu, lítil sem engin samvinna á milli leikmanna og and- inn í hópnum ekkert allt of góður. Eftir þessa tvo tapleiki við Víking gerði ég stelpunum tilboð þrátt fyrir ég vissi ekkert hvort ég yrði ráðinn áfram. Ég sagði að ef þær væru til- búnar að fara í gegnum þá vinnu sem ég hefði í huga að setja upp fyr- ir þær þá myndu þær ná árangri á næsta ári.“ Ragnar segir að lykilleikurinn í einvíginu við ÍBV hafi verið úti í Eyjum þegar Haukarnir sigruðu í öðrum leiknum. „Ég held að ÍBV hafi gert ákveðin mistök í fyrsta leiknum. Tíu mörk- um undir 20 mínútum fyrir leikslok hefði ÍBV átt að hvíla lykilleikmenn og í staðinn vantaði liðið ákveðinn kraft til að vinna leikinn í Eyjum.“ Sleitulausar æfingar í eitt ár Líkamlegi pakkinn sem stelpurn- ar eru búnar að fara í gegnum byggður á samstafi mínu við Guð- mund Sigurðsson lyftingaþjálfara og samstarfið sem ég átti við Guðjón Þórðarson knattspyrnuþjálfara í bland eftir mínu höfði, miðað við stelpur, hefur skilað mjög miklu.“ Það má segja að stelpurnar séu búnar að æfa sleitulaust í eitt ár ut- an fimm vikna sem þær fengu frí. Ég sjálfur hef ekki tekið mér neitt frí á þessu ári. Þessar vikur sem þær voru í pásu notaði ég til að æfa þær stelpur sem voru í fríi á einhverjum öðrum tíma. Æfingarnar hafa verið mjög markvissar og við höfum ekki notað hluta af æfingunni til að spila fótbolta eins og mörg handboltalið hafa gert. Vinnan hefur byggst á því að ná upp almennu þreki, hraða og um leið að bæta tækni og leikskiln- ing. Ég hef blandað saman í þessari þjálfun hlaupaþjálfun og alvöru lyft- ingaþjálfun með ólympísku ívafi sem Guðmundur Sigurðsson hefur hjálp- að mér með eins og hann gerði þegar ég þjálfaði Val. Með því að vinna vel á sumrin getur maður keyrt af meiri ákefð allan veturinn. Stelpurnar eiga allt sem þær hafa náð í vetur 100% skilið því það hefur varla kom- ið fyrir að leikmaður hafi misst úr æfingu. Það er einstakt og ég hef aldrei kynnst því áður í kvenna- íþróttum að það komi ekki afsakanir eins og ég þarf að fara í leikhús eða amma er að koma í heimsókn.“ Hugurinn stefnir í karlaboltann Ragnar segir að ein afleiðing lyft- ingaþjálfunarinnar sé sú að meiðslin hafa lítið sem ekkert verið að hrjá liðið og í þau skipti sem leikmenn hafa orðið fyrir einhverju hnjaski hafa þeir verið fljótir að jafna sig. Hvað tekur við hjá þér núna þegar tímabilið er búið? „Það er alveg einstakt að vera að vinna hjá Haukum. Ég handsalaði samning við Þorgeir formann fyrir um ári síðan um að taka liðið í fjór- um leikjum og síðan höfum við ekk- ert gert meira í málinu. Ég er ekki á samningi og ég hef sagt Þorgeiri það að hugur minn stefnir í karlahand- boltann. Einhvern veginn hefur það nú samt verið hér á Íslandi að þang- að komast þeir ekki nema þeir geti lítið þjálfað en heiti einhverju góðu nafni í staðinn. Fagmennskan í ís- lenska handboltanum er það sem stendur honum fyrir þrifum. Hún hefur undanfarin ár verið í lágmarki og handboltinn stendur því miður fótboltanum langt að baki hvað þetta varðar. Í fótboltanum er menntun- arstefna og menn geta unnið sig upp eftir frammistöðu en það gildir því miður ekki í handboltanum. Ef ég verð hins vegar áfram í kvennahand- boltanum þá verð ég áfram hjá Haukum,“ sagði Ragnar. Markviss vinna skilar árangri Ragnar Hermannsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka RAGNAR Hermannsson, þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara Hauka, sagði við Morgunblaðið eftir sigurinn á ÍBV að lið sitt hefði verið að uppskera laun erfiðisins. Hann sagði að eftir tímabilið í fyrra hefði hann stokkað algjörlega upp spilin og markvissar og stífar æfingar í eitt ár hefðu skilað sér. Ragnar tók við þjálfun Hauka rétt fyrir úrslitakeppnina í fyrra. Haukar höfnuðu þá í átt- unda sæti deildarkeppninnar og í 8-liða úrslitunum slógu deildar- meistarar Víkings Haukana út. Í ár var annað uppi á teningnum. Haukar urðu deildarmeistarar og unnu alla sjö leiki sína í úr- slitakeppninni á sannfærandi hátt. Guðmundur Hilmarsson skrifar Kominn tími á Evrópukeppnina HARPA Melsted fyrirliði Íslandsmeistara Hauka vonast til að Haukar taki þátt í Evrópukeppninni á næsta tímabili. „Mér finnst kominn tími til að við fáum að vera með í Evr- ópukeppninni. Strákarnir voru með í ár og mér finnst rétt að við fáum að spreyta okkur eftir að hafa orðið Íslandsmeist- arar þrívegis á fimm árum,“ sagði Harpa við Morgunblaðið skömmu eftir að hún hafði lyft bikarnum á loft.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.