Morgunblaðið - 11.04.2001, Page 1
EFNI
Guðmundur M.
Kristjánsson og
Peter Eichenber-
ger í Malasíu
Alþjóðlega sjáv-
arútvegssýningin
í Boston
!
"#
!
$
%&
'
(
)
*#
#+
+
Fréttir Markaðir
3
5
Viðtal
Sýningar
● DANIR eru taldir fjórðu
stærstu útflytjendur fisk-
afurða í heiminum. Sá útflutn-
ingur byggist bæði á eigin
veiðum og innflutningi á óunn-
um fiski til frekari vinnslu og
útflutnings. Fiskafli þeirra
hefur farið minnkandi á und-
anförnum árum vegna minnk-
andi veiðiheimilda. Árið 1995
var heildarafli þeirra ríflega
1,9 milljónir tonna, en árið
1999 varð hann aðeins 1,4
milljónir tonna. Það er sam-
dráttur um hálfa milljón tonna
og liggur hann að mestu í
minnkandi afla á uppsjávar-
fiski til mjölframleiðslu. Afli af
fiski til manneldis hefur reynd-
ar einnig dregizt saman. Árið
1995 var hann 433.000 tonn en
aðeins 354.000 tonn árið 1999.
Minnkandi
afli Dana
● DANIR bæta sér upp
minnkandi afla með auknum
innflutningi á óunnum fiski til
vinnslu og endurútflutnings.
Árið 1995 fluttu þeir inn um
810.000 tonn, en 1,1 milljón
tonna árið 1999. þá hefur fisk-
eldið skilað þeim ríflega
40.000 tonnum á ári und-
anfarin ár. Fiskinn flytja Dan-
ir inn frá öðrum Norður-
löndum auk Kanada og Rúss-
lands, en um 95% af sjávar-
vöruútflutningi þeirra er til
landa innan ESB./6
Aukinn
innflutningur
● AFLABRÖGÐ hafa verið
ágæt hjá bátum á Höfn í
Hornafirði að undanförnu.
Veiðin hefur sérstaklega ver-
ið góð frá Hrolllaugseyjum að
Ingólfshöfða og hafa netabát-
arnir verið að fá upp í 11
tonn á dag og línubátarnir um
þrjú til fjögur tonn, en trill-
urnar eitthvað minna. Reynir
Arnarson gerir út sex tonna
trillu, Gróu SF, og byrjaði 15.
mars. „Það hefur gengið
þokkalega þegar hefur gef-
ið,“ segir hann en Reynir hef-
ur ekki komist á sjó síðan á
sunnudag vegna veðurs./4
Aflabrögð
ágæt á Höfn
● Samkvæmt áætlun mun Út-
flutningsráð Íslands skipu-
leggja þátttöku íslenskra fyr-
irtækja á fjömörgum
áhugaverðum sjávarútvegs-
sýningum á árinu. Vel hefur
gengið að fylla plássin á flest-
um sjárvarútvegssýningunum
og komust t.d. færri að en
vildu á sýningarnar í Boston
og Brussel. Aðrar sjáv-
arútvegssýningar eru jafn-
framt eftirsóttar. Að baki eru
tvær sýningar, Fishing í Glas-
gow, en þar hafði Útflutn-
ingsráð til ráðstöfunar um
100 fermetra sýningarsvæði
og sýningin í Boston./5
Eftirsóttar
sýningar
● Nýlega var gengið frá
kaupsamningi að verðmæti
25 milljónir króna milli Gjög-
urs hf. og Hampiðjunnar um
kaup á flottrollsbúnaði fyrir
Hákon ÞH, sem verið er að
ljúka við smíði á í Chile.
Nýja skipið er væntanlegt í
byrjun júní og mun þá taka
flottrollsbúnaðinn um borð í
Reykjavík. Því var ákveðið
að festa kaup á 2.048 metra
Gloria-þantrolli til veiða á
kolmunna og minna flottrolli
til veiða á síld og loðnu./7
Troll fyrir 25
milljónir
ÞAÐ beið þeirra ærið verk, feðg-
anna Hjartar Arnfinnssonar og Krist-
ins Hjartarsonar á Neskaupstað, þeg-
ar þeir drógu grásleppunetin í fyrsta
skipti nú í vor. Eftir leiðinda brælu
voru netin full af þara og sagðist
Hjörtur ekki muna eftir annarri eins
verkun á þeim árum sem hann hefur
stundað grásleppuna. Það var því
ekki um annað að ræða en að taka
netin í land og hreinsa þau. Færri sög-
um fer hinsvegar af aflabrögðunum.
NETIN FULL AF ÞARA
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Bretar juku innfluting á sjávarafurð-
um öðrum en mjöli og lýsi um 1% um-
rætt tímabil á síðasta ári og nam inn-
flutningurinn alls um 491.100 tonnum.
Aukning varð á innflutningi á frystum
flökum og flakabitum um 12%. Verð-
mæti innflutningsins nam 158,4 millj-
örðum króna og jókst það um 5%.
Sé aðeins litið á þessa helztu af-
urðaflokka seldum við Bretum fisk
fyrir ríflega 28 milljarða króna á síð-
asta ári, en það er meira en fjórð-
ungur alls sjávarvöruútflutnings á
síðasta ári.
Í ferskum fiski koma Færeyingar
næstir á eftir okkur með 2,9 milljarða
og er það 10% samdráttur. Norðmenn
selja Bretum mest af frysta fiskinum,
alls fyrir 11,5 milljarða króna, en við
komum fast á hæla þeirra. Mest af
skelfiski kaupa Bretar frá Indlandi,
fyrir 5,3 milljarða, sem er tvöföldun
miðað við sama tíma árið áður og inn-
flutningur á skelfiski frá Bangladesh
jókst um 44% og nam alls 4,8 millj-
örðum króna.
Ísland á toppnum
Ísland trónir á toppnum þegar
kemur að tilbúnum réttum og neyt-
endapakkningum í fiski og rækju með
7,8 milljarða en Taíland er næst með
5,3 milljarða króna.
Mest af þorskinum, bæði ferskum
og frystum, kaupa Bretar héðan eða
fyrir 12,1 milljarð króna og næstmest
frá Noregi, 7,9 milljarða króna. Ýsuna
kaupa Bretar mest af Norðmönnum,
eða fyrir þrjá milljarða króna og héð-
an fyrir 2,7 milljarða.
Þorskur til Bretlands
fyrir 12,1 milljarð króna
ÍSLENDINGAR eru stærstu selj-
endur á sjávarafurðum til Bret-
lands. Allt síðasta ár fluttu Íslend-
ingar út ferskan fisk að verðmæti
tæplega 7 milljarðar króna og jókst
sá útflutningur um 12% miðað við sama tíma í fyrra. Á sama tíma seldum við Bret-
um frystan fisk að verðmæti 10,8 milljarðar króna og tilbúna rétti og skelfisk fyrir
7,8 milljarða króna. Loks seldum við þeim fiskimjöl og lýsi fyrir 2,7 milljarða króna.
Helztu keppinautar okkar á þessu sviði eru Norðmenn.
Bretar fluttu meira
inn á síðasta ári
● VERÐMÆTI mjölútflutn-
ings nam á síðasta ári um 9,3
milljörðum króna, en var 8,6
milljarðar króna árið 1999.
Útflutningsverðmæti lýsis
nam árið 1999 tæpum 2,5
milljörðum króna en í fyrra
tæpum 1,9 milljörðum króna
sem er 24% samdráttur. Heild-
arverðmæti útflutnings á mjöli
og lýsi var því um 11,2 millj-
arðar króna í fyrra sem er um
2% aukning frá árinu 1999./8
Meira fyrir
mjölið
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 BLAÐB