Morgunblaðið - 11.04.2001, Page 3

Morgunblaðið - 11.04.2001, Page 3
VIÐTAL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 B 3 SAMSTARF á milli Íslands og Mal- asíu á sviði sjávarútvegs hófst fyrir tæpum þremur árum. Í febrúar 1999 fór Finnur Ingólfsson, þáverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í op- inbera heimsókn til Malasíu ásamt fjölmennri viðskiptasendinefnd. Í kjölfar þeirrar heimsóknar var fjöl- mörgum tengslum komið á og hefur öflugt starf verið unnið síðan þá við kynningu á íslenskri veiðitækni og veiðarfærum. Í þeirri heimsókn var einnig ákveðið að íslenskur starfs- maður Útflutningsráðs skyldi starfa í Malasíu næstu sex mánuðina við að kenna malasískum sjómönnum á ís- lensk veiðarfæri. Síðan eru liðin tæp tvö ár, verkefnið hefur verið fram- lengt tvívegis og Guðmundur M. Kristjánsson skipstjóri og starfs- maður Útflutningsráðs starfar enn í sjávarþorpum í Malasíu. Guðmundur er nú við störf í þorp- inu Kuala Sungai Baru í Malaka í suðvestur Malasíu og er það fimmta þorpið sem hann starfar í á tæpum tveimur árum. Starf Guðmundar felst í að setja upp sjálfvirkt línu- veiðikerfi, sem VAKI-DNG á Íslandi framleiðir, í nokkra báta í hverju þorpi og kenna skipverjum á það. Sjómenn í Malasíu notast enn við handbeitingu og uppstokkun á línu og nær hver bátur með því móti um 1.000 krókum á dag. Með íslensku tækjunum kemst hver bátur upp í 10.000 króka á dag og er gert ráð fyrir að aflinn aukist í samræmi við krókana, að sögn Guðmundar. Sjómennirnir áhugasamir um nýjungarnar Guðmundur segir að vel gangi að kenna malasískum sjómönnum á kerfið, en LKIM (Lembaga Kawas- an Ikan Malaysia), sem er nokkurs konar þróunarstofnun sjómanna í eigu ríkisins, velur fyrirtæki til þess að starfa með á hverjum stað. Guð- mundur segir að nú fyrst reyni á hvort sjómennirnir haldi áfram að nota tækin eftir að hann hverfi á braut frá þorpinu því hann mun í fyrsta skipti skilja veiðarfærin eftir þegar hann fer þaðan í lok mánaðar- ins. Hann segir að sjómenn í öðrum þorpum sem hann hefur starfað í hafi verið mjög áhugasamir og ánægðir með íslensku veiðarfærin. Vandamálið sé hins vegar hvað tæk- in séu dýr miðað við verðmæti aflans. „Það væri aðgengilegra fyrir sjó- mennina ef hægt væri að framleiða tækin hér í Malasíu. Framleiðslu- kostnaður er mun lægri hér en á Ís- landi og sjómenn myndu hafa ráð á að festa kaup á þeim ef þau væru framleidd hér. Nú er hugsanlegt að af því geti orðið þar sem viðræður eru að hefjast á milli íslensku fyr- irtækjanna VAKA-DNG, Icedan, Ís- kerfa og Trefja, og LKIM um sam- starf á framleiðslu veiðarfæra og báta hér í Malasíu,“ segir Guðmund- ur og er það ein ástæða þess að fulltrúar LKIM og ræðismaður Ís- lands komu til Íslands í lok mánaðar- ins. Íslensk fyrirtæki hefji framleiðslu í Malasíu Peter Eichenberger, ræðismaður Íslands í Malasíu, tekur í sama streng og Guðmundur og segir mjög mikilvægt að íslensk fyrirtæki átti sig á möguleikunum sem felast í að flytja framleiðslu sína til Malasíu. Með því móti opnist tækifæri til að selja tækin í Malasíu á viðráðanlegu verði fyrir heimamenn þar sem framleiðslukostnaður sé mun lægri í Malasíu, vinnulaun séu aðeins 25% af því sem þau eru á Íslandi og til við- bótar komi svo flutningskostnaður og háir tollar. Eichenberger bendir jafnframt á að landnám íslenskrar tækni í Malasíu gæti verið byrjunin á fótfestu hennar í allri suðaustur As- íu. Markaðssókn opnar dyr að 500 milljóna manna markaðssvæði „Það er mjög mikilvægt fyrir Ís- lensk fyrirtæki að átta sig á því að Malasía er hluti af ASEAN (Associ- ation of South-East Asian Nations) sem gert hefur með sér fríverslunar- samning sem kallast AFTA. Árið 2003 munu innflutningstollar á milli ríkjanna innan AFTA hverfa, svo þeir sem vilja selja sína vöru á tæp- lega 500 milljón manna markaði eru mun betur settir ef þeir framleiða sína vöru innan svæðisins,“ segir Eichenberger og heldur áfram: „Hugmyndin er að íslensk fyrirtæki nái fótfestu og góðum árangri í Mal- asíu og breiðist síðan út um allt ASEAN-markaðssvæðið,“ segir Eichenberger sem hefur, ásamt ís- lenskum, malasískum og kanadísk- um aðilum, stofnað fyrirtækið Asia Fisheries Consulting, til þess að veita íslenskum og malasískum fyr- irtækjum ráðgjöf á þessu sviði. Eichenberger segir að nú loksins séu Íslendingar að sjá árangur tveggja ára kynningarstarfs á ís- lenskum veiðarfærum og bátum. „Við vorum allir frekar bláeygir þeg- ar við byrjuðum starfið hér í Malas- íu. Héldum að við gætum markaðs- sett okkar vöru á sex mánuðum og sigrað markaðinn. En sú varð ekki raunin og síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Ég hef til dæmis komist að því í millitíðinni að fjöl- mörg fyrirtæki frá mörgum löndum hafa reynt að koma sinni tækni á framfæri en ekki tekist það. En nú sjáum við loksins árangur tveggja ára vinnu,“ segir Eichenberger. Hann segir að í Asíu gildi önnur lög- mál í viðskiptum en þekkist á öðrum markaðssvæðum. Hér þurfi hægt og rólega að vinna traust viðskipta- félagans og síðan sé hægt að fara að tala um viðskipti. Malasíumenn vilja framlengja samstarfið Eichenberger segir að dæmi um árangur markaðssetningar íslensku veiðarfæranna sjáist víða. LKIM vilji til dæmis framlengja verkefnið sem nú er í gangi og á að ljúka í sept- ember, bæði hvað varðar tíma og umfang. Þeir hafi áhuga á að læra af Íslendingum á fleiri sviðum sjávar- útvegs, eins og til dæmis á sviði markaðssetningar, fiskvinnslu og rannsóknum á stærð fiskistofna og fleira. Auk þess vilji þeir fræðast um reynslu okkar á nýtingu afurðanna vegna þess að eins og stendur er milli 20 og 30% fisksins ónýtanlegur vegna slæmrar vinnslu og geymslu- aðferða. 300 milljóna króna fjárveiting til kaupa á nútímaveiðarfærum „Malasíumenn geta lært margt af ykkur Íslendingum. Þjóð sem fram- leiðir 1,3 milljónir tonna á ári með 100.000 sjómanna afla getur lært ýmislegt af þjóð sem framleiðir tvær milljónir tonna af fiski á ári með 9.000 sjómanna afla,“ segir Eichen- berger. Hann segir að samkvæmt sjávarútvegsráðherra Malasíu sé út- lit fyrir að Ísland verði sú þjóð sem muni hjálpa Malasíu til að tæknivæð- ast á sviði sjávarútvegs: „Ráð- herrann hér í Malasíu hefur gífur- legan áhuga og mikla trú á auknu samstarfi þjóðanna. Hann hefur nú minnst á Ísland í þessu samhengi nokkrum sinnum á opinberum vett- vangi undanfarið, og fjölmiðlar hafa vitnað í þau orð og komið Íslandi á kortið hér í Malasíu. Meðal þess sem ráðherrann sagði var að Ísland yrði sú þjóð sem myndi hjálpa Malasíu til að tæknivæðast á sviði sjávarútvegs. Auk þess hefur hann beitt sér fyrir 300 milljóna króna fjárveitingu til LKIM sem á að fara í að kaupa nú- tíma veiðarfæri. Íslendingar eiga góða möguleika á að stór hluti þeirr- ar fjárveitingar renni til þeirra í við- skiptum,“ segir Eichenberger sem kom til Íslands í lok mánaðarins til að undirbúa heimsókn ráðherrans sem hefst í byrjun maí. Byrjar að kenna á troll Eins og fram kom hér að framan er útlit fyrir að samstarfssamningur Útflutningsráðs, íslensku fyrirtækj- anna og LKIM verði framlengdur og Guðmundur Kristjánsson starfi því áfram um sinn í Malasíu. Hann seg- ist una sér vel meðal fiskimannanna þótt lífið sem þeir lifi sé vissulega fá- breytt. Hann dvelur í þrjá til fjóra mánuði í hverju þorpi, en í næsta þorpi taka við nokkrar breytingar því þar mun hann byrja að veiða með togveiðarfærum frá íslenska fyrir- tækinu Icedan. Með því að nota þau verður hægt að fara á slóðir sem bát- arnir geta ekki veitt á í dag, að sögn Guðmundar. „Við gerum okkur vonir um að ná verðmætari fiski í trollin því með þeim getum við farið nær kóralnum og á verri togbotn án þess að valda þar skemmdum á veiðar- færunum, segir Guðmundur sem að loknu verkefninu mun hafa starfað í þorpum í öllum héruðum Malasíu. Sjávarútvegsráðherra Malasíu á leið til Íslands og möguleikar á íslenskri framleiðslu í Malasíu skoðaðir „Loksins árangur tveggja ára vinnu“ Samstarf á milli Íslands og Malasíu á sviði sjávarútvegs er blómlegra en nokkru sinni fyrr. Sjávarútvegsráðherra Malasíu kemur til Íslands í byrjun maí. Ragna Sara Jónsdóttir ræddi við Guðmund M. Kristjánsson starfsmann Útflutningsráðs í Malasíu og Peter Eichenberger, ræðismann Íslands í Malas- íu, um möguleika íslenskrar sjávarútvegsþekkingar í Malasíu. Guðmundur M. Kristjánsson, skipstjóri og starfs- maður Útflutningsráðs Íslands, hefur nú starfað í tæp tvö ár meðal malasískra sjómanna. Peter Eichenberger, ræðismaður Íslands í Malasíu, er bjartsýnn á möguleika íslenskra sjávarútvegs- fyrirtækja í Malasíu. Morgunblaðið/Ragna SaraMorgunblaðið/Ragna Sara PETER Eichenberger, ræðismaður Íslands í Malasíu, og Mahmud B. Ismail, framkvæmda- stjóri LKIM, sem er Þróunarstofnun sjó- manna og heyrir undir sjávarútvegsráðuneyt- ið í Malasíu, voru á Ís- landi í liðinni viku til að undirbúa komu sjávar- útvegsráðherra Malas- íu til landsins um næstu mánaðamót og ræða möguleika á fram- leiðslu íslenskra fyrir- tækja í Malasíu. Eichenberger segir að tveggja ára samstarf Íslands og Malasíu í sjávarútvegsmálum hafi vakið sérstakan áhuga sjávarútvegs- ráðherra Malasíu. Markmiðið hjá ráðherranum sé að auka fiskveiðar og -eldi um 50% til ársins 2005. Það þýði að veiðar og eldi skili 1,8 millj- ónum tonna í stað 1,2 milljónum tonna eins og nú er. Gert sé ráð fyrir að 60% aukningarinnar verði vegna fiskeldis, einkum á beitarfiski (til- apiu) og rækju. Þegar samið við tvö fyrirtæki Eichenberger og Ismail hittu full- trúa nokkurra íslenskra fyrirtækja og ræddu við þá um mögulegt sam- starf í Malasíu. „Möguleikarnir í sjávarútvegi eru margir,“ segir Eic- henberger. „Við höfum rætt um veiðafæra- þjónustu og veiðafæra- gerð, bátasmíðar, ís- framleiðslu og fleira og erum mjög ánægðir með árangurinn. Út- flutningsráð Íslands og Þorgeir Pálsson hjá Icecom skipulögðu fundina og fram- kvæmdin var í alla staði mjög góð. Við höf- um náð samkomulagi við tvö fyrirtæki um helstu þætti og erum í viðræðum við fulltrúa annarra.“ Rætt hefur verið um að Vaki-DNG framleiði sjálfvirkt línuveiðikerfi í Malasíu og Icedan troll en auk þess eru bundnar vonir til þess að Ískerfi framleiði þar kæliís, Trefjar smíði trefjaplastbáta og SÍF komi á stofn framleiðslufyrirtæki í Malasíu. „Við áttum mjög góðan fund með Friðriki Pálssyni, stjórnarformanni SÍF, um málið sem snýr að SÍF, fundur með stjórnendum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins var mjög áhugaverður og Vigfús Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Stofnfisks, fræddi okkur um fiskeldi. Í raun var okkur alls staðar mjög vel tekið og árang- urinn er vel sýnilegur.“ Á meðal þess sem gengið var frá í liðinni viku er samvinna milli Malas- íu og Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna sem ætla að kosta nám tveggja nemenda við skólann á ári í fimm ár frá og með næsta ári. Íslendingar í ráðgjafar- fyrirtæki í Malasíu Eichenberg hefur stofnað ráð- gjafafyrirtæki varðandi sjávarút- vegsmál í Malasíu og fengið til liðs við sig sérfræðinga frá Íslandi, Kanda og Singapore. Hann segir að í viðræðum sínum við ráðamenn í Malasíu hafi hann komist að því að ekkert innlent ráðgjafafyrirtæki væri til á þessu sviði. Yfirvöld hefðu þurft að treysta nánast alfarið á ráð- gjöf erlendra fyrirtækja með til- heyrandi kostnaði en mun hag- kvæmara væri að eiga við fyrirtæki á staðnum sem sæi um alla hluti og fylgdi málum eftir. „Því safnaði ég saman nokkrum mönnum, þar á meðal Guðmundi M. Kristjánssyni, starfsmanni Útflutn- ingsráðs í Malasíu, og Þorgeiri Páls- syni, sérfræðingum í Malasíu, Kan- ada og Singapore til að taka á þessum hlutum. Við vonumst til með að starfa náið með sjávarútvegs- ráðuneytinu á ýmsum sviðum en af nógu er að taka. Í því sambandi má nefna meðferð aflans en vegna slæmrar meðferðar verður að henda 20 til 30% hans. Þetta er eitt helsta málið sem þarf að leysa en sérfræð- ingarnir til þess eru til á Íslandi, til dæmis hjá Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins, Ískerfum og SÍF.“ Góðir möguleikar og góð viðbrögð Peter Eichenberger segir ánægju- legt og uppbyggjandi hvað viðbrögð- in hafa verið góð á Íslandi. „Í Malas- íu bjóðast mjög góðir möguleikar fyrir íslensk fyrirtæki því Malasía er hluti af ASIAN, Association of South-East Asian Nations, og innan alls svæðisins eru um 450 milljónir íbúa. Fríverslunarsamningur er í gildi innan ASIAN og 2003 verða engir innflutningstollar á milli land- anna innan sambandsríkjanna. Það þýðir að íslensk fyrirtæki, sem verða með framleiðslu í Malasíu, njóta sömu réttinda og önnur fyrirtæki í viðkomandi ríkjum og ekki þarf að greiða 20 til 30% toll af vörum þeirra eins og þarf af vörum fyrirtækja ut- an ríkjanna. Þau geta því átt glæsta framtíð í Malasíu í framtíðinni.“ Eichenberger leggur áherslu á að ekki er um greiða að ræða heldur viðskipti sem eiga að skila viðkom- andi sínu og ríkisstjórn Malasíu leggi til fjármagn í uppbygginguna. „Aðal- atriðið er að fá samstarfsfyrirtæki sem koma með þekkingu og hafa áhuga á að byggja upp samvinnu til lengri tíma. Málið er komið vel á veg og gert er ráð fyrir að framleiðsla ís- lenskra fyrirtækja í Malasíu hefjist áður en árið er liðið.“ Mahmud B. Ismail Íslensk fyrirtæki í Malasíu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.