Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 3 . J Ú L Í 2 0 0 1 B L A Ð B Amerískir  ÍSLENSK HÖNNUN UNDIR MIÐNÆTURSÓL/2  STJÖRNUSPEKI: KUKL EÐA VÍSINDI?/3  AF TJÖLDUM SÖGUNNAR – BÍÓBÖRN/4  KYNLÍF OG KRISTNI/6  TÖFRANDI TÁNINGUR/7  AUÐLESIÐ EFNI/8  Þjóðdansa- félag Reykja- víkur mun hafa í nógu að snúast í næstu viku, en þá verður það í gestgjafa- hlutverkinu þegar norræna þjóðdansa- og þjóðlagamótið BARNLEK 2001 verður haldið í Grafarvogi. Mótið er fyrir börn á aldrinum 8-16 ára, og er von á yfir 2.200 þátttak- endum af öllum Norðurlöndunum og einnig frá Hjaltlandseyjum. Eitt af stefnumálum Þjóðdansa- félagsins er að varðveita íslenska þjóðbúninginn og hvetja til meiri notkunar hans meðal almennings. Félagið á nokkurt magn af íslenskum þjóðbúningum og rek- ur búningaleigu en þar hefur að vonum verið mikið að gera vegna undirbúnings fyrir þessa miklu hátíð. Helga Þór- arinsdóttir hefur séð um að reka búningaleiguna undanfarin tvö ár, og hún annast einnig viðhald á búningaeign félagsins. Helga segir að nú séu flestir barnabúningar hjá sér annað hvort komnir í útleigu, eða í lán til félagsmanna. Hún kveður félagið eiga búninga fyrir bæði drengi og stúlkur frá 4-5 ára aldri – „en svo eigum við auðvit- að búninga á fullorðið fólk af öll- um stærðum og þyngdarflokk- um“, segir Helga og hlær við. Hún telur að þó nokkuð sé um ís- lenska búninga í einkaeign, en því miður séu þeir alltof sjaldan notaðir. Til marks um almenna eign nefnir hún að eingöngu 23 kvenbúningar hafi farið í útleigu hjá sér fyrir peysufatadaga Kvennaskólans og Verslunarskól- ans síðastliðið vor, en þær sem báru íslenska búninginn þessa daga hafi þó skipt mörgum tug- um. Að sögn Helgu hefur það færst í vöxt að fermingarstúlkur skarti íslenskum búningi á ferming- ardaginn, og kyrtilbúningurinn sé oft leigður fyrir brúðkaup — og þá í hvítu, að sjálfsögðu. Margar gerðir íslenskra bún- inga eru í eigu Þjóð- dansafélags Reykjavík- ur, svo sem upphlutir, peysuföt, skautbún- ingar, kyrtlar og fald- búningar. En hvers konar bún- ingum munu íslensku drengirnir klæðast á mótinu í næstu viku? „Þeir munu að sjálfsögðu klæðast eldri gerð íslenska karlbúningsins – nýi karlbúningurinn er ekki fá- anlegur hjá okkur,“ segir Helga. Fríður flokkur fiðluleikara María Einarsdóttir er tónlistar- kennari við Kópavogsskóla, en hún ber hitann og þungann af undirbúningi fyrir söng- og tón- listarflutning á Barnlek. „Þetta hefur verið heilmikil vinna“, seg- ir hún, en þess má geta að allir sem undirbúa mótið gefa vinnu sína. María hefur meðal annars unnið að því að taka saman nótur og texta íslenskra þjóðlaga í hefti sem íslensku börnin munu fá. „Við ætlum síðan að miðla okkar þjóðlögum til hinna þátttakend- anna, og við fáum að kynnast þeirra tónlist“, segir María. Hún segir frá því að Wilma Young, tónlistarkennari hafi æft flokk ungra fiðluleikara sem muni spila fyrir dansi íslensku barnanna, auk þess sem íslenski fiðluflokk- urinn muni leiða fjöldaleik allra fiðluleikara sem verða á mótinu. „Þetta verður mikil hátíð“, segir María að lokum. Morgunblaðið/Billi Systkinin Elín Ásta Ólafsdóttir, 12 ára og Stefán Ólafur Ólafsson, 10 ára, eru meðal barnanna sem taka þátt í BARNLEK 2001. Þjóðbúningar til á börn frá fjögurra ára aldri &Hefðir börn búningar rh N o r r æ n t þ j ó ð d a n s a - o g þ j ó ð l a g a m ó t b a r n a í u n d i r b ú n i n g i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.