Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.07.2001, Blaðsíða 8
AUÐLESIÐ EFNI 8 B FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ LANDHELGISGÆSLAN færði fjögur norsk loðnuskip til hafnar í vikunni vegna meintra landhelgisbrota. Skipstjóra eins skipanna er gefið að sök að hafa að- eins gefið upp hluta aflans. Dómsátt náðist í því máli á þriðjudaginn og var útgerð skipsins gert að greiða 1,8 milljónir króna í sekt. Aflinn var gerður upptækur. Hin skipin voru talin vera að ólöglegum veiðum innan íslensku landhelginnar. Norð- mennirnir sögðust hins vegar hafa verið innan grænlensku landhelginnar. Ákært verður í málum þeirra. Norsk skip tekin SAMNINGAR hafa náðst í kjaradeilu þroskaþjálfa og ríkisins. Samkvæmt samningnum hækka byrj- unarlaun úr 100 þúsund krónum í 143 þúsund. Þessa dagana er verið að kynna þroskaþjálfum samninginn. Verkfallinu var frestað til 1. ágúst. Þroska- þjálfar semja FUNDIN hefur verið upp tækni sem gerir foreldrum kleift að velja kyn barna sinna. Tæknin hefur verið notuð til að búa til 284 fóst- urvísa með glasafrjóvgun. Til- gangurinn er að koma í veg fyrir að börn fæðist með galla sem erfast í kven- eða karl- legg. Ekkert barnanna sem fæðst hafa með hjálp þess- arar tækni hafa haft slíka galla. Tæknin hefur hins veg- ar vakið upp siðferðilegar spurningar. Dreng eða stúlku? NÚ stendur yfir á Siglufirði Þjóðlagahátíð. Á hátíðinni er boðið upp á margs konar námskeið í gömlum list- greinum, svo sem mið- aldadönsum, rímnakveðskap og jurtalitun. Þjóðlögin skipa heiðurssessinn og eru ýmis námskeið helguð þeim, auk þess sem mikið er um söng og hljóðfæraleik. Þjóðleg hátíð MIKILL meirihluti hluthafa í Lyfjaverslun Íslands vill ógilda samning um kaup á Frumafli hf. Þetta var nið- urstaða hluthafafundar sem haldinn var á þriðjudaginn. Mætt var á fundinn fyrir 97,81% atkvæða. Skiptar skoðanir voru í stjórn félagsins varðandi kaupin. Þegar niðurstaða hluthafafundar lá fyrir sagði stjórnin öll af sér og kosin var ný stjórn. Formaður henn- ar er Margeir Pétursson. Óskað hafði verið eftir lög- banni á að seljandinn, Jó- hann Óli Guðmundsson, mætti nýta sér hlutabréf sem hann fékk sem greiðslu fyrir Frumafl. Hæstiréttur samþykkti lögbannið skömmu fyrir hluthafafund- inn. Margeir segir niðurstöðu Hæstaréttar skýra og vilji hluthafa sé líka skýr. Í lok hluthafafundarins sagði hann: „Ég lít nú svo á að það hafi orðið vatnaskil í þessum deilumálum sem hafa skekið félagið.“ Kaupum á Frumafli hafnað Morgunblaðið/Ásdís Nær allir hluthafar Lyfjaverslunar mættu á fundinn eða veittu öðrum umboð til að fara með atkvæði sitt. Hluthafafundur í Lyfjaverslun Íslands HÖRÐ deila hefur komið upp í Austurríki um hina heims- frægu Sacher-tertu. Hótel Sacher í Vínarborg hefur boð- ið upp á þessa tertu frá árinu 1832 og selur hana nú um allan heim. Hótelið hefur hins vegar fengið keppinaut. Ann- að fyrirtæki er farið að fram- leiða Sachertertur og notar við það nýja uppskrift. For- ráðamenn hótelsins hóta málsókn ef framleiðslunni verði ekki hætt. Tertu- stríð Kom, sló og sigraði Íþróttir KRÓATÍUMAÐURINN Goran Ivanisevic sigraði óvænt í Wimbledon-mótinu í tennis. Vegna meiðsla hafði Ivanisevic ekki tekist að vinna sér þátttökurétt á mótinu en var þrátt fyrir það boðið að taka þátt í mótinu. Hann hefur þrisvar áður leikið til úrslita á Wimbledon og náð öðru sætinu en aldrei því fyrsta – fyrr en nú. Gleði hans var því að vonum mikil. UNDANFARIN ár hefur kærum vegna skattsvika fjölgað veru- lega. Á árinu 2000 voru kær- urnar 24 talsins en á tíma- bilinu 1987–1991 voru þær samtals 10. Í fyrra var ákært vegna 15 skattsvikamála. Fjölgunina má rekja til auk- innar þekkingar og færni þeirra starfsmanna sem vinna við rannsókn skatt- svikamála. Kærum vegna skattsvika fjölgar NÍU ný skip bættust í fiski- skipaflota landsmanna í vik- unni. Skipin voru smíðuð í Kína og komu þau til landsins með þýska flutningaskipinu Wiebke. Siglingin frá Kína tók alls 80 daga. Þetta eru tæplega 100 tonna skip og verða þau gerð út frá ýmsum stöðum á land- inu. Sex skipanna eru útbúin til dragnótaveiða, tvö til veiða með fiskitroll og eitt til neta- og línuveiða. Hvert skip kost- ar innan við 100 milljónir króna. Gunnar Jóhannsson hafði eftirlit með smíði skip- anna í Kína. Hann segir að verkið hafi gengið mjög vel og handbragðið allt sé til fyrir- myndar. Níu fiski- skip á einu bretti Morgunblaðið/Sigurður Jökull Níu skip um borð í einu. Á fyrsta degi nauta- hlaupsins í Pamp- loma á Spáni urðu sex hlauparar fyrir hornum nautanna og slösuðust alvarlega. Mörg hundruð manns tóku þátt í hlaupinu undan sex stæðileg- um nautum. Hlaupið tók aðeins fimm mín- útur. Nautin eiga aðeins eina leið færa á þröngum götum Pamplona. Hættuleg- ar mínútur Netfang: auefni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.