Morgunblaðið - 13.07.2001, Qupperneq 2
DAGLEGT LÍF
2 B FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
V
ESTMANNAEYJAR
voru svið tískusýningar-
innar Midnight Sun
Fashion Show þetta ár-
ið. Á sýningunni, sem
fram fór um síðustu helgi, var um 40
fatahönnuðum frá ýmsum löndum
boðið að sýna en auk þeirra kom
hingað til lands af þessu tilefni stór
hópur fjölmiðlafólks frá þekktum
blöðum, tímaritum og sjónvarps-
stöðvum, s.s. Vogue, MTV og Fash-
ion Television.
Midnight Sun-tískusýningin var
haldin í fyrsta sinn á Íslandi í fyrra-
sumar, þá á Vatnajökli innan um
tignarlega ísdrangana. Í ár var það
hins vegar andstæða íssins, eldurinn,
sem m.a. einkenndi þá umgjörð sem
sýningin fékk, auk þess sem hafið lék
þar stórt hlutverk.
Það var fyrirsætuskrifstofan Ice-
landic Models með Kolbrúnu Aðal-
steinsdóttur í broddi fylkingar sem
stóð að sýningunni.
Fjórir íslenskir
hönnuðir
Meðal þeirra sem sýndu hönnun
sína voru fjórar íslenskar konur, þær
Anna Rut Steinsson og Helga Sólrún
Sigurbjörnsdóttir frá Skraddaran-
um-Bespoke, Bergþóra Guðnadóttir
frá Aurum og Selma Ragnarsdóttir
sem hannar undir merkinu Zelma.
Auk þeirra sýndu hönnuðir frá tíu
öðrum löndum.
Allur hópurinn sem að
sýningunni kom fór til Vest-
mannaeyja á föstudeginum
þar sem þeim var boðið að
horfa á kvikmynd um
Heimaeyjargosið. Þá var
viðeigandi að bjóða fólkinu
að snæða kvöldverð í sjálf-
um eldgígnum, en þar hafði
Grímur Gíslason, mat-
reiðslumaður í Höllinni,
undirbúið smáréttahlaðborð
með mjög þjóðlegu sniði. Að
sögn íslensku hönnuðanna
var vel látið af matnum og
óvenjulegt umhverfið lofað í
bak og fyrir.
Veðrið lék við gestina
þetta kvöldið og leit út
fyrir að svo myndi verða
áfram. En allt kom fyrir ekki því á
laugardeginum var komin rigning og
stefndi í að halda þyrfti sýninguna
innandyra þar sem margir hönnuð-
irnir ætluðu að sýna föt sem ekki
voru sniðin að íslensku veðurfari. En
eins og hendi væri veifað birti til og
rétt eftir miðnættið stigu fyrstu sýn-
ingarstúlkurnar fram í blíðskapar-
veðri á Skansinum.
Dagurinn hafði byrjað á mátun þar
sem hönnuðir fengu að velja sér sýn-
ingarstúlkur er flestar voru ítalskar.
Það voru hins vegar stæðilegir Eyja-
peyjar sem á síðustu stundu tóku að
sér að sýna karlfatnað fyrir nokkra
hönnuði.
Sjóræningjar
stíga á land
Vestmannaeyingurinn Selma
Ragnarsdóttir er með vinnustofu í
Eyjum og hannar undir merkinu
Zelma. Hún útskrifaðist sem
kjólameistari og klæðskeri fyrir
nokkrum árum og hefur síðan þá
fengist við ýmislegt tengt iðninni.
Mörg undanfarin ár hefur hún t.d.
komið að keppninni um Sumarstúlku
Vestmannaeyja og séð þar um
klæðnað þátttakenda.
Á Midnight Sun-tísku-
sýningunni sýndi Selma
línu sem hún kallar NOW.
Fötin eru aðallega úr galla-
efni sem hún notar bæði á
réttunni og röngunni og í
hvers kyns tegundir klæða,
jafnt pils sem toppa. „Galla-
efni er frekar hefðbundið
en sníðagerðin er óhefð-
bundin og fötin því svolítið
sérstök,“ útskýrir hún.
Hönnun Selmu er ekki
endilega árstíðabundin.
„Ég skipti frekar um efni
eftir árstíðum en læt sniðin
halda sér,“ útskýrir hún. „Í
NOW-línunni eru eingöngu
kvenmannsföt sem sýna út-
línur líkamans vel.“
Allar sýningarstúlkurnar
á sýningu Selmu höfðu lepp
fyrir öðru auga og segir hún það vera
tilvísun í Tyrkjaránið svokallaða árið
1627. „Sýningarstúlkurnar voru
nokkurs konar sjóræningjar að stíga
á land í Eyjum,“ segir hún hlæjandi.
Selma hefur ekki áður tekið þátt í
stórri tískusýningu sem
þessari, enda sýningin ein
sú stærsta sem sett hefur
verið upp hér á landi.
„Það var mjög góð
reynsla að taka þátt og
bæði skemmtilegt og lær-
dómsríkt að fara í gegnum
þetta ferli ásamt öðrum
hönnuðum.“
Selma selur föt sín í
verslunum í Vestmannaeyj-
um og Reykjavík, auk þess
sem hún hefur verið með
sérsaum. Um þessar mund-
ir á hún í samningaviðræð-
um við stóra verslun á höf-
uðborgarsvæðinu um sölu á
hönnun sinni sem gæti orðið til þess
að fötin yrðu framleidd í meira magni
en hingað til.
Íslenskir karlmenn kynntir
Anna Rut og Helga selja fatnað
undir vörumerkinu Skraddarinn-
Bespoke Rvk í bandarískum verslun-
um en stefna að því að koma þeim á
framfæri í Evrópu í haust. Stefnt er á
þátttöku á vöru- og sölusýningu í
París þar sem sumarlínan 2002 verð-
ur sýnd og seld. Fleiri íslenskir hönn-
uðir stefna á sömu sýningu sem mun
vera afrakstur verkefnis sem Út-
flutningsráð styður og miðar að
kynningu á íslenskri fatahönnun er-
lendis.
„Þessa dagana erum við svo að
vinna að sumarlínu fyrir sumarið
2002,“ segir Helga. „Við munum
byrja á að selja hana í Bandaríkjun-
um í haust, auk þess sem hún verður
kynnt á tískuviku í París í október.“
Hönnun
nýju sumarlín-
unnar er í svip-
uðum stíl og
Skraddarinn
hefur hingað
til verið þekkt-
ur fyrir, þ.e. í
anda naum-
hyggjustefn-
unnar en þó
með skemmti-
legum smáat-
riðum, að sögn
Önnu Rutar.
„Okkur þykir
hafa tekist
mjög vel til og
erum mjög
spenntar að
hefja sölu.“
Á Midnight
Sun-tískusýn-
ingunni sýndu
Helga og
Anna Rut
hins vegar vetrarlínuna en í henni er
m.a. að finna fiskibeinsmunstraðar
buxur, pils úr ullarefni og efri parta í
svörtu og hvítu. „Hönnunin er sem
fyrr hreinar línur og klæðilegur fatn-
aður,“ útskýrir Anna Rut. „Margir
hönnuðanna voru með sýningarfatn-
að en við ákváðum að sýna það sem
við erum að selja.“
Þá sýndu Skraddararnir í fyrsta
sinn skó sem þær hönnuðu. „Rauðu
skórnir okkar vöktu mikla athygli,“
segir Helga og dregur síðan athygli
blaðamanns að bolnum sem hún
klæðist. Sá er
hvítur en yfir
brjóstið eru
áprentaðar
myndir af ís-
lenskum karl-
mönnum. Bol-
urinn er hluti af
sumarlínu
næsta árs og
var sýndur á
sýningunni í
Eyjum. „Bolur-
inn er kynning
á íslenskum
karlmönnum
sem er löngu
tímabært að
kynna erlend-
is,“ segir Helga
brosandi. „Okkur fannst það
skemmtileg hugmynd þar sem búið
er að kynna íslenskt kvenfólk svo
rækilega í gegnum árin.“
Ævintýraprinsessur
Bergþóra Guðnadóttir er fata- og
textílhönnuður að mennt og hefur
hingað til selt vöru sína í sölugallerí-
inu Aurum á Laugavegi. Hún er
þessa dagana að undirbúa línu sem
hún stefnir á að kynna á tískuviku í
París, þeirri sömu og Skraddarinn
mun sýna á. Bergþóra vinnur mikið
með íslenska ull sem hún m.a. þæfir
og bróderar í og kveðst hafa fengið
mjög jákvæð viðbrögð erlendis, m.a.
við peysum sem hún vinnur á þennan
hátt.
Á Midnight Sun-tískusýningunni
fór hún þá leið að vinna flíkur sér-
staklega fyrir sýninguna en ekki sýna
þá línu sem hún hefur hannað sem
sölulínu. „Ég bjó til fimm ævintýra-
prinsessur og hafði í huga mína eigin
bernskudrauma við hönnunina, þeg-
Skraddarinn
sýndi vetrarlín-
una fyrir veturinn
2001–2002.
Ævintýrabragur
var á sýningu
Bergþóru.
Selma hannaði
línuna NOW
þar sem galla-
efni fær að
njóta sín á
ýmsan hátt.
Alþjóðleg tískusýning undir miðnætursól í Vestmannaeyjum
Bergþóra Guðnadóttir
rekur sölugalleríið
Aurum á Laugavegi.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Ljósmynd/Ómar
Selma Ragn-
arsdóttir hannar
undir merkinu
Zelma og er bú-
sett í Eyjum.
Ljósmynd/Ómar
Ljósmynd/Ómar
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Ljósmynd/Ómar
Anna Rut Stein-
arsson og Helga Sól-
rún Sigurbjörnsdóttir
hanna undir merkj-
um Skraddarans.
Á miðnætti á laug-
ardag gekk sýning-
arfólk um Skansinn í
Vestmannaeyjum
klætt fötum hönnuða
frá ýmsum löndum.
Sunna Ósk Loga-
dóttir ræddi við fjór-
ar íslenskar konur
um framlag þeirra.
Hátíska
í hrauninu