Morgunblaðið - 13.07.2001, Síða 6
DAGLEGT LÍF
6 B FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HARRY Potter var ungur aðárum er hann uppgötvaðigaldrahæfileika sína sem
hann notar nú óspart og frægt er
orðið. Sömu sögu er að segja um
töframanninn Lalla, réttu nafni
Lárus Guðjónsson. Hann hefur þó
aldrei gengið í Hogwarts-skóla
galdra og seiða heldur er hann í
Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi og
hefur því lært flest sín töfrabrögð
upp á eigin spýtur.
„Ég var sjö ára þegar áhugi
minn á töfrabrögðum kviknaði, svo
ég hef verið að galdra hálfa æv-
ina,“ segir Lalli brosandi en hann
varð nýverið fjórtán ára. „Bróðir
minn átti galdrakassa og seinna
gaf pabbi mér líka lítinn kassa sem
ég á reyndar enn þá. Þannig byrj-
aði þetta,“ rifjar hann upp.
Fjölskylda Lalla hefur allar göt-
ur síðan fengið að njóta hæfileika
hans á ættarmótum og í öðrum
fjölskylduboðum með góð-
um undirtektum. Enda er
ekkert skyldmenni Lalla
gætt galdramætti, svo rétt
eins og Harry Potter er
Lalli ekki af fornri galdra-
ætt heldur úr mugga-
fjölskyldu!
Pétur pókus í
uppáhaldi
Eftirlætistöframaður
Lalla er hinn íslenski Pét-
ur pókus. Lalli setti sig í
samband við goðið á dög-
unum og saman hafa þeir
galdrað ýmislegt.
„Pétur hefur aðstoðað
mig heilmikið og kennt
mér mjög margt. Svo hef
ég líka fengið að koma
fram með honum. Mér hef-
ur farið mikið fram síðan
ég kynntist honum,“ segir
Lalli.
Margir töframenn sér-
hæfa sig í ákveðinni teg-
und galdra en Lalli fer um
víðan völl í galdralistinni.
Hann hefur aðallega verið
með klúta og sjónhverf-
ingar þeim tengdar auk
spilagaldra en segist aftur
á móti lítið hafa notað
hugarorkuna til að brjóta
skeiðar og lyfta hlutum
frá jörðu.
Erfiðasta atriðið sem
Lalli sýnir er hins vegar
með boltum. „Það er nú
Töfrandi
Galdrastrákurinn Harry Potter hefur eign-
ast verðugan keppinaut um athygli yngstu
kynslóðarinnar í hinum unga íslenska töfra-
manni Lalla. Sunna Ósk Logadóttir kíkti
inn í óvenjulegt unglingaherbergi þar
sem pípuhatta, spilastokka, klúta og tusku-
kanínur er m.a. að finna.
Lárus Guðjónsson er töframaðurinn Lalli. Hann hefur fengist við töfrabrögð
hálfa ævina að eigin sögn þó enn sé hann ungur að árum.
Morgunblaðið/Jim Smart
táningur
Kynlíf
Ef mannssálin er fangi lík-
amans og bíður þess
óþreyjufull að losna úr viðj-
um hans hljóta holdlegar
nautnir að leiða til glötunar.
Eða hvað? Haukur Már
Helgason ræddi við prest og
guðfræðinema um afstöðu
kristinna manna til kynlífs.
SR. BJARNI Karlsson,sóknarprestur í Laug-arneskirkju, tekur
undir með sagnfræðingnum
Eric Hobsbawm sem nefndi
20. öldina öld öfganna: „Ég
hefði ekki viljað fæðast á
neinum öðrum stað eða tíma
í mannkynssögunni. Það er
gríðarlega spennandi að lifa
núna, í þessu hraða, ærandi,
skapandi en um leið gráð-
uga þjóðfélagi.
En menning okkar er um
svo margt fróunarmenning.
Fróunarafstaðan er veik-
leiki í menningunni; sú af-
staða að hamingjan sé fólgin
í því að hafa löngun og vera
fær um að uppfylla hana
strax. Auglýsingar ganga
mikið út á þetta. Ef þú ert
svangur færðu þér skyndi-
bita, ef þú ert dofinn ferðu í
bíó og ef þú hefur kynlöng-
un eru aðilar tilbúnir að
selja þér eitthvert kynferð-
islegt efni sem er í eðli sínu
klám. Kynlíf utan röklegs
samhengis síns, án ástar og
ábyrgðar, það er klám,“ seg-
ir sr. Bjarni.
„Þegar hjón eru gefin
saman eru þau spurð
þriggja spurninga í einni:
Vilt þú, með Guðs hjálp,
reynast maka þínum trúr,
elska hann og virða? Þau ját-
ast þessu og eru þá, en ekki
fyrr, gefin í hjónaband.“
Hjónaband er vopnlaus
samskipti
„Trúmennskan kemur
fyrst því hún er kjölfesta
þessa skapandi samfélags,
að vera hjón. Trúmennskan
er ekki bara á kynferðissvið-
inu heldur er vísað til miklu
dýpri veruleika, það er verið
að spyrja: Ætlið þið í alvöru
að vera bestu vinir, sálu-
félagar? Þess vegna er
hjónabandið heilagt, innan
veggja heimilisins gilda ekki
lögmál lífsbaráttunnar.
Lögmál veraldarinnar er
að lífið er fengur, þar fær
maður einkunnir og laun
miðað við misjafna verð-
leika. Inni í helgidómnum
ríkir lögmál kærleikans sem
segir: Nei, lífið er gjöf. Þar
er lífið ekki eitthvað sem þú
færð þér, heldur eitthvað
sem þú þiggur.
Þegar maður kemur heim
til sín og hengir af sér frakk-
ann er maður að hengja af
sér öll vopn og allar grímur
Sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur
Ætlið þið í alvöru
að vera bestu vinir?
Ó, að brjóst þín mættu líkjast berjum vínviðarins
og ilmurinn úr nefi þínu eplum,
og gómur þinn góðu víni,
sem unnusta mínum rennur liðugt niður,
líðandi yfir varir og tennur.
Ég heyri unnusta mínum,
og til mín er löngun hans.
Kom, unnusti minn,
við skulum fara út á víðan vang,
hafast við meðal kypurblómanna.
Við skulum fara snemma upp í víngarðana,
sjá, hvort vínviðurinn er farinn að bruma,
hvort blómin eru farin að ljúkast upp,
hvort granateplatrén eru farin að blómgast.
Þar vil ég gefa þér ást mína.
Ástareplin anga
og yfir dyrum okkar
eru alls konar dýrir ávextir,
nýir og gamlir,
unnusti minn,
ég hefi geymt þér þá.
Ástareplin anga
Ljóðaljóðin 7:8–13
Ljóðaljóðin eru eitt 66 rita Biblíunnar, kveðskapur kenndur við Salómon konung.
kristni
&
„Ef við viljum greina klám frá erótík spyrjum við
einfaldlega: Er þessi umfjöllun borin uppi af ást
og ábyrgð og virðingu fyrir manneskjum?“
Morgunblaðið/Golli