Morgunblaðið - 09.08.2001, Side 3
ÍSLANDSMÓTIÐ Í GOLFI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 B 3
Gullmót Hansínu Jens
Opið kvennamót verður
haldið sunnudaginn 12.
ágúst að Kiðjabergi.
Mótið verður punktamót hæst gefið 28.
Verðlaun eru glæsilegir skartgripir frá
Gullsmiðju Hansínu Jens, auk annara
verðlauna.
• 1.-5. Verðlaun með forgjöf
• Nándarverðlaun á 3. (12) braut og 7. (16) braut.
• Lengsta teighögg (á braut) á 2. og 11. braut.
Einnig verður dregið úr skorkortum í mótslok allra
viðstaddra keppenda. - Keppnisgjald 2.000 kr.
Skráning í skála s. 486 4495.
ALLS eru 150 keppendur skráðir
til leiks á Íslandsmótinu og hæsta
forgjöf kylfings í karlaflokki verður
líklegast um 6,0. Keppendur í karla-
flokki eru 131 og eru 21 keppandi nú
þegar á biðlista ef einhver forföll
verða en í kvennaflokki eru 19 kepp-
endur og hæsta forgjöf þeirra er 17,6.
ÞAÐ voru konurnar sem hófu leik í
dag en í fyrsta ráshóp sem fór af stað
kl. 7.30 voru þær Ragnhildur Sigurð-
ardóttir, GR, og Tinna Jó-
hannsdóttir, GK.
TVÍBURASYSTIR Íslandsmeist-
arans í karlaflokki, Anna Jódís Sig-
urbergsdóttir, er skráð til leiks en
bróðir hennar Björgvin hefur í þrí-
gang sigrað á mótinu.
BJÖRGVIN Sigurbergsson, GK,
er með lægstu grunnforgjöf allra
keppenda (+2,5). Örn Ævar Hjart-
arson, GS, og Ólafur Már Sigurðs-
son, GK, eru þar næstir með (+1,6)
en aðrir sem eru með + forgjöf eru
Haraldur Heimisson, GR, (+0,4),
Kristinn Árnason, GR, (+0,3) og
Helgi Birkir Þórisson, GS, (+0,1).
RAGNHILDUR Sigurðardóttir,
GR, er með lægstu forgjöf keppenda
í kvennaflokki en grunnforgjöf henn-
ar er 0,9. Kristín Elsa Erlendsdóttir,
GK, og Ólöf María Jónsdóttir koma
þar næstar en Kristín er með 1,5 og
Ólöf María með 1,9.
EKKERT verður af því að atvinnu-
kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórs-
son leiki á Íslandsmótinu eins og
upphaflega stóð til. Birgir Leifur
ákvað að einbeita sér að Chall-
enge-mótaröðinni, en þar hefur hon-
um ekki gengið sem skyldi. Birgir
Leifur varð Íslandsmeistari í Vest-
mannaeyjum árið 1996.
Í viðtali við tímaritið Golf á Íslandi
segir Margeir Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri GR, að stefnt verði að
því að flatirnar verði slegnar hraðar
meðan á Íslandsmótinu stendur.
MARGEIR gerir ráð fyrir því að
flatirnar verði slegnar tvisvar til
þrisvar sinnum á dag og eru sláttu-
vélarnar stilltar þannig að grasið
verði aðeins 3–4 millimetra hátt.
Brautirnar verða slegnar í 14 mm,
teigar í 10 mm, kargi við brautar-
mörk í 35 mm og annar kargi verður
allt að 100 mm hár.
VÖLLURINN í Grafarholti hefur
tekið nokkrum breytingum og hafa
verið gerðar nýjar flatir á 2., 6., 10. og
16. braut. Ekki var farið út í það að
gera kylfingum erfiðara fyrir með því
að mjókka brautirnar á vellinum, en
karginn hefur fengið að vaxa aðeins
að undanförnu og verður hærri en
venjulega.
TRYGGVI Pétursson, GR, á vall-
armetið í Grafarholti en Tryggvi lék
á 68 höggum í fyrra, sem er þremur
höggum undir pari. Úlfar Jónsson,
GK, hefur í tvígang leikið á 68 högg-
um en það var áður en breytingarnar
voru gerðar á vellinum. Kristinn
Árnason, GR, lék nýlega á 69 högg-
um og var nálægt því að jafna vall-
armetið.
FÓLK
Íslandsmeistarar síðasta árs,Keilisfólkið Björgvin Sigur-
bergsson og Kristín Elsa Erlends-
dóttir, verða bæði
meðal keppenda og
ætla að sjálfsögðu
að gera allt sem í
þeirra valdi stendur
til að verja titla sína. Annars eru
19 konur skráðar til leiks að þessu
sinni og má búast við nokkuð
harðri og jafnri keppni á milli
Kristínar Elsu, GR-inganna Ragn-
hildar Sigurðardóttur og Herborg-
ar Arnarsdóttur, Ólafar Maríu
Jónsdóttur úr Keili og þær Katrín
Dögg Hilmarsdóttir og Nína Björk
Geirsdóttir úr Kili gætu hæglega
blandað sér í þá baráttu.
Jöfn og spennandi keppni
Búast má við jafnri og spenn-
andi keppni í karlaflokki einnig
enda margir sem hafa alla burði til
að sigra þótt meistarinn frá því í
fyrra, Björgvin Sigurbergsson,
verði að teljast sigurstranglegast-
ur enda hefur hann leikið vel í
sumar og gerðist nýverið atvinnu-
maður til að geta einbeitt sér enn
betur að íþróttinni en tíu atvinnu-
menn verða með að þessu sinni.
Fleiri en Björgvin má nefna og
allir hafa hæfileikana til að geta
sigrað en spurningin er þegar
komið er á Íslands-
mót, sem stendur í
fjóra daga, hvort
mönnum tekst að
halda út. Haraldur
Heimisson úr GR er
nýkrýndur meistari
klúbbsins og að auki
Íslandsmeistari í holukeppni. Har-
aldur er á heimavelli og hann hef-
ur leikið vel í sumar og er því til
alls líklegur. Örn Ævar Hjartarson
úr GS hefur ekki enn náð alla leið
en allir vita hvað piltur getur þeg-
ar sá gállinn er á honum og verði
hann í stuði þurfa aðrir að leika
sérlega vel til að standast honum
snúning. Ólaf Má Sigurðsson úr
Keili er einnig rétt að nefna, einn-
ig Ottó Sigurðsson úr GKG og GR-
ingurinn úr Vestmannaeyjum, Þor-
steinn Hallgrímsson, getur spilað
mjög vel þegar þannig stendur á.
Þá eru ónefndir tveir sigursæl-
ustu kylfingar Íslands, Björgvin
Þorsteinsson úr GA og Úlfar Jóns-
son úr Keili, en þeir hafa hvor um
sig orðið sex sinnum Íslandsmeist-
arar. Sá síðarnefndi minnti ræki-
lega á sig á dögunum þegar hann
sigraði á stigamóti í Hafnarfirði og
hann á góðar minningar úr Graf-
arholtinu en þar varð hann Ís-
landsmeistari í sjötta sinn árið
1992.
Björgvin Þorsteinsson vann þrjá
af sex Íslandsmeistaratitlum í
Grafarholtinu þannig að hann er
öllum hnútum kunnugur þar.
Annar Akureyringur er einnig
til alls líklegur enda hefur hann
tvívegis orðið Íslandsmeistari og
hefur leikið ágætlega í sumar. Hér
er átt við Sigurpál Geir Sveinsson
sem varð meistari 1994 og 1998.
Morgunblaðið/Friðþjófur
Haraldur Heimisson leikur á heimavelli.
Atvinnu-
menn með
LANDSMÓTIÐ í golfi, sem nú
heitir Íslandsmót í höggleik,
hefst á Grafarholtsvelli í
Reykjavík í dag. Mótið er með
breyttu sniði frá því sem verið
hefur undanfarna áratugi þar
sem nú mega atvinnumenn vera
með í fyrsta sinn og flokkaskipt-
ing hefur verið lögð niður. Að-
eins bestu kylfingar landsins
hafa rétt til að keppa á mótinu.
Keppt er í opnum flokki karla og
kvenna og þeir karlar sem hafa
10,4 eða lægri forgjöf mega
keppa og hjá konunum er miðað
við 17,4 í forgjöf. Hámarksfjöldi
keppenda er 150.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Morgunblaðið/Golli
Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR býr sig undir að pútta.
TÓLF fyrrum Íslandsmeistarar í
golfi verða meðal keppenda á
mótinu sem hefst í dag, átta karl-
ar og fjórar konur.
Björgvin Þorsteinsson úr GA
og Úlfar Jónsson úr Keili hafa
hvor um sig sigrað sex sinnum.
Björgvin Sigurbergsson hefur
sigrað þrívegis eins og Sigurður
Pétursson golfkennari sem verð-
ur með. Sigurpáll Geir Sveinsson
frá Akureyri hefur tvívegis orðið
Íslandsmeistari og þrír kepp-
endur hafa einu sinni orðið Ís-
landsmeistarar, Þorsteinn Hall-
grímsson úr GR, Sigurður
Sigurðsson, golfkennari úr GS, en
hann sigraði í Grafarholtinu árið
1988, og Þórður Emil Ólafsson
frá Akranesi. Þessir átta meist-
arar hafa því samtals orðið 23
sinnum Íslandsmeistarar.
Hjá konunum eru Keilisdöm-
urnar Ólöf María Jónsdóttir, sem
hefur sigrað tvívegis, Kristín
Elsa Erlendsdóttir og Þórdís
Geirsdóttir sem hafa sigrað einu
sinni hvor. Ragnhildur sigurð-
ardóttir úr GR hefur sigrað tví-
vegis og þurfti að bíða lengi eftir
síðari titlinum því hún vann 1985
og svo aftur 1998.
Stúlkurnar fjórar hafa því sigr-
að sex sinnum.
Tólf meistarar með
KYLFINGAR, sem tóku þátt í móti
hjá GR á þriðjudaginn, spáðu fyrir
um hverjir yrðu Íslandsmeistarar í
golfi og varð niðurstaðan sú að
Björgvin Sigurbergsson úr Keili og
Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR
urðu þar efst á blaði.
Hver keppandi fékk miða þar sem
hann raðaði í þrjú sæti og fékk sá í
fyrsta sæti þrjú stig, næsti 2 og sá í
þriðja eitt. Síðan var lagt saman og
þá varð útkoman sú að Björgvin fékk
64 stig, Haraldur Heimisson, GR, 36,
Örn Ævar Hjartarson, GS, 18, Þor-
steinn Hallgrímsson, GR, 11 og Ólaf-
ur Már Sigurðsson, GK, 10 en aðrir
minna. Átta kylfingar til viðbótar
fengu stig.
Hjá konunum fékk Ragnhildur 73
stig, Ólöf María Jónsdóttir úr Keili
34, Herborg Arnarsdóttir, GR, 33 og
Kristín Elsa Erlendsdóttir úr Keili 22.
Athygli vekur að meistaranum er
ekki spáð betra gengi en fjórða sæti
og einnig vakti athygli að Ólöf María
var 11 sinnum tilnefnd í annað sætið
og 12 sinnum í það þriðja, en aldrei í
fyrsta.
Björgvini og Ragnhildi spáð sigri