Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 12
12 D LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Svip- myndir Háskóla Íslands er akademía og þar er lagt stund á rannsóknir og kennslu. Þar starfar mikill fjöldi öflugra vísindamann. Meistara- og doktorsnám hefur eflst en í því birtast þrjú meg- inmarkmið Háskólans um að efla rannsóknir, bæta menntun og auka þjónustuna. Hér er gerð tilraun til að bregða ljósi á nokkra vísindamenn sem starfa innan HÍ. Flestir teljast þeir í yngri kantinum þótt margir séu yfir fertugt, en það tekur mörg ár að mennta sig til vísinda- starfa. Valdir voru vísindamenn úr flestum deildum Háskólans og úr ýmsum greinum. Grunn- rannsóknir eru mjög þýðingar- miklar fyrir íslenskt samfélag. Ég er að leggja lokahönd áverkefni sem ég hef unniðað í nokkur ár, en það er doktorsritgerð um fagurfræði í skáldskap Guðbergs Bergssonar. Verkefnið er umfangsmikið. Guðbergur er lykilhöfundur í ís- lenskum samtímaskáldskap og raunar einn af mikilhæfustu listamönnum íslenskrar menn- ingarsögu á síðustu áratugum. Hann er líka mikilhæfur evr- ópskur höfundur. Í skáldskap hans fléttast þannig veruleiki ís- lenskrar menningar og sam- félags saman við evrópska menningarsögu og frásagnar- hefð, atriði sem tekið er mark- visst mið af í doktorsritgerð minni. Í fyrri hluta verkefnisins byggist meginhugmyndin á hugmyndasögulegum grunni um samband trúar, heim- speki og skáldskapar í skapandi samræðu við samtíma- túlkanir og fræðikenningar þar að lútandi. Þar á sér með öðrum orðum stað könnun á höfundarverki Guðbergs í spurn um einstaklingsbundna fagurfræði nútímahöfund- ar sem felur í sér hugmyndasögulegan arf. Þar er reynt að svara spurningum eins og: Hvert er samband tilfinninga, trúar og fegurðar í skáldskap Guðbergs? Getur fagurfræði nútímaskáldskapar falið í sér hugsun um vanda ábyrgðar og ástar? Er hægt að tala um siðfræði fagurfræðinnar á okkar tímum? Í síðari hluta verksins á sér stað könnun á samræðu Guðbergs við íslenskt samfélag og menningu, en í skáld- Fagurfræði í skáld- skap Guðbergs Bergssonar Nafn: Birna Bjarnadóttir. Starfsheiti: Bókmenntafræðingur. Fæðingard. og ár: 11.04. 1961. Ætt/staðir: Móðir: Fríða Ása Guðmundsdóttir, húsmóðir, fædd og uppalin á Hellissandi, Snæfellsnesi. Faðir: Bjarni Ólafsson iðnaðarmeistari, fæddur og uppalinn í Reykjavík. Stúdentspróf: Menntaskólinn v/Hamrahlíð 1982. Háskólagráður: BA-próf í almennri bókmenntafræði við HÍ 1990. MA-próf í íslenskum bókmenntum við HÍ 1994. Starf: Doktorsnemi og stundakennari við Háskóla Ísland Rannsóknarsvið: Fagurfræði nútímabókmennta. skap sínum og ýmsum ritgerðum hefur Guðbergur leitast við að halda uppi spegli að íslensku þjóðerni, einkennum þess, siðvenjum, fegurðarskyni og hugmyndafræði. Að þessu leyti má líkja höfundarverki hans við verk Halldórs Laxness, sem í fjölmörgum skáldverkum og ritgerðum glímdi við hlutskipti þjóðarinnar. Munurinn er þó um- talsverður. Verk Guðbergs má m.a. skilja sem fráhvarf frá afstöðu Laxness, þeirri sem einkenndist af því að bjóða þjóð sinni „dús“. Í þessu samhengi er stöðugt spurt um þá fagurfræði sem býr að baki sköpunarverki Guðbergs og hvaða máli hinn evrópski hugmyndagrunnur skipti í því samhengi: hvert sækir Guðbergur hefð sína? Sveigir hann vísvitað fram hjá hinni rótgrónu bókmenntahefð sem Laxness lagði svo mikla rækt við? Hvernig efnir hann í þann íslenska nútíma sem hann birtir okkur? Markmið þessa verkefnis er að afla þekkingar á fag- urfræði verka Guðbergs Bergssonar og varpa þar með ljósi á fagurfræði íslenskra nútímabókmennta í evrópsku hugmyndasamhengi. Niðurstöður munu varða nokkur lykilatriði í verkum Guðbergs en jafnframt stöðu hans í íslenskri menningu og bókmenntasögu. Jafnframt er verkinu ætlað að vera framlag til hugmyndasögulegra og fagurfræðilegra rannsókna og auka vægi alþjóðlegrar bókmenntafræðilegrar umræðu á íslensku. Síðast en ekki síst ætti verkið að geta þjónað sem grundvöllur fræði- legrar kynningar á íslenskum nútímabókmenntum er- lendis. Vísindasjóður styrkir þetta verkefni. Sagt er að allt sé tilvilj-un háð. En jafnvel til-viljunin lýtur lögmál- um. Líkindafræðin er sú grein stærðfræðinnar sem fjallar um þessi lögmál á sama hátt og t.d. rúmfræð- in fjallar um lögmál flatar- mynda og rúmforma. Það var ekki fyrr en á 20. öld sem vísindin komust á það stig að ekki var lengur stætt á að horfa fram hjá því að „allt sé tilviljun háð“. Lík- indafræðin kemur nú við sögu nokkurn veginn alls staðar þar sem gripið er niður í vísindum og tækni, allt frá eðlisfræði til fé- lagsvísinda, tölvunarfræði til hagfræði, upplýsinga- tækni til fjármálafræði, gæðastjórnun til málvísinda, verkfræði til erfðavísinda. Nýlega lauk ég við fimm hundruðsíðna bók sem byggir á tveggja áratuga rannsóknum í líkindafræði. Bókin kom út í fyrra hjá Springer-Verlag sem er helsti útgefandi alþjóðlegra rannsóknarita í stærðfræði. Hún heitir „Coupling, Stationa- rity, and Regeneration“ upp á ensku og „Tenging, jafnvægi og endurnýjun“ á íslensku. Sýnishorn eru á heimasíðu minni (www.hi.is/~hermann). Bókinni hefur verið mjög vel tekið eins og kemur m.a. fram í eftirfarandi lokaorðum úr ritdómi í tímariti bandarísku töl- fræðisamtakanna JASA (Journal of the American Statistical Association): „Coupling, Stationarity, and Regeneration is an extraordinary and magnificient achievement that will have lasting impact on the world of probability.“ Þetta útleggst einhvern veginn svona á íslensku: „Tenging, jafnvægi og endurnýjun er einstakt og stórbrotið afreksverk sem mun hafa varanleg áhrif á heim líkindafræðinnar.“ Tenging er meginþema bókarinnar. Þetta er líkindafræði- leg aðferð sem á rætur sínar að rekja aftur á fjórða áratuginn en lá svo mikið til í láginni fram á þann áttunda. Tenging lík- ist frekar yfirveguðu handverki en sjálfvirkri stórframleiðslu og því hefur þessi aðferð þróast hægt. Nú er þó svo komið að hún er farin að koma við sögu á flestum sviðum jafnt hreinn- ar sem hagnýtrar líkindafræði. Með hóflegri einföldun má segja að tengiaðferðin gangi út á að rannsaka slembifyrirbrigði með því að tengja þau öðr- um einfaldari. Hún skiptir líkindafræðilegri röksemdafærslu í tvo hluta: tengihluta þar sem líkindafræðilegt innsæi skiptir höfuðmáli og síðari hluta þar sem unnt er að beita einföld- um rökum sem ekki krefjast slíks innsæis. Mörgum finnst þetta líkast galdri, niðurstaðan virðist liggja fyrir áreynslu- laust. En áreynslan felst í því að finna réttu tenginguna, og hún er ekki alltaf auðfundin þótt hún blasi oft við þegar hún er fundin. Meginverkefnið núna er að fylgja bókinni eftir út í heim, en auk þess halda rannsóknarverkefnin áfram að hrannast upp. Síðustu mánuðina hef ég einkum velt fyrir mér „hvernig hirða megi þorsk úr óendanlegri runu krónukasta án þess að raska rununni“ en þessi að því er virðist ábyrgðarlausi leikur kemur við sögu við rannsókn á ferðum rafeindar í kristal. Þá hef ég velt fyrir mér hvernig eigi að lýsa því stærðfræðilega „að allir punktar í slembipunktmengi í margvíðu rúmi (t.d. plánetur í geimnum) séu jafngildir sem athugunarstöðvar“. Svona stundar stærðfræðingur gjarnan grunnrannsóknir (með fætur uppi á borði): Fyrst vaknar spurning (vegna hag- nýts verkefnis eða einfaldlega af fræðilegum ástæðum). Svo er velt vöngum (og kannski krotað á blað og spjallað við koll- ega) dögum, mánuðum, árum saman. Komi eitthvað athygl- isvert út úr þessu er skrifuð grein sem svo er send til hugs- anlegrar birtingar í alþjóðlegu stærðfræðitímariti. Ritstjóri þess fær hæfa menn (sem höfundur má ekki vita hverjir eru) til að fara í gegnum greinina og segja til um hvort þetta sé nú allt saman rétt og nýtt og nægilega bitastætt. Sé niðurstaðan jákvæð (í kannski 10% tilvika hjá sumum tímaritum og kannski 90% hjá öðrum) birtist greinin kannski tveim árum síðar (stundum eftir ítarlegar lagfæringar og niðurskurð eða viðbætur), en þá er höfundurinn kominn á kaf í einhverjar allt aðrar vangaveltur. Auk ofangreinds er ég mikill áhugamaður um tónlist. Ég er núna að vinna í því að fá framúrstefnurokkarana PLP (Par Lindh Project) til landsins til að spila. (Sennilega) þann 9.-11. nóvember næstkomandi (hafið endilega samband við mig: hermann@hi.is). Þetta kemur kannski dálítið spánskt fyrir sjónir en þetta er liður í að ná mér niður eftir átökin við bók- ina. Jafnvel tilviljun er lögmál Nafn: Hermann Þórisson. Starfsheiti: Stærðfræðingur. F.dagur og ár: 1. október 1952. Ættaður, frá hvaða stöðum/landshlutum: Móðir mín, Björg Hermannsdóttir, er frá Seyðisfirði og þar er ég alinn upp. Faðir minn, Þórir Bergsson tryggingastærðfræðingur, fæddist á Patreksfirði og ólst upp í Hafnarfirði. Stúdentspróf: 1972 frá MR. Háskólapróf, eftir gráðum: Doktorspróf frá Gautaborgarháskóla 1981 Núverandi starf/staða: Vísindamaður við Raunvísindastofnun Háskólans Rannsóknarsvið: Líkindafræði Rannsóknir mínarhafa að undan-förnu snúist um kvikmyndir sem fjalla um Jesú Krist, annað- hvort á beinan hátt með því að segja sögu hans (s.k. Jesúmyndir) eða myndir um persónur með sterka skírskotun til persónu Jesú Krists, sem oft eru kallaðar krists- gervingar. Ég hef nýlokið við að skrifa grein um þetta efni, sem á að birt- ast í bók um trúarleg stef í kvikmyndum og er væntanleg síðar á þessu ári. Margt bendir til þess að myndir um kristsgervinga eða með persónum sem hafa sterkar tilvísanir til persónu Jesú Krists séu betur til þess fallnar að koma boðskapnum um Krist til skila en hefðbundnar Jesúmyndir. Slíkar myndir eru ekki rammaðar inn af sögulegum bakgrunni persónu Jesú Krists til jafns við Jesúmyndirnar. Hins vegar hefur leik- stjórum Jesúmyndanna fundist þeir misjafnlega bundnir af sögulegum bakgrunni Jesú Krists. Hér er t.d. átt við gyðing- legan bakgrunn hans, en í mörgum myndum er persóna Jesú Krists leikin af bláeygum Vesturlandabúa með skolleitt hár. Hið sama er ekki að segja um kyn Jesú. Þetta vekur spurningar um mikilvægi sögulegs samhengis guðspjalla- sögunnar og hvernig kristin hefð hefur túlkað það fram að þessu. Enn í dag er konum t.d. meinað að taka prestsvígslu, vegna þess að þær eru ekki af sama kyni og Kristur og teljast því ekki geta gerst erindrekar í Krists stað. Sömu rök hafa ekki verið notuð gegn körlum af öðrum kynþætti eða þjóð- félagsstétt en Kristur. Kvikmyndir um kvenkristsgervinga sýna hvernig hægt er að draga fram mikilvæga þætti í per- sónu og/eða hlutverki Jesú Krists, þrátt fyrir eða kannski einmitt vegna þess að túlkunin á sér stað utan þröngs ramma hins sögulega samhengis. Áhrifamikil mynd Dan- ans Dreyers um píslargöngu Jóhönnu af Örk og mynd Tims Robbins um systur Helenu (Dead Man Walking) eru tvö slík dæmi. Mörg önnur dæmi eru til, þar má fremsta í flokki nefna Babettu í óskarsverðlaunamyndinni um Gestaboð Babettu frá árinu 1987. Mynd Von Triers, Brimbrot, er hins vegar gott dæmi um neikvæðan kristsgerving, sem er á skjön við frelsunarboðskap Krists, en gerir engu að síður til- kall til samanburðar við frásögn guðspjallanna. Kvikmyndir um persónu og hlutverk Jesú Krists, hvort sem þær segja sögu hans eða hafa tilvísun til persónu hans, geta verið mikilvægt innlegg í fræðin um Krist, sem hafa það að viðfangsefni að bregðast við spurningunni sem Kristur lagði fyrir lærisveina sína forðum daga: En þér, hvern segið þér mig vera? (Mk 8.29). Sterkar tilvísanir og til- raunir til þess að fást við flókin kristsfræðileg vandamál í myndunum gera kröfu til þess að þær verði teknar alvar- lega. Glíman við grundvallarspurningar kristinnar trúar um eðli og hlutverk Jesú Krists heldur áfram og guðfræðingar hljóta að fagna því að fleiri taki þátt í þeirri umræðu. Kristsgervingar í kvikmyndum Nafn: Arnfríður Guðmundsdóttir Starfsheiti: lektor F. dagur og ár: 12. janúar 1961 Ættuð, frá hvaða stöðum/landshlutum: frá Siglufirði Stúdentspróf: frá Menntaskólanum við Sund, árið 1981 Háskólapróf, eftir gráðum: Embættispróf í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Doktorspróf í guðfræði frá Lúterska guðfræðiskólanum í Chicago í Bandaríkjunum árið 1996. Núverandi starf/staða: lektor í guðfræði við guðfræðideild HÍ Rannsóknarsvið: Kristsfræði með áherslu á feminískt sjónarhorn. VÍSINDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.