Vísir - 11.01.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 11.01.1980, Blaðsíða 4
VÍSIR Föstudagurinn XI. janúar 1980 STOR UTSAIA á nýjum og nýlegum kvenfatnaði byrjaði í morgun Fjölbreytt úrval aff kjólum blússum • peysum • mussum pilsum • jökkum o.ff.o.ffl. Opið laugardag ÚTSÖLUHORNID Skólavörðustíg 19 Sími 21912 Framboðsfrestur Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar, trún- aðarmannaráðs og endurskoðenda i Verslunarmannafélagi Reykjavikur fyrir árið 1980. Framboðslistum skal skilað i skrifstofu fél'agsins, Hagamel 4, eigi siðar en kl. 12 á hádegi mánudaginn 14. jan. 1980. Kjörstjórnin. HAFNARDÍÓ FRUMSÝNIR ARAÐÍSK ÆVINTÝRI Loftorrusta á fljúgandi teppum. Risavaxnir andar. Eldspúandi drekar. ósvikiö austur- lenskt ævintýri. Sýnd kl. 5—7 — 9 og 11 Aidnir leið- togar austan- tlaldsrikja Á þessum áratug, sem nú er frá. — Fyrir þá hreinsun var genginn i gar&, eigum viö vafa- meðalaldur miðstjórnarinnar 51,7 laust eftir að sjá marga af leið- ár. togum kommúnistarikja Austur- Evrópu hverfa af sjónarsvið- inu. Sumir af pólitiskum ástæð- um, aðrir fyrir aldurs sakir eða vegna þess að þeir hverfa á f'und feðra sinna. Andlit margra þeirra hafa horft á okkur af spjöldum sögunnar áratugum saman. Það er ekki auðvelt að koma auga á hvaða nýir leiðtogar munu koma i þeirra stað, eða hvernig kommúnisma þeir munu fylgja. Sá yngstl 61 árs Yngsti leiðtogi austantjalds- rikjanna er Rúmeninn Nicolae Ceausescu, sem er sextiu og eins árs að aldri. Hann hefur stýrt kommúnistaflokki Rúmeniu frá þvi 1965. Edward Gierek i Póllandi og Gustav Husak i Tékkóslóvakiu eru báðir sextiu og sex ára gamlir. Erich Honecker i Austur- Þýskalandi og Janos Kadar i Ungverjalandi eru sömuleiðis jafnaldrar, eða sextiu og sjö ára. Todor Zhivkov i Búlgariu er árinu eldri, eða sextiu og átta ára. Albania er að visu ekki að baki járntjaldi Kremlstjórnarinnar, en er engu að siður kommúnist- Samkvæmt þessari sömu athugun „Frjálsrar Evrópu” er sveigðar að landfræðilegum ástæðum og stundum að tog- streitu þjóðflokka, sem landið byggja. Eins og til dæmis, þegar sagt er I Tékkóslóvaiu, að for- Nicolae Ceausescu, Rúmeniu, Enver Hoxha, Albaníu og Janos Kadar, Ungverjalandi. aöutan Gustav Husak, Tékkóslóvakiu, Edward Gierek, Póllandi, Josip Broz Titó, Júgóslaviu. Guðmundur Pétursson skrifar iskt riki og Enver Hoxha i hópi þeirra kommúnistaleiðtoga, sem koma i hugann. Hann er sjötiu og eins árs orðinn og hefur stýrt kommúnistaflokki Albaniu siöan 1941. Elstur þessara flokksbrodda allra er Josip Broz Tito, marskálkur og forseti Júgó- slaviu, er verður áttatiu og átta ára i mai komandi. Hann er sá eini þeirra, sem sjáanlega er byrjaður að búa þjóð sina undir, að hann viki frá stjórnvelinum einhvern daginn. En með þó þeirri sjálfsögðu varúð, að hampa engum einum öðrum fremur sem liklegum eftirmanni sinum. Hár meðaialdur Hvernig sem leiðtogaskiptin verða i Austur-Evrópu, þá eru ekki mikil likindi til þess — nema þá I Albaniu og Júgóslaviu — nýju leiðtogarnir verði mikið yngri menn en fyrirrennarar þeirra, sem enn sitja að völdum. A vesturlöndum hafa menn veitt þvi eftirtekt, að meðalaldur fulltrúa, sem eiga sæti i mið- stjórnum kommúnistaflokka austantjaldsrikjanna hefur frem- ur hækkað en hitt á siðasta ára- tug. Að einni undantekningu þó. 1 Búlgariu hefur meðalaldurinn lækkað úr 61,2 i 59,7 ár. Miðstjórnin i Austur-Þýska- landi var yngri en I Búlgariu árið 1969 með meðalaldur 60,9 ár. Hún er nú orðin sú elsta, eða 61,7 ár i fyrra. Meðalaldurinn er minnstur i Tékkóslóvakiu, og samkvæmt at- hugun útvarpsstöðvarinnar „Frjáls Evrópa” er hann 56,6 . En eftir innrás Varsjárbanda- lagsins I Tékkóslóvaiu 1968 urðu miklar hreinsarnir I miðstjórn- inni og 80% fulltrúanna var vikið Ungverjaland eina austantjalds- rikið, sem hefur aðeins einn hátt- settan embættismann, er stendur undir fertugu. Moskva ræður Vestrænir diplómatar stað- settir austantjalds og flokksmál- pípur þar eystra eru flestir þeirrar skoðunar, að val á eftir- mönnum núverandi leiðtoga og stefnumörkun þeirra muni mjög fara eftir þvi, hver verði eftir- maður hins sjötiu og þriggja ára gamla Leonids Brezhnevs, sem á við heilsubrest að striða. Það er ógjörningur að fylgjast með valdabaráttunni, sem háð er innan kommúnistaflokks Sovét- rikjanna og mestan part innan veggja fundarherbergjanna á bak við luktar dyr. Svipað má segja um hina flokkana austantjalds. Reglurnar fyrir vali á leið- togum eru flóknar og stundum Leonid Brezhnev, Sovétrikun- um. — Valið á eftirmanni hans, sem þykir naumast vera langt undan, mun mikil áhrif hafa á val leiðtoga annarra austan- tjaldsrikja, sem búast má við á áratugnum. sætisráðherrann verði að vera tékkneskur, eins og Lubomir Strougal reyndar er, ef fram- kvæmdastjóri flokksins er slav- neskur, eins og Gustav Husak. Minnir þetta á stundum á ætt- flokkaerjur. Mest er þó óvissan um innan- flokkstogstreituna I Sovétrikjun- um, þótt útkoma hennar geti haft mikil áhrif annarstaðar, jafnt lika i Júgóslaviu. Alllr áratug vlð vðld Husak, sem sagður er heilsu- veill, hefur haft forystu flokks sins með höndum, siðan hinum frjálslynda Alexander Dubcek var ýtt frá 1969. Erich Honecker var útnefndur leiðtogi austur- þýskra kommúnista 1971, þegar Walther Ulbricht vék frá fyrir aldurs sakir. Ceausescu tók við eftir andlát Gheorge Gheorghiu-Dejs 19. mars 1965. Hann er sá eini meðal núlifandi leiðtoga kommúnista- rikjanna, sem útnefndur hafði verið af fyrirrennara sinum. Edward Gierek i Póllandi tók við stjórnartaumunum 1970 af Wladislaw Gómúlka, sem ýtt var frá völdum eftir óeirðirnar vegna matvöruhörgulsins þar sama ár. Nú tiu árum siðar virðist sagan ætla að endurtaka sig, þvi að mikillar óánægju hefur gætt i Pól- landi vegna efnahagsástandsins. Kadar komst til valda eftir byltinguna I Ungverjalandi 1956, en þá hafði Zhivkov i Búlgariu þegar setið við stjórnvölinn i tvö ár. Albania var konungsveldi fyrir siðari heimstyrjöldina, en Hoxha hefur verið leiðtogi landsins siðan. Titó varð aðalritari komm- únistaflokks Júgóslaviu 1937, þegar landið var enn konungs- veldi. Hann var kjörinn forseti til lifstiðar 1966. Allir hafa þeir þvi verið við völd minnst niu eða tiu ár.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.