Morgunblaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 8
AUÐLESIÐ EFNI
8 B FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐASKRIFSTOFAN
Íslenskar ævintýra-ferðir
hefur gert tilboð í eignir
Samvinnu-ferða-
Landsýnar, sem varð
gjaldþrota í síðustu viku.
Vill ferðaskrifstofan
halda áfram rekstri
Samvinnu-ferða á ferðum
fyrir útlendinga á Íslandi.
Ragnar H. Hall,
skiptastjóri
Samvinnu-ferða, vonar
að gengið verði frá
samningum fljótlega.
Áður voru Heimsferðir
búnar að gera tilboð sem
var hafnað. Andri Már
Ingólfsson, forstjóri
Heimsferða, segir að
ekki sé nú hægt að halda
rekstri Samvinnu-ferða
áfram. Nafn fyrirtækisins
hafi orðið fyrir miklum
skaða við gjaldþrotið.
„Það var okkar mat að
um gott tilboð væri að
ræða,“ sagði Andri Már
um tilboð sitt.
Heimsferðir hafa tekið
yfir samninga
Samvinnu-ferða á
Kanarí-eyjum og
Benidorm. Þá verður
nokkrum starfsmönnum
Samvinnu-ferða boðin
vinna hjá Heimsferðum.
Tilboð
gert í
Samvinnu-
ferðir GERT er ráð fyrir aðbráðabirgðastjórn taki við
völdum í Afganistan 22.
desember. Eru fulltrúar
stærstu þjóðarbrota
Afganistans búnir að
samþykkja slíka stjórn á
fundi í Bonn í Þýskalandi
Enn er barist í Afganistan.
Bandaríkjamenn láta
sprengjum rigna yfir svæði
talibana við borgina
Kandahar. Þá eru afganskir
hermenn búnir að umkringja
fjallavirkið þar sem talið er
að Osama bin Laden feli sig.
Óttast Bandaríkjamenn að
hryðjuverka-samtök bin
Ladens eigi geislasprengju.
Með slíkri sprengju má
dreifa geisla-virku efni yfir
stórt svæði.
Samið um
stjórn
Afganistans
TUGIR Ísraela fórust í
sjálfsmorðs-árásum
Palestínumanna á
laugardaginn. Fjöldi manna
slasaðist. Fyrst sprakk
sprengja í miðborg Jerúsalem
og nokkru síðar í
strætisvagni í annarri borg í
Ísrael. Tuttugu og fimm létust
í þessum árásum.
Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínu-manna, lét
handtaka marga
hryðjuverkamenn eftir
árásina. Hann lýsti yfir
neyðarástandi á svæðum
Palestínu-manna. Arafat
hefur svarað gagnrýni Ariels
Sharons, forsætisráðherra
Ísraels, að hann taki ekki
nógu hart á
hryðjuverka-mönnum.
„Sharon vill ekki að aðgerðir
mínar skili árangri og því
fyrirskipar hann aukinn
hernað,“ sagði Arafat.
Ísraelar stóðu á mánudag
og þriðjudag fyrir loftárásum
á svæði Palestínumanna til
að hefna þeirra sem létust.
Líkir Sharon árásunum við
baráttu Bandaríkjamanna í
Afganistan. Ekki eru allir
stjórnarflokkar í Ísrael sáttir
við aðgerðirnar og var gert hlé
á þeim á miðvikudag.
Hryðjuverka-menn á svæði
Palestínumanna hafa hótað
að hefna árása Ísraela.
Staða Arafat er sögð mjög
veik. Óttast Vesturlönd að
friðarferlið í
Mið-Austurlöndum sé í hættu
ef Arafat segir af sér.
Mannskæðar
árásir í Ísrael
Reuters
Mæðgin biðjast fyrir þar sem sprengjan sprakk í Jerúsalem.
LANDSSAMTÖKIN
Þroskahjálp veittu
Múrbrjótinn síðastliðinn
laugardag. Að þessu sinni
fengu þeir Karl Lúðvíksson og
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra
viðurkenninguna. Átak, félag
fólks með þroskahömlun,
fékk líka Múrbrjótinn að
þessu sinni.
Þrír fengu
Múrbrjótinn
Netfang: auefni@mbl.is
BÍTILLINN George Harrison
lést úr krabbameini
síðastliðinn fimmtudag.
Harrison var 58 ára gamall.
Harrison var einn af
Bítlunum fjórum. Segja má
að þeir hafi verið frægasta
popphljómsveit sögunnar.
Bítlarnir Paul McCartney og
Ringo Starr sögðu að hans
yrði sárt saknað. „Ég unni
honum mjög og mun sakna
hans,“ sagði Starr.
George
Harrison
látinn
AP
George Harrison er látinn.
KVEIKT verður á jólatrénu á Austurvelli á
sunnudaginn klukkan fjögur síðdegis.
Það eru íbúar borgarinnar Ósló í Noregi
sem gefa Reykvíkingum tréð á hverju ári.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
kveikir á trénu. Einnig verður boðið upp
á skemmtiatriði. Borgar-dætur og
Skáta-kórinn syngja nokkur lög. Þá
stjórna jólasveinarnir fjölda-söng.
Jólasveinarnir munu ekki láta sig vanta þegar kveikt verður á jólatrénu.
Kveikt á jólatrénu