Morgunblaðið - 12.03.2002, Page 2
ÍÞRÓTTIR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUNNAR Örn Ólafsson úr
Ösp setti fimm Íslandsmet í
sínum flokki á opna danska
meistaramótinu í sundi fatl-
aðra sem fór fram í 50 m
sundlaug í H¢rsholm í Dan-
mörku um sl. helgi. Sjö Ís-
lendingar tóku þátt í mótinu
en þátttakendur komu frá
Danmörku, Englandi, Skot-
landi, Svíþjóð, Færeyjum,
Úkrínu, Slóvakíu, Taílandi og
Spáni.
Gunnar Örn var sigurveg-
ari í tveimur greinum, í öðru
sæti í tveimur og í þriðja sæti
í tveimur greinum í flokki
S14
Vala Guðmundsdóttir setti
eitt Íslandsmet, en hún var
sigurvegari í fjórum sund-
greinum í flokki S6.
Kristín Rós Hákonardóttir
tók þátt í sex sundgreinum í
S7 flokki og fagnaði sigri í
þeim öllum.
Bára B. Erlingsdóttir
keppti í sex greinum í S14
flokki, varð önnur í fjórum
greinum og þriðja í tveimur.
Þrír aðrir keppendur tóku
þátt í mótinu – Jóna Dagbjört
Pétursdóttir, sem náði þriðja
sæti í einni sundgrein í S9
flokki og Jón Gunnarsson og
Anton Kristjánsson.
Morgunblaðið/Jim Smart
Gunnar Örn Ólafsson
GUÐJÓN Þórðarson segir engan
vafa leika á að fjarvera fyrirliða
Stoke, Peters Handyseides, hafi
veikt liðið til muna og átt sinn þátt í
því að það tapaði fyrir Wycombe,
1:0, í ensku 2. deildinni á laug-
ardaginn. Við tapið féll Stoke niður
í fjórða sæti, en átti með sigri
möguleika á að ná hinu langþráða
öðru sæti. Handyside hefur verið
einn traustasti leikmaður Stoke í
vetur. Hann tábrotnaði hins vegar
heima hjá sér fyrir helgina og gat
ekki leikið með af þeim sökum. „Við
söknuðum Handysides, fjarvera
hans hafði mikil áhrif á leik liðs-
ins,“ sagði Guðjón sem einnig sagði
frammistöðu Stoke hafa verið mikil
vonbrigði, ekki síst þar sem nær því
sami leikmannahópur hafi leikið
hreint ágætlega upp á síðkastið.
Stoke getur öðrum fremur þakk-
að markverði sínum, Neil Cutler, að
hafa ekki tapað með meiri mun en
einu marki. Hann varði mjög vel
hvað eftir annað.
Brynjar Björn Gunnarsson,
Bjarni Guðjónsson og Arnar Gunn-
laugsson voru í byrjunarliði Stoke
gegn Wycombe. Brynjar lék leikinn
til enda en Bjarni skipti við Marc
Goodfellow á 78. mínútu en sex
mínútum áður hafði Arnar farið af
leikvelli í skiptum við Andy Cooke.
Þá kom Stefán Þórðarson inn á sem
varamaður á 72. mínútu.
STOKE TAPAÐI
Guðjón saknar
fyrirliðans
KYLFINGARNIR Birgir Leifur
Hafþórsson úr Leyni og Björg-
vin Sigurbergsson úr Keili kom-
ust ekki áfram á öðru áskor-
endamótinu sem þeir taka þátt í.
Keppnin fór fram í Zambíu og
eftir að hafa leikið fyrsta hring
á tveimur undir pari lék Birgir
Leifur þann næsta á einu yfir
pari og því samtals á einu höggi
undir pari en þeir sem léku á
tveimur undir pari komust
áfram í næstu tvo hringi.
Björgvin lék fyrri hringinn á
fimm höggum yfir pari en þann
síðari mun betur eða á tveimur
yfir en það dugði ekki eins og að
framan greinir.
Úrhellisrigning setti svip sinn
á mótið annan daginn og varð að
fresta leik um tíma. Sigurvegari
varð Marco Cayeux frá Zimb-
abve, en hann lék á 22 höggum
undir pari í heildina, fyrsta
hringinn á fjórum undir, síðan á
sjö undir, þá átta undir og síð-
asta daginn lék hann á þremur
höggum undir pari.
Morgunblaðið/Sverrir
Birgir Leifur
Högg
undir pari
dugði ekki
Vagga skautaíþróttarinnar á Ís-landi er á Akureyri og hefur ís-
hokkílið Skautafélags Akureyrar
verið sigursælt allt frá upphafi. Til
langs tíma var Akureyri eini stað-
urinn á landinu þar sem greinin var
stunduð að nokkru marki. Brottflutt-
ir Akureyringar fóru svo að spila ís-
hokkí í Reykjavík og má segja að
Sveinn heitinn Kristdórsson hafi
flutt hokkíið með sér suður og hélt
úti liði Skautafélags Reykjavíkur um
árabil. Liðin tvö reyndu að heim-
sækja hvort annað og spila nokkuð
reglulega. Fyrsta Íslandsmótið var
haldið veturinn 1991–1992 og síðan
þá hefur íþróttinni vaxið fiskur um
hrygg. Yfirbyggð skautasvell eru
komin í Reykjavík og á Akureyri og
iðkendum fjölgar jafnt og þétt bæði í
hokkíinu og listhlaupi.
Nú eru þrjú karlalið að berjast á
svellinu því Björninn hefur bæst í
hópinn og tvö kvennalið eru komin á
fullt, Birnurnar og SA.
Systkinin Hulda og Sigurður
Sveinn Sigurðarbörn eru fyrirliðar
karla- og kvennaliðs SA, en þau er
alin upp í Innbænum á Akureyri. Þar
kynnstust þau íþróttinni snemma,
enda var þetta og er líklega enn þjóð-
aríþrótt Innbæinga eins og þeir kall-
ast sem búa í elsta bæjarhluta Ak-
ureyrar.
Sigurður, eða Siggi eins og hann
er venjulega kallaður, byrjaði að æfa
sex ára gamall og hefur því verið á
svellinu í 20 ár. Hann starfar sem
framkvæmdastjóri Skautahallarinn-
ar á Akureyri og hefur í nógu að snú-
ast.
Alltaf Íslandsmeistari
Hann hefur náð þeim einstaka ár-
angri að hafa orðið Íslandsmeistari
með liðum sínum öll þau ár sem
keppt hefur verið í meistaraflokki
karla. Hann var aðeins 16 ára þegar
hann vann sinn fyrsta titil með SA
árið 1992. Síðan hafa bæst við níu
titlar, þar af tveir með SR, 1999 og
2000, en Siggi spilaði í tvo vetur með
erkifjendunum á meðan hann var við
nám sunnan heiða. Í fyrra virtist sem
þessari sigurhefð væri lokið er
Björninn var búinn að vinna tvo leiki
í úrslitarimmunni gegn SA, báða á
Akureyri. Með ótrúlegri seiglu tókst
Akureyringunum að snúa við blaðinu
og sigra tvívegis í Reykjavík. Þeir
fylltu svo Skautahöllina á Akureyri í
úrslitaleiknum og lönduðu dísætum
sigri eftir frábæran leik sem bauð
upp á mikla spennu og hasar.
„Já, ég held að af þessum tíu titl-
um hafi sigurinn í fyrra verið sá sæt-
asti. Öll úrslitakeppnin var mjög
spennandi og bæði liðin sýndu góð
tilþrif. Erlendu leikmennirnir voru
mjög góðir og Íslendingarnir ferskir.
Liðin sýndu hraðara, betra og einnig
harðara hokkí en áður hafði sést,“
segir Siggi, er hann er inntur eftir
því hvaða titill sé eftirminnilegastur.
Með sigrinum má segja að SA hafi
náð bikarnum aftur „heim“ eftir að
SR hafði unnið hann tvö árin á undan
með viðmælanda okkar innanborðs.
En hvað olli því að leikmenn SR náðu
titlinum?
„Það var fyrst og fremst munur á
aðstöðu. Þeir voru komnir með höll
til að æfa í en á Akureyri var að-
staðan háð veðráttu og í slæmu tíð-
arfari var lítið hægt að æfa. Svo fór-
um við nokkrir suður og við það
þynntist hópurinn hjá SA. Seinna
tímabilið sem SR vann fengu Akur-
eyringar höllina um áramót og við
það jafnaðist þetta nokkuð og SR
þurfti fimm leiki og bráðabana til
sigurs.
Höllin hefur skipt sköpum fyrir fé-
lagið og við erum að ná fyrri styrk
ekki bara í meistaraflokki heldur
einnig í yngri flokkunum. Það sést
greinilegur munur á þeim yngri
flokkum sem hafa æft inni í fjögur ár
í Reykjavík en bara tvö hér. Við er-
um enn að reyna að vinna upp það
forskot sem Reykjavíkurliðin náðu á
sínum tíma.“
Lið nánast upp úr þurru
Hulda, sem orðin er 30 ára, á ekki
sömu hefð að baki enda var hún í
raun hætt allri íshokkíiðkun þegar
kvennaliðið var sett á laggirnar fyrir
rúmum tveimur árum. „Ég var búin
að vera á skautum nánast frá því ég
man eftir mér. Ég byrjaði að leika
mér á Tjörninni hérna í Innbænum
nokkrum árum áður en gamli
skautavöllurinn var byggður. Ég var
eina stelpan og við höfðum engar
skipulagðar æfingar, skiptum bara í
lið og spiluðum. Svo var ég lengi með
Old-Boys áður en ég hætti fyrir
þremur árum. Eitthvað var nú búið
að reyna að koma saman kvennaliði
en það gekk aldrei. Í hitteðfyrra varð
svo til lið nánast upp úr þurru þegar
nokkrar stelpur úr Menntaskólanum
hóuðu saman vinkonum sínum til að
spila við stráka. Þær gátu ekki neitt
og höfðu aldrei spilað áður en áhug-
inn var mikill og smám saman vatt
þetta upp á sig og reglulegar æfing-
ar hófust. Ég dró því fram skautana
á ný og sé ekki eftir því.“
Stelpurnar hafa tekið þátt í Ís-
landsmótinu þrjú síðustu ár og hafa
keppt við Birnurnar um titilinn. Á
dögunum kræktu þær sér í sinn ann-
an Íslansmeistaratitil í röð og eru án
efa með öflugasta lið landsins í dag.
Daginn sem viðtalið fór fram var
móttaka fyrir liðið á Jafnréttisstofn-
un enda þykir það merkur áfangi að
kvenþjóðin sé nú farin að stunda
þessa hörðu og hröðu karlmennsku-
íþrótt.
„Það er gaman að segja frá því að
þær stelpur sem hafa áður spilað
handbolta og fótbolta segja þetta
vera skemmtilegustu íþróttina og
þær fá langmesta útrás í hokkíinu,
það bara gerist ekki betra.
Við höfum haft hér fjölmennan
hóp af stelpum í listdansinum, sem
er fínt, og í vetur erum við með einn
yngri flokk stelpna í hokkíinu sem
reyndar er fámennur enn sem komið
er. Þetta tekur allt sinn tíma en ég er
bjartsýn á framhaldið.“
Mæðgur
leika saman
Enn er rætt um landvinninga
kvenfólksins því nú er kominn vísir
að kvennalandsliði. Hulda er fyrirliði
liðsins, en athygli vekur að dóttir
hennar, Anna Sonja Ágústsdóttir
sem er rétt ófermd, er einnig í liðinu.
Það er líklega einsdæmi að mæðgur
séu saman í úrvalsliði, en þær fóru
einmitt í fyrstu keppnisferð kvenna-
liðs út fyrir landsteinana fyrir rétt-
um mánuði.
„Við töpuðum tvívegis 18-0 fyrir
„Meistari“ Sigurður Sveinn Sigurðsson þekkir ek
Sigursæl systk-
ini úr Innbænum
á Akureyri
Það má með sanni segja að íshokkí á Íslandi
sé fjölskylduíþrótt. Fyrirliðar Íslandsmeist-
ara Skautafélags Akureyrar í karla- og
kvennaflokki eru systkini – Sigurður Sveinn
og Hulda Sigurðarbörn. Einar Sigtryggs-
son komst að því að eiginmaður Huldu er
einn farsælasti leikmaður SA frá upphafi og
fyrsti þjálfarinn hennar og kona „meistara“
Sigurðar er í kvennaliði SA.
’ Ég var eina stelp-an og við höfðum
engar skipulagðar
æfingar, skiptum
bara í lið og spil-
uðum ‘
HULDA
Gunnar Örn með
fimm Íslandsmet
SUND FATLAÐRA Í DANMÖRKU
FYLKISMENN hafa gert enska
2. deildarliðinu Peterborough
tilboð í Helga Val Daníelsson,
fyrrum leikmann Árbæjarliðsins.
Helgi Valur á rúmlega eitt ár eft-
ir af samningi sínum við félagið
en fyrir nokkrum vikum óskaði
hann eftir því að verða settur á
sölulista. Helgi Valur hefur verið
á mála hjá enska liðinu frá árinu
1998. Hann lék fyrst með ung-
lingaliðinu en í fyrra fékk hann
að spreyta sig með aðalliði fé-
lagsins og hefur á þessari leiktíð
spilað 12 deildarleiki með liðinu.
Helgi Valur, sem er 21 árs og
hefur verið fastamaður í U-21
árs landsliðinu, lék vel með Fylk-
isliðinu sumarið 2000 og hann á
að baki 16 leiki með liðinu í efstu
deild.
Fylkir með
tilboð í
Helga Val