Morgunblaðið - 12.03.2002, Page 3

Morgunblaðið - 12.03.2002, Page 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 B 3 AMELA Hegic, króatíska handknattleikskonan sem hefur leikið með Gróttu/KR í vetur, er hætt hjá félaginu. Á heimasíðu Gróttu/KR kemur fram að aðilar sem ætluðu að standa straum af kostnaði vegna hennar hefðu ekki staðið við sitt og kvennaráð Gróttu/KR hefði ekki ráðið við að taka þann hlut á sig. Hegic er öflug skytta en hún lék með ÍBV tvö und- anfarin ár með góðum ár- angri og það er áfall fyrir lið Gróttu/KR að sjá á bak henni fyrir úrslitakeppnina. BLÓÐTAKA Morgunblaðið/Kristinn Amela Hegic KONGSBERG Penguins, liðið sem Pétur Guðmundsson þjálfar, er komið í úrslit í norsku deildinni, lagði Oslo Kings 82:67 í fimmta leik liðanna á föstudaginn. Þar með tryggði Pétur liði sínu sæti í úrslitarimmunni og er hún þegar hafin. Kongsberg og Asker Aliens mættust í fyrsta úrslitaleiknum á sunnudaginn og fóru leikar þann- ig að Asker vann 95:71 í Osló og næsti leikur liðanna verður annað kvöld. Pétur og félagar voru undir allan leikinn á sunnudaginn og áttu vart raunhæfa möguleika. Warren Peebles, sem lék hér á landi áður en hann fór til Péturs í Noregi, skoraði 16 stig í leikn- um á sunnudaginn en stigahæstur var Hawthorne með 20 stig og hjá Asker var það Ofstad sem gerði 20 stig. Í fimmta leiknum við Oslo Kings gerði Peebles 18 stig en Hawthorne 25 og Thorrud 24. Hjá Oslóarliðinu, sem lék á heimavelli, var Evans sem fyrr stigahæstur, gerði 34 stig. Lið Asker hefur gengið vel í úrslitakeppninni, vann bæði í átta liða úrslitum og undanúrslitum án þess að taka leik og í undan- úrslitunum lék liðið sama leikinn, lagði Ulriken Eagles 3-0. KARFA Í NOREGI landsliði Suður-Þýskalands, sem er gríðarsterkt lið,“ segir Hulda. „Ég er nokkuð viss um að karlalið- ið myndi tapa stærra gegn Þjóðverj- unum,“ heldur hún áfram og Siggi kinkar kolli. „Við erum gríðarlega ánægðar með þessa ferð. Við töpuðum einum leik í viðbót en unnum þann síðasta gegn áhugamannaliði sem var skipað stelpum með svipaða getu og við. Liðið spilaði frábærlega í þessari ferð og miðað við að við erum nánast allar algerir byrjendur með litla skauta- og tæknikunnáttu getum við ekki verið annað en sáttar. Eiginlega má segja að allar stelpurnar hafi ver- ið að spila betur en nokkru sinni, hreinlega umfram getu. Andinn var mjög góður og liðið samstillt. Það má segja að í þessari ferð höfum við lært jafnmikið á einni viku og á heilum vetri á æfingum hér heima.“ Fleiri íshallir Telja þau að liðum komi til með að fjölga með annarri höll fyrir sunnan? Siggi er snöggur til svars. „Eins og staðan er í dag sárvantar ístíma fyrir sunnlenskt skautafólk og ég reikna með að fyrst og fremst muni Reykja- víkurfélögin loksins fá viðunandi að- stöðu og auðvitað tíma til að sinna íþróttinni sem skyldi með tilkomu nýju hallarinnar. Ef vel ætti að vera þyrfti enn eina höllina – ef liðum ætti að fjölga.“ Sigurður segir að íshokkí sé ein hraðasta hópíþrótt í heimi og mjög skemmtileg fyrir áhorfendur. „Ég tel að áhuginn myndi vakna mikið hér á landi ef einhver sjón- varpsstöðin færi að sýna þætti frá amerísku NHL-deildinni. Það eru til þættir á borð við Ensku mörkin og NBA-tilþrif, sem margir hefðu gam- an af að horfa á. Fólk vill sjá hraða, hasar og pústra.“ Ungu leikmennirnir eru ákafastir Þegar rætt var um hasarinn og hörkuna voru þau systkinin spurð að því hvernig harkan í íslensku deild- unum væri. „Það er mikið um pústra og brottrekstra. Stöku handalögmál geta orðið í hita leiksins,“ segir Siggi. En hvers vegna? „Það er aðallega vegna þess hve íþróttin er hröð. Harka og pústrar eru leyfð upp að vissu marki enda eru menn vel hlífaðir og mjög strangar reglur gilda um þessa pústra. Þetta ristir ekki djúpt og að leik loknum eru allir bestu vinir.“ Huldu og stelpunum finnst þetta stundum hjákátlegt og líkir hún þessu við hanaat. „Það eru oftast ungu leikmennrnir sem nenna að standa í þessu. Þeir eru svo fullir af karlmennskuhormónum, alveg að springa.“ En fýkur ekki líka í stelpurnar? „Jú, jú, þar er stundum engu síðri hasar. Þetta byrjar yfirleitt með ein- hverju sem gerist óvart og síðan þarf að hefna fyrir. Annars er það oft ótrúlegur kjaftháttur sem einkennir kvennaleikina og margt óprenthæft fær að fjúka í hita leiksins. Þetta er samt ekkert persónulegt og gleymt að leik loknum.“ Léttara andrúmsloft með komu stúlknanna En hvað með samkiptin á milli karla- og kvennaliðsins? Eru þau mikil? Systkinin líta lymskulega hvort á annað og virðast ekki alveg tilbúin að svara spurningunni. „Við getum sagt að þetta sé eins og stór fjölskylda enda stór og samheldinn hópur,“ segir Hulda. „Þetta er góður félagsskapur og liðin gera mikið saman. Það létti and- ann mikið í húsinu að fá stelpurnar og ég tel það hafa verið félagslega gott fyrir okkur,“ bætir Siggi við. Það má með sanni segja að þetta sé fjölskylduíþrótt og að þau systkini hafi hana í blóðinu. Eiginmaður Huldu er Ágúst Ásgrímsson, einn alfarsælasti leikmaður SA frá upp- hafi. „Hann var fyrsti þjálfarinn minn,“ segir Hulda – „en þá var ég að æfa með strákunum og hann var litlu eldri en þeir. Hann hætti fyrir þremur árum – um leið og ég – en þá hófum við búsap inní Firði.“ „Konan mín, Guðrún Blöndal, er í kvennaliðinu,“ segir Siggi nokkuð drjúgur. „Jón bróðir okkar var á fullu í þessu áður en hann flutti til Vopna- fjarðar og ein systir okkar flutti til Kanada með eiginmanni sínum, en hann kom hingað að þjálfa fyrir nokkuð mörgum árum.“ Já, það má með sanni segja að þetta sé merkileg íshokkífjölskylda, en hvernig gengur Huldu að sam- ræma störf bóndans og íþróttina? „Það gengur mjög vel bæði líkam- lega og andlega. Maður þarf að hafa líkamlegt þrek á báðum vígstöðvum. Þetta fer ekki ekkert sérstaklega vel saman og þegar ég tek törn í hokkí- inu, þá safnast upp verk heima sem ég verð að vinna upp með því að sleppa æfingum. Svona sveiflast þetta yfir tímabilið.“ Systkinin voru spurð að því hvort iðkendur væru enn eintómir Innbæ- ingar. „Nei, nei. Þetta hefur verið að dreifast meira um bæinn. Þegar við vorum að byrja voru nær eingöngu Innbæingar í hokkíinu eða einhverjir sem tengdust Innbænum. Þetta hverfi var hálfgert „slömm“ og Innbæingar ólust upp í meiri tengslum við náttúruna en flestir. Menn voru úti allan daginn, lærðu að bjarga sér og urðu harðir af sér. Íþróttin átti því vel við krakkana í hverfinu og við vorum öll á skautum en örfáir í boltagreinunum. Þetta var samheldinn hópur og skemmtilegir tímar. Strákarnir í Innbænum eru flestir að æfa hérna en það kemur einnig hópur af krökkum úr öðrum hverfum og nú eru tengslin við Innbæinn ekki jafnáberandi.“ En hvað með erlendu leikmenn- ina? „Þeir eru fjórir hjá okkur núna,“ segir Siggi. „Við reddum þeim vinnu og hjálpum þeim að finna húsnæði, annað ekki. Þeim líkar mjög vel hérna og vilja ekkert fara. Þetta eru fínustu náungar, mjög hressir og lífga mikið uppá deildina,“ bætir hann við. Spurður um næstu verkefni segir Siggi að deildarkeppnin sé að klárast og eftir tvær vikur fari landsliðið á HM til Novi Sad í Júgóslavíu, þar sem það leikur í 3. deild, sem er neðsta deildin. Nokkuð sé í húfi því bæta eigi við 4. deildinni og Ísland vilji ekki falla þangað niður. Að HM loknu tekur svo við úrslitakeppnin um Íslandsbikarinn. Hvort Sigga tekst að hampa honum enn eina ferð- ina verður tíminn að leiða í ljós. kkert annað en að vera Íslandsmeistari í íshokkí Morgunblaðið/Kristján Fyrirliðar kvenna- og karlaliða Skautafélags Akureyrar í íshokkí, systkinin Hulda og Sigurður Sigurðarbörn með Íslandsbikarana. ’ Það er mikið umpústra og brott- rekstra. Stöku handalögmál geta orðið í hita leiksins ‘ SIGURÐUR Hegic hætt með Gróttu/KR Pétur með lið sitt í úrslit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.